Morgunblaðið - 05.04.2013, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Gunnar Bragi Guðmundsson hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá
laxeldisfyrirtækinu Mainstream í
Finnmörku. Hann
hefur aðsetur í
Hammerfest og á
hans svæði er fyr-
irtækið með 27
leyfi til eldis á 17
stöðum. Í ár er
áætlað að Main-
stream slátri tæp-
lega 30 þúsund
tonnum af laxi úr
eigin eldi í Finn-
mörku og að auki
um 10 þúsund tonnum úr eldi ann-
arra fyrirtækja. Til samanburðar má
nefna að á síðasta ári nam laxeldi á
Íslandi innan við þrjú þúsund tonn-
um, en það mun væntanlega aukast
verulega á næstu árum.
Gunnar Bragi segir að spennandi
tímar séu í norsku laxeldi og mikil
gróska. Það eigi ekki síst við um
norðlægari svæði. „Það eru miklir
vaxtarmöguleikar í laxeldi í Norður-
Noregi og bjartsýni ríkjandi,“ segir
Gunnar Bragi.
Þegar birtir tekur
vöxturinn kipp
„Menn héldu lengi vel að þetta
væri ómögulegt vegna þess að hér er
mikið myrkur í 2-3 mánuði og þá
stoppar vöxtur laxins nánast. Annað
hefur komið á daginn og þegar birtir
tekur vöxturinn kipp. Um tíma yfir
hásumarið er bjart nánast allan sólar-
hringinn og inni í fjörðunum verður
mikill hiti og ljós sem aftur skilar sér í
miklum vaxtarhraða.“
Mainstream er annað stærsta lax-
eldisfyrirtækið í Noregi og er eldinu
skipt í tvær deildir. Annars vegar í
Lofoten og hins vegar í Finnmörku og
þar hefur Gunnar Bragi sér við hlið
sem framkvæmdastjóra í slátrun og
verksmiðju Börk Árnason, verkfræð-
ing frá Dalvík. Báðir unnu þeir áður
hjá Norway Seafoods í Hammerfest.
Þar hóf Gunnar Bragi störf í lok árs
2008 sem yfirmaður framleiðslu í átta
fiskvinnsluhúsum Norway Seafoods í
Norður-Noregi.
Hann var áður m.a. aðstoðar-
framkvæmdastjóri Nýfisks í Sand-
gerði. Hann er 52 ára og menntaður
tæknifræðingur og með MBA frá Há-
skóla Íslands.
Meðal stærstu fyrirtækja í
laxeldi og fóðri í heiminum
Fóðurframleiðandinn Evos er syst-
urfyrirtæki Mainstream og bæði eru
fyrirtækin dótturfyrirtæki Cermaq,
sem er á norska hlutabréfamark-
aðnum. Cermaq er meðal stærstu fyr-
irtækja í laxeldi og fóðurframleiðslu í
heiminum og auk Noregs er fyrir-
tækið með mikla starfsemi í Síle og
Kanada.
Um 100 manns starfa við eldið hjá
Mainstream í Finnmörku og svipaður
fjöldi í verksmiðjunni við slátrun og
meðhöndlun laxins. Starfsemi fyrir-
tækisins hefur margvísleg önnur áhrif
í Hammerfest, þannig vinnur frauð-
plastsverksmiðja á staðnum nánast
eingöngu fyrir Mainstream og frysti-
hús að stórum hluta. Mest af laxinum
fer ferskt í frauðkössum á markað í
Rússlandi, en einnig til Frakklands,
Spánar og fleiri landa í Evrópu. Oft
bíða 10-12 stórir flutningabílar við
verksmiðjuna að morgni dags og síð-
an er ekið 3-4 daga á áfangastað þar
sem laxinn er hreinsaður, reyktur og
unninn á annan hátt. Ekki er hægt að
hreinsa bein úr laxinum fyrr en hann
er dauðstirðnaður.
Bjartsýni í laxeldi í Norður-Noregi
Íslendingar í lykilhlutverkum hjá laxeldisdeild Mainstream í Finnmörku Með 27 leyfi til eldis á
17 stöðum Um 40 þúsund tonnum af laxi slátrað í verksmiðju fyrirtækisins í Hammerfest
Hammerfest Um 200 manns starfa við eldi og slátrun hjá Mainstream í Finnmörku og afleidd störf eru fjölmörg.
Starfsemin skiptir samfélagið í N-Noregi því miklu máli. Um 100 manns starfa hjá Mainstream.
Gunnar Bragi
Guðmundsson
Ferðamenn voru í stórhættu í
Reynisfjöru skammt vestan við Vík
í Mýrdal um páskana. Fram kemur
vel á myndskeiði hvernig alda gekk
yfir nokkra ferðamenn sem höfðu
hætt sér of nærri sjávarmálinu.
Fimm ár eru síðan alda hreif
bandaríska ferðakonu með sér á haf
út með þeim afleiðingum að hún
drukknaði.
Myndskeiðið var tekið eftir há-
degi á föstudaginn langa en öldur
geta á örskotsstundu náð mun
lengra upp í fjöruna en þær gera
venjulega, svo munað getur tugum
metra. Jafnvel hefur verið talað um
að loka fjörunni vegna þeirrar
hættu sem þar getur skapast.
Kristinn Kjartansson, sem tók
myndskeiðið, á sumarbústað
skammt frá fjörunni og fylgdist
með ferðum erlendra ferðamanna í
fjörunni um helgina. Hann segir
ekki hægt að kvarta yfir því að
merkingar vanti, frekar sé um að
kenna þekkingarleysi á þeim kröft-
um sem þarna eru að verki.
„Ég gerði tilraun á laugardags-
morgninum til að benda erlendri
fjölskyldu sem komin var hættulega
nærri sjónum á að færa sig ofar í
fjöruna, með litlum undirtektum, og
jafnvel hreytingi frá fjölskylduföð-
urnum. Fjölskyldan var svo komin
upp á kambinn þegar næsta ólag
reið yfir og færði á kaf staðinn sem
þau stóðu á,“ segir Kristinn.
Mikill straumur um páskana
Kristinn segir að straumur ferða-
manna um svæðið hafi verið þungur
yfir páskana og að hver rútan hafi
komið á fætur annarri full af ferða-
mönnum og bætir því við að iðulega
blotni fólk í fæturna í fjörunni. Mið-
að við þá hættu sem þarna geti orð-
ið segir hann jafnframt að mikil bót
væri að því að bæta símasamband í
fjörunni sem geti verið stopult. hall-
urmar@mbl.is
Voru í stórhættu
í Reynisfjöru
Morgunblaðið/RAX
Reynisfjara Vinsæll áningarstaður ferðamanna en vissara að fara varlega í
ölduganginum, sem hefur hrifið með sér fólk á haf út og það drukknað.
Ferðamenn þekkja ekki hættuna
Öllum 14 til 17
ára ungmennum
í Hafnarfirði,
sem sækja um
hjá bænum, verð-
ur tryggð vinna í
sumar. Umsókn-
ir frá 17 ára og
eldri streyma nú
inn til Vinnu-
skóla Hafnar-
fjarðar, en frest-
ur til að skila þeim rennur út 12.
apríl nk. Þar er um að ræða m.a.
störf fyrir flokksstjóra í Vinnuskól-
anum, leiðbeinendur og aðstoðar-
leiðbeinendur á leikjanámskeiðum,
á gæsluvöllum og störf hjá garð-
yrkjustjóra.
Opnað verður fyrir umsóknir fyr-
ir aldurshópinn 14-16 ára í byrjun
maí. Í sumar er gert ráð fyrir að
Vinnuskóli Hafnarfjarðar ráði um
900 einstaklinga á þessum aldri og
munu krakkarnir vinna á ýmsum
starfsstöðvum og takast á við fjöl-
breytt verkefni, að því er fram
kemur í tilkynningu frá Hafnar-
fjarðarbæ.
Öllum tryggð vinna í
Hafnarfirði í sumar
Næg vinna í Hafnar-
firði í sumar.
Skannaðu kóðann
til að sjá frétt með
myndskeiðinu úr
Reynisfjöru.