Morgunblaðið - 05.04.2013, Side 23

Morgunblaðið - 05.04.2013, Side 23
FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013 SVIÐSLJÓS Skúli Hansen skulih@mbl.is Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu í gær fram tillögu í borgarráði um að skipaður yrði sérstakur átakshópur borgarfulltrúa og emb- ættismanna sem greindi ástæður þess að íbúaþróun í Reykjavík hefur verið neikvæð á síðustu árum sam- anborið við fólksfjölgun í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæð- inu. Umfjöllun um tillöguna var frestað. Í tillögunni kemur fram að hóp- urinn eigi að afla upplýsinga um hvað ráði ákvörðun fólks um val á búsetu, leggja mat á styrkleika og veikleika borgarinnar samanborið við önnur sveitarfélög og gera sam- anburð á útgjöldum fjölskyldna og fyrirtækja almennt til sveitarfélaga. Þá gerir tillagan ráð fyrir því að hóp- urinn geri einnig tillögur til borgar- ráðs um hvað beri að setja í forgang til að bregðast við þróuninni og skili borgarráði niðurstöðum sínum eigi síðar en þremur mánuðum eftir skipan hans. Mjög alvarleg staða Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segist vilja sjá meiri metnað fyrir hönd Reykjavíkur. „Þetta er mjög alvarleg staða og það er mikilvægt fyrir borgina að fylgjast vel með þessu og bregðast við vegna þess að þetta getur haft umtalsverð áhrif á rekstur borgar- innar, bæði fjárhagslega og líka af mörgum öðrum ástæðum, t.d. skipu- lagslega og nýtingu til dæmis hús- næðis fyrir skólakerfið og svo fram- vegis,“ segir Júlíus Vífill og bætir við að þar fyrir utan sé það áhyggju- efni ef fólk sem er að fara að hefja búskap og stofna heimili líti svo á að það fari betur um það á öðrum stöð- um en í Reykjavík. „Reykjavíkurborg er þá að mati þessara fjölskyldna að bjóða eitt- hvað lakari kost heldur en önnur sveitarfélög,“ segir Júlíus Vífill en hann telur mikilvægt að fá meiri- hlutann til að vinna með sjálfstæðis- mönnum í að greina þessa stöðu. Þá bendir hann á að ef um fyrirtæki væri að ræða þá myndu menn hlaupa upp til handa og fóta því að menn væru að verða undir í sam- keppninni. „Reykjavíkurborg er sem sagt ekki samkeppnishæf ef við setjum það í þetta samhengi,“ segir Júlíus Vífill. Þá segir Júlíus Vífill það vera slá- andi hvað Reykjavíkurborg fékk slæma einkunn í þjónustukönnun sem framkvæmd fyrir síðustu áramót. Þannig hafi hún í öllum málaflokkum lent í annað hvort neðsta sæti, í samanburði við fimmtán stærstu sveitarfélög landsins, eða að minnsta kosti í einu af þremur neðstu sætunum. Lítil fólksfjölgun í Reykjavík  Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja til að skipaður verði átakshópur sem greini ástæður þess að íbúaþróun borgarinnar hefur verið neikvæð samanborið við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu Vesturbær Reykjavíkur Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja greina hæga íbúaþróun höfuðborgarinnar og segja borgina ekki samkeppnishæfa. „Reykjavíkurborg hefur vaxið á tíu árum um 6,4 prósent en íbú- um í nágrannasveitarfélögunum fjölgað um 27,3 prósent,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson og bend- ir á að vöxtur borgarinnar á síð- ustu tíu árum sé prósentulega séð næstum helmingi minni en landsmeðaltalið. Að sögn Júlíusar Vífils hefur húsnæðisuppbygging á landinu öllu verið í algjöru lágmarki en því sé þó spáð að senn fari byggingarmarkaðurinn að taka við sér. „Þá er náttúrlega nauð- synlegt að Reykjavíkurborg sé ekki eina ferðina enn einhvern veginn með sofandahátt og sinnuleysi gagnvart því að vera vonandi fyrsti kosturinn fyrir ungar fjölskyldur sem eru að hefja búskap,“ segir Júlíus Vífill og bætir við að ungar fjölskyldur séu sá þjóðfélagshópur sem skapi útsvar og sé í flestum tilvikum að setjast að í sveitarfé- laginu til lengri tíma. Vöxtur undir meðaltali BORGIN VEX HÆGT Júlíus Vífill Ingvarsson Fjölgun íbúa 2003-2013 Landið allt Reykja- vík Önnur svfélög á höfuðbsv. 11,6% 6,4% 27,3%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.