Morgunblaðið - 05.04.2013, Page 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013
Frá ómunatíð hafa
menn litið á ellina sem
óhjákvæmilegt böl ef
menn næðu að lifa til
elliára. Færri eru þeir
lofsöngvar sem sungn-
ir hafa verið um feg-
urð ellinnar en þeir
sem sungnir hafa verið
um böl hennar. Höf-
undur einn hefur sagt:
„Það sem gerir ellina
svo dapurlega er ekki
það að gleði vor hverfi heldur hitt
að vonir vorar deyja.“ Annar hef-
ur sagt: „Gamall kristinn maður
með mjöll tímans á höfði minnir
oss á að þeir hlutar jarðar eru
hvítastir sem næstir eru himn-
inum.“ Mottóið er: „Bætum lífi við
árin. Ekki einungis árum við lífið.“
Samtök aldraðra verða auðvitað
aldrei ellihrum eða hvítfaxa, en
eiga sér mjöll tímans að baki.
Stórir velferðaráfangar á 40 ára
starfsferli hafa skapað samtök-
unum virðulegan sess í samfélagi
sjálfsprottinna stuðningssamtaka
eldri borgara. Síðustu ár hafa ekki
verið skjólsöm fyrir samtökin og
árangur lítill í samstarfi við
Reykjavíkurborg.
Þótt hundruð atvika hafi verið á
verkefnaskrá framtíðarverka var
mikill tími notaður án mikils ár-
angurs. Vonir vorar
eru þó enn skýrar og
ekki dauðar, þær
munum við eiga eins
og helgur maður gaf
okkur með upprisu
sinni.
En vonandi og
þrátt fyrir allt hefur
verið lagður kjölur
að einhveri framtíð-
arfleytu samt sem
áður.
Þess vegna vilja
samtökin nota þessi
merku tímamót, 40
ára starfsafmælið, til að koma á
framfæri miklu þakklæti og virð-
ingu Samtaka aldraðra til handa
Reykjavíkurborg, kjörnum fulltrú-
um í borgarstjórn, embætt-
ismönnum og starfsmönnum borg-
arinnar fyrir gott og árangursríkt
samstarf og samvinnu næstum öll
þessi 40 ár.
Í Morgunblaðinu 3.4. 2013 var
viðtal við formann samtakanna í
tilefni þess að borgarfulltrúar
sjálfstæðismanna höfðu lagt fram
tillögu um að borgin einhenti sér í
að hafa tiltækar lóðir fyrir þjón-
ustuíbúðir fyrir aldraða, en þar
kom fram að Samtökum aldraðra
hefur gengið erfiðlega að fá lóðir í
Reykjavík síðustu ár. Formað-
urinn sagði að „félagið hafi fengið
lóðina Sléttuveg 29-31 afhenta í
ársbyrjun 2009 og hófust fram-
kvæmdir þá þegar og þeim lauk á
áætluðum tíma og kostnaði sem
var verulega undir áætluðu verði,
þrátt fyrir kreppu og kulda á fast-
eignamarkaði“.
„Síðan höfum við ekki fengið
svör við óskum um lóðir sem við
höfum sótt um,“ segir formað-
urinn í umfjöllun um mál þetta í
Morgunblaðinu í dag. Hann sagði
„að um 4-5 lóðir væri að ræða“.
Samtök aldraðra eiga 40 ára
starfsafmæli nú í marsmánuði,
hafa byggt 443 íbúðir, þar af 415
í Reykjavík. Nú er í byggingu 28
íbúða hús í Kópavogi.
Fulltrúar Samfylkingar og
Besta flokksins vildu ekki sam-
þykkja tillöguna en lögðu til að
henni yrði vísað til skoðunar
starfshóps um innleiðingu hús-
næðisstefnu Reykjavíkurborgar.
Sjálfstæðismenn féllust á það en
létu bóka: „Borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins telja að borg-
arstjórn hefði átt að samþykkja
fyrirliggjandi tillögu um aukið
lóðaframboð vegna þjónustuíbúða
fyrir eldri borgara í Reykjavík í
stað þess að vísa henni til skoð-
unar í borgarkerfinu enda alls-
endis óvíst hvenær þeirri skoðun
lýkur. Þeir samþykkja hins vegar
málsmeðferðartillöguna í trausti
þess að unnið verði að málinu án
tafar og niðurstaða fáist fljótlega,
sem leiði til jákvæðrar niðurstöðu
í þágu húsnæðismála eldri borg-
ara í Reykjavík.“
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks, fór yfir
stöðuna í framsöguræðu sinni.
Hann sagði brýnt að bæta úr
skorti á þjónustuíbúðum fyrir
eldri borgara í Reykjavík og það
gæti borgin gert í samstarfi við
þau byggingarfélög eldri borgara
sem nú þegar hefðu látið að sér
kveða í málaflokknum og byggt
mörg hundruð íbúðir.
Hann sagði einnig að til þess að
slíkt átak væri mögulegt þyrfti
borgin að úthluta lóðum undir
slíkar byggingar. Þeim þjón-
ustuíbúðum, sem teknar hefðu
verið í notkun á undanförnum ár-
um, væru á lóðum, hefði verið út-
hlutað á síðasta kjörtímabili. Eng-
um lóðum hefði hins vegar verið
úthlutað á þessu kjörtímabili.
Mottóið „að bæta lífi við árin“
hefur svo sannarlega verið upp-
fyllt og gráu hárunum hefur fjölg-
að í strögglinu við núverandi
meirihluta, en „árin við lífið hafa
verið og verða ansi lengi að líða“
enda allsendis óvíst hvenær skoð-
un skoðunarnefndarinnar lýkur, ef
að líkum lætur.
Samtök aldraðra eru mjög
þakklát sjálfstæðismönnum í
borgarstjórn og framsögumanni,
Kjartani Magnússyni, fyrir tillög-
una og bókun þeirra er skiljanleg,
en löngu er tímabært að afgreiða
frá borgaryfirvöldum framsettar
óskir samtakanna um lóðir.
Það eru 400-500 manns í okkar
samtökum sem vonast eftir íbúð-
um í félagskerfinu. Þetta er nú-
verandi meirihluta vel kunnugt.
„Það sem gerir ellina svo dap-
urlega er ekki það að gleði vor
hverfi heldur hitt að vonir vorar
deyja,“ hugsa sjálfsagt margir
þeirra og raula um leið fágætan
lofsöng um fegurð ellinnar til upp-
örvunar í biðinni.
Þetta er ekkert sem hefur ekki
skeð áður í okkar ranni. Það er
ekkert mál að leysa þennan vanda
ef meirihlutinn hefði áhuga á að
leysa hann. Vandamálasmíð og
viðhald vandamála er sérgrein ís-
lenskra stjórnmála. Það er alltaf
gaman að þrætubókinni, sagði
Kiljan.
Bætum lífi við árin meðan við bíðum
Eftir Erling Garðar
Jónasson » Samtök aldraðra eru
mjög þakklát sjálf-
stæðismönnum í borg-
arstjórn og framsögu-
manni, Kjartani
Magnússyni, fyrir tillög-
una.
Erling Garðar
Jónasson
Höfundur er formaður
samtaka aldraðra.
Móttaka
aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi
umræðu í landinu og birtir aðsend-
ar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Kerfið er auðvelt í notkun og
tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og
höfunda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar eru
á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn "Senda inn grein" er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til að
opna svæðið. Hægt er að senda
greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfs-
fólk Morgunblaðsins alla virka
daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.
ford.is
Ford Focus Trend Edition 5 dyra, 1,0 EcoBoost bensín 125 hö. 6 gíra beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 5,0 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 114 g/km., fær frítt í stæði í Reykjavík í 90
mín. í senn. Miðað er við grænan óverðtryggðan bílasamning til 7 ára og uppítökubíl / útborgun að verðmæti 1.750.000 kr. Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Hlutfallstala kostnaðar 10,70%.
Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu.
*Ford Focus er söluhæsti bíll í heimi árið 2012miðað við þær staðfestu sölutölur sem liggja fyrir (jan-sept).
*
Vinsælasti bíll heims í nýrri útfærslu
FORDFOCUSTRENDEDITION
Ford Focus, söluhæsti bíll í heimi árið 2012, er nú fáanlegur í nýrri útfærslu.
16“ álfelgur eru undir bílnum og sérstakt Trend Edition áklæði á sætum.
Loftkæling, öflug aksturstölva, regnskynjari í framrúðu og blátannarbúnaður
eru einnig til staðar. Til viðbótar hefur verið hugað að fjölmörgum praktískum
atriðum, svo sem sjálfvirkri dimmingu á baksýnisspegli og sniðugri hurðavörn.
Komdu í Brimborg í dag og kynntu þér vinsælasta bíl heims árið 2012.
FORD FOCUSTRENDEDITION 5DYRA FRÁ 3.490.000KR.
FORD FOCUSTRENDEDITIONSTATION FRÁ 3.640.000KR.
FRÁ
FORD FOCUS
TREND EDITION
29.198KR./MÁN
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/