Morgunblaðið - 05.04.2013, Side 26

Morgunblaðið - 05.04.2013, Side 26
26 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013 Opnunartími: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00 laugardaga frá 6:00 til 17:00 sunnudaga frá 7:00 til 17:00 Dalvegi 4 - 201 Kópavogur Hamraborg 14 - 2w00 Kópavogur Hafðu samband við bakarameistarann og ráðfærðu þig við hann um val á tertu og útfærslu Bjóðum upp á af Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Bandaríkjastjórn hefur tilkynnt að komið verði upp eldflaugavörnum í herstöð á eyjunni Guam í Kyrra- hafi eftir að stjórnvöld í Norður- Kóreu hótuðu kjarnorkuárás á Bandaríkin. Sérfræðingar í örygg- ismálum telja að Norður-Kóreu- menn geti ekki skotið eldflaugum á meginland Bandaríkjanna en geti hins vegar skotið meðaldræg- um flaugum á bandarískar her- stöðvar í Asíu og Kyrrahafi. Chuck Hagel, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, segir að Bandaríkjastjórn taki hótanir Norður-Kóreumanna alvarlega þar sem þeir hafi sýnt að þeir geti sprengt kjarnorkusprengjur og skotið langdrægum eldflaugum. Bandaríkjunum stafi því „raun- veruleg og skýr hætta“ af vopnum Norður-Kóreumanna vegna hótana og herskárrar framgöngu þeirra síðustu vikurnar. Bandaríkjaher hyggst setja upp gagnflaugabúnað af gerðinni THAAD á Guam og gert er ráð fyrir að það taki nokkrar vikur. Guam tilheyrir Bandaríkjunum, er um 3.380 kílómetra suðaustur af Norður-Kóreu. Um 6.000 manna bandarískt herlið er með bæki- stöðvar á eyjunni, auk kafbáta og sprengjuflugvéla. Áður hafði Bandaríkjaher sent herskip að Kóreuskaga með gagn- flaugabúnað sem hægt væri að nota til að skjóta niður norðurkór- eskar eldflaugar. Eldflaug skotið yfir Japan 15. apríl? Her Norður-Kóreu tilkynnti í fyrrakvöld að hann hefði fengið „endanlega heimild“ frá stjórn- völdum til að gera eldflaugaárás á Bandaríkin, hugsanlega með kjarnavopnum. „Stund spreng- ingarinnar nálgast óðum,“ sagði í tilkynningu frá hernum sem ýjaði að því að hann réði yfir kjarnaodd- um sem væru nógu litlir og léttir til að hægt væri að beita þeim með langdrægum eldflaugum. Sérfræð- ingar í öryggismálum telja þó ólík- legt að Norður-Kóreumönnum hafi tekist að þróa slíka kjarnaodda. Stjórnvöld í Suður-Kóreu skýrðu frá því að stjórnin í Pyon- gyang hefði látið flytja meðal- dræga eldflaug á austurströnd Norður-Kóreu. Talið er að flaugin sé af gerðinni Musudan-1 sem dregur allt að 3.000 kílómetra. Hægt væri að skjóta henni á Suður-Kóreu eða Japan en ekki á Guam-eyju, að sögn sérfræðinga í öryggismálum. Varnarmálaráðherra Suður-- Kóreu, Kim Kwan-Jin, sagði á þingi landsins að ekki væri vitað hvort eldflaugin væri með sprengi- hleðslu. „Markmiðið gæti verið að skjóta henni í tilraunaskyni eða nota hana á heræfingu,“ sagði varnarmálaráðherrann. Fréttastofan Yonhap hafði eftir heimildarmönnum sínum í leyni- þjónustu Suður-Kóreu að Norður- Kóreumenn kynnu að skjóta eld- flauginni 15. apríl, á afmælisdegi Kim Il-Sung, fyrsta leiðtoga Norður-Kóreu og afa núverandi leiðtoga. Nokkrir fréttaskýrendur hafa spáð því að Norður-Kóreumenn fylgi herskáum yfirlýsingum sínum eftir með því að skjóta eldflaug yf- ir Japan. Þeir telja ólíklegt að Norður-Kóreumenn vilji í raun og veru hefja allsherjarstríð gegn Bandaríkjunum en líklegra sé að þeir grípi til takmarkaðra, ögrandi aðgerða til að sýna hernaðarmátt sinn og reyna að bjarga andlitinu eftir allar stríðsyfirlýsingarnar. Taldir vilja friðarviðræður Enginn veit þó með vissu hvað Kim Jong-Un, leiðtoga Norður-- Kóreu, gengur til og varað hefur verið við því að einhvers konar mistök geti orðið til þess að allt fari í bál og brand. „Spurningin er hvort Kim, sem er ungur og óreyndur, viti hvern- ig taka eigi á þessari stigmögn- uðu spennu. Hvernig lýkur þessu? Það er spurning sem vert er að hafa áhyggjur af,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Yun Duk- Min, prófessor í alþjóðastjórn- málum í Seoul og sérfræðingi í málefnum Norður-Kóreu. Nokkrir fréttaskýrendur telja að meginmarkmiðið með þessum hótunum sé að knýja Bandaríkja- stjórn til að hefja viðræður um friðarsamning við Norður-Kóreu- menn. „Þeir virðast telja að þeir verði ekki teknir alvarlega fyrr en þeir geti hafið viðræður um þetta mál og notað verulegan hernaðarstyrk sér til framdrátt- ar,“ hefur BBC eftir Andreu Ber- ger, breskum sérfræðingi í bar- áttunni gegn útbreiðslu kjarna- vopna. Hótun svarað með gagnflaugum Eldflaugar Norður-Kóreu Heimildir: AFP/KDM/Global Security Norður-Kóreumenn hafa þróað margar gerðir eldflauga og flugskeyta á síðustu árum 1.500 km 500 km 4.000 km 6.000 km ELDFLAUGATEGUNDIR 300 km Tilbúin til notkunarScud-B 500 km Tilbúin til notkunarScud-C 1.300 km Tilbúin til notkunarRodong 2.500 km Tilraunaskot 1998 (mistókst) Taepodong-1 3.000 km 120 km Í þróunMusudan-1 A.m.k. 17 tilraunaskotKN-02 6.700 km Flaug af þessari gerð var flutt á austurströnd Norður-Kóreu Taepodong-2 100 km SUÐUR- KÓREA NORÐUR- KÓREA SEOUL PYONGYANG Tongchang-ri Musudan-ri Þekktar eldflauga- skotstöðvar Burðarflaug af gerðinni Unha-3, sem líkist Taepodong-2, var skotið í geiminn 12. desember sl. Fjarlægð frá Norður-Kóreu  Bandaríkin efla eldflaugavarnir sínar vegna stríðsyfirlýsinga N-Kóreumanna sem hafa hótað að beita kjarnavopnum  Eldflaug flutt að austurströnd N-Kóreu, hugsanlega til að skjóta henni yfir Japan „Algjörlega óviðunandi“ » Rússneska stjórnin for- dæmdi í gær hótanir og að- gerðir Norður-Kóreumanna og lýsti þeim sem „algjörlega óviðunandi“ brotum á álykt- unum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. » Talsmaður rússneska utan- ríkisráðuneytisins sagði að framganga Norður-Kóreu- manna hefði „torveldað, ef ekki útilokað möguleikann á að hefja viðræður að nýju“ um frið á Kóreuskaga. Dansmærin Karima El-Mahroug, sem kallar sig „rúbínrauða hjartaþjóf- inn“, efndi til mótmæla í gær við dómhús í Mílanó til að neita því að hún hefði þegið peninga fyrir að hafa kynmök við Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, þegar hún var undir lögaldri. Berlusconi hefur verið sóttur til saka vegna málsins og Mahroug mótmælti því að hún skyldi ekki hafa fengið að bera vitni. AFP Hjartaþjófurinn mótmælir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.