Morgunblaðið - 05.04.2013, Síða 19

Morgunblaðið - 05.04.2013, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013 www.nordichealth.is Upplýsingar og pantanir í síma 822 4844 og á joninaben@nordichealth.is. „Ástæða þess að ég fór í þessa ferð var sú að dóttir mín hafði farið oft í detox og ég sá hvað hún hafði gott af þessu og mig langaði með. Það var mikið slen yfir mér og ég var of þung á mér. Því vildi ég bæta heilsuna og létta mig. Mér fannst þetta eina skynsamlega úrræðið. Aðstaðan er fín og frábær fararstjóri (Jónína), get ekki hugsað mér betri manneskju til þess að standa að þessum ferðum. Hún er frábær manneskja. Hún svaf og vakti yfir velferð okkar og reynsla hennar og þekking skein í gegn þegar hún leysti öll verkefni strax og vel. Nuddið er einstakt og vöðvabólgan er farin. Gönguleiðirnar eru góðar inni í skóginum og eftirlit lækna frábært en það er einstakt hvað vel er fylgst með manni. Ég er ákveðin í því að fara aftur til Póllands.“ Hjördís Benediktsdóttir, 77 ára. Heilsumeðferðir Jónínu Ben eru þekktar fyrir að skila árangri, bæta líðan og heilsu. Í samstarfi við lækni hótelsins er unnið einstaklingsmiðað að því að lækna og fyrirbyggja lífsstíls- sjúkdóma svo sem háþrýsting, sykursýki 2, húðsjúkdóma,offitu- sjúkdóma, streitu, þunglyndi og kvíða. Læknir hótelsins aðstoðar fólk við að losa sig við lyf með breyttu mataræði. Mikil fræðsla og hreyfing er í boði eftir því sem fólk treystir sér til. Meðferðin er 2 vikur en hafi fólk komið áður er í lagi að taka eina viku. Flogið er til Gdansk þar sem leigubíll bíður. 25. maí - 8. júní. 27. júlí - 10. ágúst. 24. ágúst - 7. sept. Kíktu í kaffi › Föstudagur 5. apríl Kosningamiðstöðin við Hverafold 1-3. Kl. 17.00 Kosningamiðstöðin í Árbæ, Hraunbær 102b. Kl. 18.00 › Laugardagur 6. apríl Kosningamiðstöðin Naustið við Vesturgötu. Kl. 11.00 Kosningamiðstöðin Mjódd, Álfabakka 14a. Kl. 13.00 Kosningamiðstöðin Skeifunni 7. Kl. 15.00 Sjálfstæðisflokkurinn opnar 5 kosningamiðstöðvar í Reykjavík. Við hvetjum þig til að líta við, þiggja léttar veitingar og spjalla við frambjóðendur. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík NÁNAR Á 2013.XD.IS Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Ekki liggja fyrir nein skrifleg gögn um það með hvaða hætti þýski lög- reglumaðurinn Karl Schütz var fenginn að rannsókn Guðmundar- og Geirfinnsmála á sínum tíma, en hann starfaði að rannsókn málsins frá 1976 til 1977. Eina skriflega skjalið sem fannst í fórum Stjórnarráðsins var frá því eftir að hann var kominn hingað til starfa. Þetta kom fram á málþingi sem haldið var í Háskólanum í Reykjavík í gær um Guðmundar- og Geirfinnsmál og trúverðugleika játn- inga. Því var haldið fram að líkast til hefði verið um munnlega beiðni eða samkomulag að ræða og sendiherra Íslands í Þýskalandi, Pétur Eggerz, verið milligöngumaður um að fá hann hingað til lands. Ófært að sakfella á grundvelli fyrirliggjandi gagna Þá kom það fram í umræðum að svo hefði virst sem almenningur hefði haft blinda trú á Schütz við rannsókn málsins. Fram kom að af þeim gögnum sem til væru virtist sem Schütz hefði allan tímann trúað á sekt sakborninga og hans störf fyrst og fremst miðað að því að ná fram játningum. Ekki virtist hafa verið tekið með í reikninginn að mis- vísandi framburður sakborninga hefðu stafað af því að sakborningar hefðu hreinlega ekkert vitað um mál- in. Þá tók Schütz ekkert mark á því þegar sakborningar reyndu að draga framburði sína til baka til að lýsa yfir sakleysi sínu. En allir sakborningar lýstu í upphafi yfir sakleysi. Lögmenn sem sátu ráðstefnuna sem gestir lýstu því yfir að þeir teldu ófært að dómstólar hefðu á grund- velli fyrirliggjandi gagna í málinu getað dæmt menn seka. Einn þeirra var Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrr- verandi hæstaréttardómari, sem sagði að eitt grundarvallaratriði í þessu samhengi væri að ekki væri sannað að neitt brot hefði verið framið. Jón Steinar sagði það sér- kennilegt að af fjölda sakborninga í málinu hefði enginn getað vísað á lík, hvorki Guðmundar né Geirfinns. Jón Steinar sagði að í sínum huga hefði aldrei verið vafi á því að það hefðu aldrei verið færðar sönnur á að brot hefðu verið framin. Þá sagði Jón Steinar mikinn sam- félagslegan þrýsting hafa verið um sakfellingu og velti upp þeirri spurn- ingu hvort það gæti hafa verið að dómstólarnir hefðu viljað taka það hlutverk að sér að ljúka málinu á þann hátt að það félli þjóðinni í geð. Spurðu um ábyrgð dómara Aðrir gestir á málþinginu spurðu um ábyrgð dómara í þessu máli en engin svör komu þó fram við því önn- ur en þau að starfshópurinn hefði ekki skoðað ábyrgð rannsakenda, dómara eða annarra sem að málinu komu heldur fyrst og fremst þau gögn sem lágu fyrir og farið yfir sál- fræðileg gögn sem unnin voru. Morgunblaðið/Friðþjófur Hel Sakamál Rætt var um aðkomu þýska lögreglumannsins, Karl Schütz að rannsókn á Guðmundar- og Geirfinnsmálunum á málþinginu í gær. Höfðu blinda trú á aðkomu Schütz  Samfélagslegur þrýstingur á dómara? Íbúðalánasjóður hefur auglýst sjö íbúðir á Suður- landi til leigu, þar af fjórar á Selfossi. Þetta kom fram í frétt á Sunnlenska fréttavefnum í gær. Þar kemur fram að ÍLS und- irbúi fleiri eignir til útleigu og að þær verði auglýstar eftir um þrjár vikur. Íbúðirnar sem auglýstar eru eru við Eyraveg 46 og Foss- veg 4 á Selfossi, Breiðumörk 25a í Hveragerði, Laufskála 20 á Hellu og Hvolstún 1b á Hvolsvelli. Skv. fréttinni rennur umsóknarfrestur- inn út í dag og verða íbúðirnar leigðar út frá 1. maí eða fyrr eftir samkomulagi. Sjóðurinn hefur verið gagnrýndur þar sem hann er með 50-60 tómar íbúðir í blokkum á Selfossi, sem fást ekki leigðar þrátt fyrir mikinn skort á leigu- húsnæði. ÍLS auglýsir íbúðir til leigu á Suðurlandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.