Morgunblaðið - 05.04.2013, Side 35
UMRÆÐAN 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013
Í fremstu röð
í 20 ár...
Humarhúsið
101 Reykjavík · humarhusid@humarhusid.is
Amtmannsstíg 1 sími: 561·3303
Eiður Mar og félagar unnu
hraðsveitakeppni BK
Fjórða og síðasta kvöldið í hrað-
sveitakepni Bridsfélags Kópavogs
var spilað fimmtudaginn 21. mars.
Hvorki gekk né rak hjá Eiði Mar og
hans sveitungum þetta kvöld og
fengu þeir lægsta skorið af sveitun-
um ellefu en það dugði þó til sigurs
því Guðlaug Bessason og félaga
vantaði 13 stig til að ná efsta sætinu.
Lokastaða efstu sveita varð þessi.
Eiður Mar Júlíusson 23332.
Guðlaugur Bessason 23213.
Björn Halldórsson 22444.
Þorsteinn Berg 21975.
Eldri borgarar Hafnarfirði
Föstudaginn 22. mars 2013 var
spilað á 14 borðum hjá FEBH (Félag
eldri borgara í Hafnarfirði) með eft-
irfarandi úrslitum í N/S:
Bjarnar Ingimars – Bragi Björnsson 374
Albert Þorsteinsson – Björn Árnason 357
Örn Ísebarn – Örn Ingólfsson 352
Friðrik Hermanns. – Guðlaugur Ellerts. 331
Jón Sigvaldason – Katarínus Jónsson 320
A/V:
Helgi Sigurðss. – Þorvaldur Þorgrímss. 378
Ólöf Hansen – Alma Jónsdóttir 370
Ásgr.Aðalsteinss. – Steinmóður Einars. 358
Bergljót Gunnarsd. – Jón Hákon Jónss. 345
Sverrir Jónsson – Óli Gíslason 342
Lögfræðistofan með örugga
forystu hjá Bridsfélagi
Reykjavíkur
Að loknum 5 kvöldum af 6, þá hef-
ur sveit Lögfræðistofu Reykjavíkur
forystu. 50 stig eru í pottinum næsta
þriðjudag. Allt getur gerst.
Staðan:
Lögfræðistofa Íslands 206
Málning 186
Garðsapótek 174
Karl Sigurhjartarson 173
Grant Thornton 167
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Í greininni lýsir
Helgi ágætlega við-
horfum þeirra sem
hlynntir eru vísi-
tölubindingu lána.
Ég er ósammála hon-
um um margt.
Helgi segir „að
eðlilegt sé að borga
vexti svipað og að
borga fyrir leigu á
hverjum öðrum
hlut“. Hann segir ekki hvað hon-
um finnst sanngjörn leiga fyrir
peningana en það er lykilatriði. Ef
við hugsum okkur að vísitalan telji
þetta „sama“ rétt, þá þýða 4,7%
vextir á 40 ára jafnborgunarláni
að aðili sem fær lán fyrir 80% af
verði íbúðar, verður að borga
þessi 80% til baka „það sama“ og
að auki nærri eina íbúð í vexti.
55% lækkun á höfuðstól á nýju
láni myndi þrátt fyrir niðurfærsl-
una, skila allri lánsupphæðinni
vísitölutryggðri til baka. Væru
vextir vísitölulána 0,50-0,75% gæti
stærsti hluti lántakenda, sem í dag
eru í vandræðum, staðið í skilum.
Helgi spyr hvort þeim sem eru
á móti vísitölunni finnist ekki
sanngjarnt að þeir sem fái lán
borgi sömu verðmæti til baka. Ef
um væri að ræða sykurpoka væri
svarið mitt einfaldlega já. En
þetta með að borga fleiri krónur
en menn fá lánaðar er flóknara.
Einu sinni voru peningar ávísun
á gull. Það hafa komið upp hug-
myndir um að við ættum að taka
aftur upp peninga með föstum
grunni. Það mætti þannig hugsa
sér peninga sem við gætum kallað
hráefnadali. Hver hráefnadalur
væri ávísun á markaðsvirði hrá-
efnapakka með gulli, járni, áli,
hveiti, olíu, kolum o.s.frv. Þannig
gætu skuldbindingar verið með
fastan grundvöll. Þannig grund-
völlur væri mögulegur en alls ekki
praktískur. En ef við setjum í
grunninn framleidda hluti eins og
bíla, sjónvörp, hvað þá tölvur þá
erum við komin í ógöngur. Það er
ekki bara að verð hluta breytist
heldur breytist eðli hlutanna. Bílar
í dag eru allt aðrir en þeir voru og
verða í framtíðinni. Samanburður
á verðmæti staðaltölvu frá einum
tíma til annars er beinlínis ómögu-
legur. Við höfum vísitölu sem
byggir á verði margra hluta, alls-
konar mat og þjónustu sem tíndir
eru í körfu sem heitir með-
alneysla. Þessi fasti punktur
breytist stöðugt miðað við neyslu
undanfarinna ára sem gerir þenn-
an heim vísitölunnar algerlega fá-
ránlegan.
Grunnurinn að þessu „sama“ er
hrein froða. Það að skipta þessari
vísitölu út fyrir einhverja aðra er
heldur ekki lausnin.
En gefum okkur samt að þessi
froða geri lánaviðskipti réttlát og
förum í húsnæðisgeirann þar sem
vísitölulán eru mikið notuð.
Skömmu áður en húsnæðisbólan
sprakk 2007 er stórt einbýlishús
selt í Reykjavík á 61 miljón. 60
milljónir eru settar á bók. Sá sem
kaupir getur ekki haldið húsinu og
selur það aftur rúmum tveimur ár-
um seinna. Sorgarsaga svo við
sleppum henni. Sá sami og seldi
húsið 2007 kaupir það aftur 2009 á
48 milljónir. Hann á nú húsið, 12
milljónir plús 3% vexti, mínus
skatt eða 15 milljónir. Svona er nú
bara markaðurinn, hús falla og
hækka í verði. Þeir forsjálu græða
og ekkert athugavert við það. En
við eigum eftir að gera þessi við-
skipti réttlát með því að bæta vísi-
tölunni á innistæðuna. Þar koma
15,5 milljónir mínus skattur eða 14
milljónir. 60 milljónir hafa eftir
tveggja ára hvíld í
bankanum skilað hús-
inu og 29 milljóna af-
gangi. En réttlætið
virkar ekki bara í aðra
áttina. Fyrst þetta er
réttlátt hefði á sama
hátt verið réttlátt að
peningarnir hefðu
rýrnað við dvölina í
bankanum. Viðkom-
andi hefði selt húsið á
40 milljónir og haft
peningana án trygg-
inga í banka og keypt það aftur á
60 milljónir eftir tvö ár. Svar
þeirra sem aðhyllast vísitölu og
hinna sem gera það ekki hlýtur
þannig að vera það sama; að það
fari eftir aðstæðum hvort það sé
hægt að kaupa meira eða minna
fyrir krónuna frá einum tíma til
annars, að hvort tveggja sé rétt-
látt. Þegar það verður hrun er
eðlilegt að peningar tapi verðgildi.
Ég er Helga sammála um að
ástand efnahagsmála hefur gegn-
um tíðina oft verið slæmt hér á
landi. Vond fortíð þarf ekki að
þýða eilífa vanhæfni til að stýra
efnahag af skynsemi eins og Þjóð-
verjar hafa sýnt fram á.
Helgi talar um að við höfum
tvær leiðir, annarsvegar skyn-
samlega efnahagsstjórnun og hins-
vegar vísitölubindingu. Það undrar
mig að einhver sem komist hefur
að þeirri niðurstöðu að góð stjórn-
un efnahagsmála dugi til að við-
halda með viðunandi hætti verð-
mæti peninga, skuli vilja bjóða
upp á vonda stjórnun, stjórnun
sem þurfi vísitölubindingu til að
viðhalda verðgildinu. Vond efna-
hagsstjórn grefur ekki bara undan
verðgildi peninganna, hún grefur
undan möguleikum þjóðfélagsins á
miklu fleiri sviðum. Eitthvað sem
vísitölubinding getur á engan hátt
bætt.
Það hafa ýmsir þar á meðal
Jörgen Person bent á að vísi-
tölubindingin framleiðir verðbólgu.
Ég held að hún skapi líka falskt
öryggi. Saman eru vísitölubinding,
háir vextir og ríkisábyrgðir ban-
vænn kokteill. Þessi blanda blæs
út tölur sem sagðar eru ávísun á
verðmæti, verðmæti sem raun-
hagkerfið getur að lokum ekki
staðið undir. Annað hrun yrði
skelfilegt.
Ísland gæti orðið fyrirmynd-
arríki í stjórnun efnahagsmála en
það vantar almenna trú á að það
sé leiðin.
Hugleiðingar um
grein Helga Laxdal
um vísitölu
Eftir Gunnar
Einarsson
Gunnar Einarsson
» Þann 3. janúar skrif-
aði Helgi Laxdal
greinina Leikmanna-
þankar um verðtrygg-
ingu. Ég er Helga ósam-
mála um margt.
Höfundur er skuldlaus bóndi á Daða-
stöðum í Núpasveit.
- með morgunkaffinu
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift