Morgunblaðið - 05.04.2013, Síða 46
46 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013
✝ Hannes Guð-mundsson
fæddist 26. júní
1916 á Ísafirði.
Hann andaðist á
Landspítalanum í
Fossvogi 27. mars
2013.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Hallgrímur Lúther
Hannesson, bæjar-
fógeti á Siglufirði,
f. 17.3. 1881, d. 14.9. 1970 og
Friðgerður Rannveig Guð-
mundsdóttir, húsmóðir á Siglu-
firði, f. 19.10. 1887, d. 9.5. 1973.
Systkini Hannesar voru Garðar,
f. 17.10. 1919, d. 3.3. 1991, Jór-
unn Ásta, 1.12. 1921, d. 8.3. 2008,
Hallgrímur, f. 1.7. 1923, d. 10.2.
1950.
Hannes kvæntist 25.11. 1950
Guðrúnu Kristjánsdóttur, stúd-
ent frá MR 1941, f. 5.2. 1922, d.
21.5. 2003. Foreldrar hennar
voru Kristján Siggeirsson, for-
stjóri í Reykjavík, f. 26.2. 1894, d.
20.5 1975, og Ragnhildur Hjalta-
dóttir húsmóðir, f. 30.4. 1899, d.
16.5 1972. Börn þeirra: a) Ragn-
hildur, 7.10. 1951, skrif-
stofumaður hjá ÍAV. Maki Gylfi
Gunnlaugsson bókmenntafræð-
ingur. Börn þeirra: Sigrún BA í
efnafræði HÍ, f. 1988. d) Guðrún,
f. 14.4. 1964, MA í uppeldis- og
menntunarfræðum og kennari,
maki Guðmundur Þór Þórhalls-
son framkvæmdastjóri. Börn
þeirra eru Hannes f. 1994, versl-
unarskólanemi og Styrmir, f.
1995, verslunarskólanemi.
Hannes ólst upp á Siglufirði.
Var gjaldkeri við Útvegsbanka
Íslands á Siglufirði 1941-42.
Fulltrúi bæjarfógetans á Siglu-
firði 1942-1948. Flutti til Reykja-
víkur 1948. Var héraðsdóms-
lögmaður í Reykjavík 1948-1953.
Fulltrúi í utanríkisráðuneytinu
1953, skipaður 1955 í varnar-
máladeild utanríkisráðuneytis-
ins og varð sendifulltrúi 1. jan.
1981. Hannes var stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri
1936, cand. juris frá Háskóla Ís-
lands 1941. Formaður Orators,
félags lögfræðistúdenta, 1939.
Hannes kom að ýmsum atvinnu-
rekstri, hélt úti síldarverkun á
Siglufirði, var með innflutning á
ýmsum tegundum léttvína, var
einn af stofnendum Vírnets í
Borgarnesi og sat þar í stjórn í
mörg ár. Var með umboð fyrir
gæðaeftirlit fyrir kaupendur á
íslenskum afurðum til útflutn-
ings. Þá studdi hann ýmis ný-
sköpunarverkefni og vann við að
afla einkaleyfa vegna þeirra.
Hannes fékk riddarakross hinn-
ar íslensku fálkaorðu 1.1. 1976.
Útför Hannesar fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 5.
apríl 2013, og hefst athöfnin kl.
15.
þjóðfræði, f. 1976,
Auður, f. 1983, d.
1983 og Árni, kvik-
myndagerð-
armaður, f. 1984,
maki Birna Björns-
dóttir förðunar-
fræðingur, f. 1986.
b) Gerður, f. 11.5.
1954, BA í dönsku,
framhaldsskóla-
kennari. Maki:
Gunnar O. Skapta-
son framkvæmdastjóri. Börn
þeirra: Hannes, BS í hótel-
fræðum, f. 1977, maki Joy
Chang, BS í hótelfræðum, MSc í
alþjóðaviðskiptum, f. 1975; Helgi
viðskiptafræðingur, f. 1982,
maki Kasia fjölmiðlafræðingur,
f. 1978, sonur þeirra Henry;
Halldór, f. 1990, nemi í HÍ; Hörð-
ur, f. 1990, nemi í HÍ. c) Edda, f.
22.1. 1957, sálfræðingur. Maki
Einar Snorri Sigurjónsson fram-
kvæmdastjóri. Börn þeirra eru
Guðrún Birna, BA í sálfræði og
MA í mannauðsstjórnun, f. 1982,
maki Einar Garðarsson, raf-
magnstæknifræðingur, f. 1975.
Dætur þeirra eru Edda María,
dóttir óskírð og fyrir átti Einar
Brynju Mjöll. Ragnar viðskipta-
fræðingur, f. 1988, maki Linda
Benediktsdóttir, nemi í líf-
Í dag verður Hannes Guð-
mundsson tengdafaðir minn og
vinur lagður til hinstu hvílu. Við
höfum átt samleið í yfir þrjátíu
ár. Á þessum tíma höfum við
Edda ásamt börnum okkar átt
ótal dýrmætar samverustundir
með Hannesi og Núru tengda-
móður en hún lést fyrir 10 árum.
Á þessari stundu streyma fram
minningar um mann sem var al-
veg einstakur á svo margan hátt.
Núru og dæturnar umvafði hann
með alúð og hlýju alla tíð og þeg-
ar fjölskyldan stækkaði fengu
nýir meðlimir fjölskyldunnar að
njóta þess.
Hannes naut þess að gera sér
glaðan dag og þá með fjölskyldu
sinni. Hann til að mynda bauð
öllum dætrum sínum, tengdason-
um og barnabörnum til útlanda í
tilefni af 70 ára afmæli sínu og
sama sagan var endurtekin þeg-
ar hann var 90 ára. Stórafmælin
voru því notuð til að gera sér
glaðan dag með fjölskyldunni,
ekki bara einn dag heldur
marga. Hin síðari ár bauð hann
dætrunum og tengdasonum til
skiptis með sér og ég held að það
hafi hann gert til að geta farið
nógu oft til útlanda. Hann hafði
svo mikla gleði af ferðalögum að
þegar ein var búin var byrjað að
skipuleggja þá næstu. Á veit-
ingastöðum hafði hann gaman af
því að panta eitthvað óvenjulegt
sem vakti kátínu okkar hinna,
enda oft um að ræða framandi
rétti sem enginn þorði að panta
nema hann.
Um leið og sólin tók að skína
var Hannes kominn út á svalir til
að njóta þess að vera útivið. Á
innan við hálftíma var hann orð-
inn brúnn og sællegur. Hann
þróaði með sér sérstaka samn-
ingatækni þegar dæturnar og
Núra voru að leiðbeina honum.
Hann sagði bara „já er það“.
Hann var til í allt, óhræddur við
breytingar og tileinkaði sér allt
það nýjasta hverju sinni.
Þegar Hannes var 18 ára og
þurfti að láta vita af sér þar sem
honum hafði seinkað heimför úr
veiðiferð í Fljótunum voru tveir
bæir með sveitasíma. Núna þeg-
ar hann var 96 ára tók hann far-
símann upp til að hringja hvar og
hvenær sem er. Mér er minn-
isstætt þegar ég og Edda vorum
að skjóta okkur saman og ég
kom í heimsókn, þá lét hann okk-
ur vita hvenær tími væri kominn
til að fara heim með því að fara í
frystikistuna og hræra til í
henni, en hún var í næsta her-
bergi. Þá ræskti hann sig þannig
að undir tók. Skilaboðin voru
skýr og vinsamleg.
Hannes ræddi oft við okkur
um uppruna sinn. Sú saga er öll
mjög merkileg og lét hann Ragn-
ar son okkar taka hana upp.
Ómetanlegt framtak. Hann hafði
brennandi áhuga á þjóðfélags-
málum. Athafnasemi hans var
einstök. Sem ungur maður á
Siglufirði þar sem hann ólst upp
tók hann þátt í síldarævintýrinu
með því að vera með eigið síld-
arplan. Þá rak hann þar einnig
vefnaðarvöruverslun á þessum
tíma. Síðar varð hann umsvifa-
mikill í innflutningi á léttvínum
og var m.a. umboðsmaður fyrir
spænska vínframleiðandann Tor-
res. Hann var einn af stofnend-
um Vírnets í Borgarnesi og sat
þar í stjórn í áratugi, og þannig
mætti lengi telja. Hans aðalstarf
var hjá utanríkisráðuneytinu þar
sem hann var sendifulltrúi á
varnarmálaskrifstofu og var í
varnarmálanefnd, sennilega
lengst allra. Hann er fyrirmynd
allra afkomenda sinna. Blessuð
sé minning hans.
Einar Snorri Sigurjónsson.
Við fráfall Hannesar Guð-
mundssonar tengdaföður míns
leita minningarnar hart að
manni enda kynntist ég Hannesi
ungur að árum og við áttum
langa og ánægjulega vegferð
saman.
Það fylgdi Hannesi alla tíð að
hafa verið uppalinn á Siglufirði, á
einhverjum mestu uppgangstím-
um nokkurs bæjarfélags á land-
inu. Óendanlegur áhugi á at-
vinnulífi og rekstrarmöguleikum
var nokkuð sem hann smitaði
mann með í gegnum tíðina. Þótt
hann gegndi mikilvægu embætti
í varnarmáladeild utanríkisráðu-
neytisins lagði hann gjörva hönd
á uppbyggingu ýmiss konar at-
vinnureksturs meðfram þeim
störfum.
Hann átti öflugt tengslanet
erlendis og lagði ríka áherslu á
að rækta þau sambönd sem best.
Þannig eyddi hann drjúgum tíma
í ferðalög til útlanda og átti þar
marga kunningja og vini, sem
þurfti að heimsækja reglulega.
Þótt aldurinn færðist yfir og
Hannes léti af störfum í utanrík-
isþjónustunni minnkaði áhuginn
á þessum erlendu tengslum ekk-
ert. Þannig varð það í nokkur
skipti að Hannes hafði veður af
því að ég þyrfti að bregða mér
utan starfa minna vegna, að
hann stakk upp á því að við yrð-
um samferða og hann sinnti sín-
um erindum jafnhliða. Þannig
fórum við saman nokkrar ferðir
t.d. til Frankfurt þar sem ég
þurfti að fara á sýningu. Hannes
fór náttúrlega með mér á sýn-
inguna og vann hug og hjarta
allra þeirra sem við hittum og
hef ég æ síðan verið spurður
frétta af honum, af því fólki sem
við hittum.
Hannes hafði alla tíð mikinn
áhuga á velferð barna sinna og
barnabarna og var í nánu sam-
bandi við þau öll. Síðustu árin
hafði hann mikið yndi af því að
dvelja á Bergstaðabakka með
okkur Gerði og hafði ómældan
áhuga og skoðanir á öllum fram-
kvæmdum og uppbyggingu stað-
arins.
Við þessi leiðarlok er þakklæti
og söknuður mér efst í huga, er
ég kveð nú minn ágæta tengda-
föður og vin.
Gunnar O. Skaptason.
Hannes tengdapabbi kvaddi
þessa tilveru eftir viðburðaríka
ævi og vil ég þakka honum sem
yngsti tengdasonurinn þá far-
sælu samfylgd.
Persónuleiki Hannesar hefur
án efa mótast af þeim uppvaxt-
arskilyrðum sem fylgdu því að
vera sonur bæjarfógetans á
Siglufirði á fyrri hluta síðustu
aldar. Frumkvæði og fjölbreytni
til starfa voru einkenni Hannes-
ar alla hans lífstíð.
Samverustundir okkar voru
ófáar og mjög svo ánægjulegar,
en ekki er sjálfgefið að svo sé í
okkar hlutskipti. Við Hannes átt-
um oft líflegar umræður um
þjóðfélagsmál og þau málefni
sem efst voru á baugi hverju
sinni í íslensku efahags- og at-
vinnulífi. Ávallt var þó stutt í hin
alþjóðlegu viðhorf til dýpkunar á
umræðunni, en Hannes var
sannkallaður heimsmaður enda
starfandi í utanríkisþjónustunni í
áratugi. Tilveran er ekki ein-
vörðungu alvara og erfið við-
fangsefni. Þannig var tengda-
pabbi með eindæmum
skemmtilegur selskapsmaður, en
þá naut heimsmaðurinn sín sem
og sveitamaðurinn.
Það er ekki sjálfgefið að halda
reisn og persónuleika sínum þeg-
ar á efri ár er komið. Tengda-
pabba þótti það sjálfsögð skylda
að taka daginn, eins og sagt er,
með því að klæða sig upp, þ.e.
jakkaföt og bindi, auk þess að
rýna vel fréttaefni þann daginn.
Lýsandi fyrir grunngildi og við-
horf Hannesar tengdapabba.
Blessuð sé minning hans.
Guðmundur Þ. Þórhallsson.
Elsku afi. Þegar ég hugsa til
þín eru mér helst minnisstæðar
þær góðu stundir sem við áttum
saman þegar við tókum upp þín
helstu æviágrip þar sem þú sast
fyrir framan myndavélina og
sagðir sögur. Það var mér dýr-
mæt reynsla að kynnast því
hversu duglegur og mikinn drif-
kraft þú hafðir. Þær eru margar
góðar sögurnar sem þú sagðir
fyrir framan upptökuvélina á
meðan ég hlustaði gaumgæfilega
og drakk í mig visku þína og
reynslu. Sögurnar voru þó oft á
tíðum þannig að við réðum ekki
við okkur og skelltum upp úr, ég
ýtti á pásu og spurði: „Afi, gerð-
ist þetta í alvöru“ og að sjálf-
sögðu var það þannig.
Ekki má gleyma að nefna öll
ferðalögin til Berlínar og 90 ára
afmælið í Titisee, Svartaskógi.
Þetta voru ógleymanleg ferðalög
og hótelin flott. Ég man alltaf
eftir því þegar við deildum sam-
an svítu á Hotel Kempinski í
Berlín þar sem ég hafði bað fyrir
mig og einhverjum 20 metrum
innar í svítunni varst þú með
þína aðstöðu, ótrúleg upplifun
fyrir ungan peyja frá Reykjavík.
Ég er virkilega glaður með að
Linda hafi fengið að kynnast þér
en hún eins og svo margir aðrir
talar sérstaklega um það hvað þú
varst alltaf flottur til fara, sagðir
skemmtilegar sögur og varst
rausnarlegur.
Afi minn, nú ert þú kominn til
ömmu Núru þar sem þið getið
rifjað upp öll hlátursköstin,
ferðalögin og góðu stundirnar
sem þið áttuð saman með dætr-
um ykkar og fjölskyldu. Það er
mikill söknuður að þessum vel
klædda, góða og örláta afa sem
vildi öllum svo vel.
Þinn vinur og barnabarn,
Ragnar Einarsson.
Elsku afi, nú er komið að
kveðjustund, en minningar um
þig munum við geyma í hjarta
okkar. Þú varst alltaf mikill per-
sónuleiki, og það skapast mikið
tómarúm nú þegar þinnar kröft-
ugu nærveru nýtur ekki lengur
við. Þú varst alltaf með svo mikla
orku og hafðir alltaf mikið fyrir
stafni. Þá gafstu öðrum mikið af
þér, því margir nutu góðs af
hjálpsemi þinni. Okkur barna-
börnunum þótti gaman að koma í
heimsókn og gerðum við mikið af
því, sérstaklega þegar við bjugg-
um á Laugarásveginum. Okkur
er minnisstætt hvað þér þótti
gaman að fá okkur í heimsókn og
hafðir gaman af því að segja sög-
ur, sem við fengum að njóta. Þá
var það merki um gjafmildi þína
hvað þú lagðir mikið upp úr því
að eiga alltaf til eitthvert góð-
gæti handa okkur. Þú ferðaðist
sjálfur mikið, sem kom sér vel
þegar við bjuggum erlendis. Þá
voruð þið amma alltaf svo dugleg
að heimsækja okkur, þannig að
þú fylgdist alltaf vel með okkur.
Þér var ekkert óviðkomandi og
hafðir þú alla tíð áhuga á því sem
var að gerast í kringum þig.
Þessi áhugi á örugglega mikinn
þátt í því að þú hélst fullri reisn
allt þar til yfir lauk og varst vel á
þig kominn þrátt fyrir háan ald-
ur. Við huggum okkur við að þú
lifðir löngu og góðu lífi og að
amma hefur örugglega tekið vel
á móti þér hinum megin. Við er-
um þakklát fyrir að þú hafir ver-
ið hluti af okkar lífi og kveðjum
þig með söknuði.
Sigrún Gylfadóttir,
Árni Gylfason.
Við barnabörnin erum þeirrar
gæfu aðnjótandi að hafa átt flott-
asta afa í heimi. Hann var alltaf
flottur í tauinu, vel með á nót-
unum í sambandi við tísku og
strauma, í jakkafötum með bindi,
með Armani-rakspírann – Ray
Ban-sólgleraugun og „Weber-
inn“ á svölunum, tók ofan fyrir
dömum og svo var hann svo
brúnn að það var alltaf eins og
hann væri nýkominn frá Kanarí.
Ef við vissum ekki hvar afi var
þá hringdum við bara í hann í
gemsann.
Hann var stór hluti af okkar
lífi og við höfum aldeilis upplifað
ýmis ævintýri með honum bæði
hér heima og erlendis í gegnum
árin sem við munum aldrei
gleyma. Hann hefur alltaf verið
mikill höfðingi og ofboðslega
gjafmildur og það sem maður
hefur fengið frá honum í gegnum
árin hefur sko ekki verið neitt
slor.
Nei, hann afi minn keypti sko
ekki neitt drasl. Alveg sama
hvort það var fatnaður eða hlut-
ir, það var alltaf vandað og fín og
góð sort. Alltaf var nóg af öllu í
veislum sem hann hélt og keypti
hann oft einu til tveimur kílóum
meira af kjöti en við þurftum og
sagði svo „heldurðu að þetta sé
nóg?“. Hann var sko mikill grill-
maður og þau voru ófá grillp-
artíin sem voru haldin.
Ég man spenninginn þegar
hann og amma voru að koma frá
útlöndum og maður beið í tröpp-
unum á Laugarásveginum eftir
þeim. Svo komu þau og það var
farið með þrjár, fjórar ferðatösk-
ur niður og þær opnaðar og allir
röðuðu sér upp í röð og fengu föt
eða eitthvert dót. Allir fengu
eitthvað. Svo þegar maður gisti
um helgar var farið með mann út
í sjoppu og keypt kók og súkku-
laði með sjónvarpinu. Hann
hugsaði sko vel um mann.
Fyrir nokkrum árum keypti
afi BMW-sportbíl. Þriggja dyra,
á álfelgum og með topplúgu.
Rosalega flottur bíll. Þá bjó ég
erlendis og gisti á Laugarásveg-
inum þegar ég var á landinu og
fékk stundum bílinn lánaðan.
Svo var ég að rúnta um bæinn og
þá sögðu vinir mínir: „Hannes,
varstu að kaupa þér bíl?“. Þá
sagði ég, „nei, afi minn á hann“.
Það trúði því náttúrlega enginn
og þeir héldu að ég væri að gant-
ast í þeim, jú nema þeir sem
þekktu afa. Þeir trúðu því. Afi
var þá um nírætt. Það eru ekki
margir sem hafa verið í þessum
sporum, ég er viss um það. Já,
hann afi minn var mikill töffari.
Hann var mikill lífskúnstner,
hörkuduglegur og kunni að lifa
lífinu og var alltaf að spá og
spekúlera í ýmsum hlutum og
alltaf var það mikilvægt hjá hon-
um að það gagnaðist hans nán-
ustu og að hans fólk fengi að
njóta.
Hann er mér mikil fyrirmynd
og ég hef alltaf verið stoltur af
honum. Og ég er þakklátur fyrir
þau dýrmætu 36 ár sem ég hef
fengið að njóta með honum.
Takk fyrir mig, elsku afi!
Við söknum þín,
Hannes og Joy.
Hann afi var alveg einstakur
afi. Þegar við bræðurnir litum
við á Laugarásveginum var afi
alltaf að gera eitthvað, hvort sem
hann var að skipuleggja utan-
landsferðir, fara í bankann eða
eitthvað annað. Hann naut þess
að vera á ferðinni, að hafa eitt-
hvað fyrir stafni. Afi var líka
mikill heimsmaður, hann naut
sín í útlöndum og fannst ekkert
eins skemmtilegt og að ferðast.
Oft bauð hann okkur til útlanda,
á stórafmælum eða einfaldlega
þegar hann var í skapi til þess. Í
þessum ferðum var alltaf mjög
gaman að vera með honum enda
alltaf eitthvað að gerast í kring-
um hann. Voru þær ófáar og
skrautlegar sögurnar sem hann
sagði okkur. Þetta lýsir afa mjög
vel, hvað hann var örlátur og
góður afi. Ekki nóg með það að
afi hafi reynst okkur vel heldur
hefur hann einnig verið okkur
bræðrunum mjög góð fyrirmynd.
Við bræðurnir erum honum
mjög þakklátir fyrir allar þær
góðu minningar sem við eigum
um hann.
Takk fyrir allt, elsku afi.
Þínir
Hannes og Styrmir
Guðmundssynir.
Margar góðar minningar
koma upp í hugann þegar mér
verður hugsað til afa Hannesar.
Það er mikil gæfa að kynnast afa
sínum svona vel. Mér eru sér-
staklega minnisstæð öll ferðalög-
in, innanlands og utan, sem ég
fór í með honum og ömmu Núru
ásamt mömmu og pabba þegar
ég var lítil stelpa. Afi og amma
fóru oft um páskana til Timm-
endorfer Strand í Þýskalandi og
ég man eftir að hafa nokkrum
sinnum komið með þeim ásamt
mömmu og pabba.
Það voru dásamlegar ferðir
uppfullar af skemmtilegum
minningum. Í einni slíkri ferð,
þar sem var farið á mjög fínan
veitingastað, var ekkert á mat-
seðlinum sem var nægilega
spennandi fyrir litla dömu, en
mig langaði í hamborgara.
Þjónninn sagði að það væri hægt
að bjarga því. Næst birtist hann
með handsnúna hakkavél og
nautavöðva og spyr hvort litlu
dömunni lítist nógu vel á! Allir
skemmtu sér vel yfir þessari
óvæntu uppákomu, ekki síst afi.
Þetta var án vafa flottasti ham-
borgari sem ég hef fengið á ævi
minni. Þetta lýsir svo vel þínum
stíl, afi minn. Ég held líka að allir
sem kynntust afa hafi tekið eftir
hversu flottur til fara hann var
og svo var hatturinn á sínum
stað og honum lyft þegar heilsa
þurfti. Hann hafði yndi af því að
taka sig vel út og var oft djarfur í
litavali. Ekki margir 96 ára afar
þar sem uppáhaldsskyrtan er
bleik! Hann og amma voru ótrú-
lega fundvís á það sem var nýj-
ast þegar verið var að kaupa á
okkur barnabörnin.
Minningarnar frá Laugarás-
veginum eru margar og ánægju-
legar. Ég var svo lánsöm að fá að
búa þar, niðri í litlu íbúðinni í hér
um bil tvö ár. Þar af bjuggum við
Einar, maðurinn minn, saman í
eitt ár. Einnig bjuggum við með
afa eftir að við fluttum heim frá
Danmörku og gekk sú sambúð
vel enda afi ljúfur og þægilegur í
alla staði. Afa Hannesi og Einari
varð vel til vina og áttum við
margar skemmtilegar stundir
saman og þá sérstaklega við að
hlusta á afa segja frá ýmsum at-
burðum í lífi sínu. Við fengum
líka að kynnast því að afa var al-
veg sama hvort það var mánu-
dagur eða föstudagur þegar kom
að því að hafa rauðvín með matn-
um. Allir dagar voru sannarlega
tilefni til að njóta.
Það er okkur ógleymanlegt að
hafa fengið tækifæri til að eiga
svo margar góðar samveru-
stundir með þér, afi minn. Einn-
ig áttu dætur okkar góðar stund-
ir með langafa sínum sem eru
okkur öllum nú svo dýrmætar.
Sögurnar sem þú hafðir frá að
segja voru hver annarri
skemmtilegri. Þú mundir hvert
smáatriði svo vel og sagðir svo
skemmtilega frá. Sögurnar af því
þegar þú fórst á Lómagnúp og
varst veðurtepptur vegna mikilla
vatnavaxta á söndunum á Suður-
landi. Einnig þegar þú fórst á
hesti niður í Héðinsfjörð, hálf-
villtur og komst niður úr Beinas-
kál þar sem bóndinn á bænum
fullyrti að þar hefði enginn mað-
ur komið lifandi áður. Þessar
sögur ásamt mörgum fleirum
munu lifa áfram með minningu
þinni.
Elsku afi Hannes, söknuður-
inn er mikill, takk fyrir allt.
Guð blessi þig.
Þín
Guðrún Birna og Einar.
Afi Hannes.
Við bræður erum sammála um
það að við hefðum ekki getað
óskað okkur betri afa en afa
Hannesar. Hann var einstaklega
Hannes
Guðmundsson