Morgunblaðið - 05.04.2013, Síða 51
sem dósent og síðan prófessor í
sagnfræði allt til 2008, að undan-
skildum nokkrum árum sem hann
gegndi prófessorsstöðu í sagnfræði
við HÍ.
Á starfsferli sínum gegndi Loft-
ur margvíslegum stjórnsýslu- og
félagsstörfum tengdum fræðigrein-
um sínum. Hann var m.a. virkur í
starfshópi um samfélagsfræði 1974-
1984, formaður Sagnfræðingafélags
Íslands um tveggja ára skeið og
forseti Sögufélags 2001-2005. Þá
var hann virkur félagsmaður í Al-
þýðubandalaginu 1965-1985.
Fengist mest við félagssögu
Í rannsóknum sínum hefur Loft-
ur fengist mest við félags- og upp-
eldissögu 18. og 19. aldar. „Ég hef
m.a. rannsakað uppeldis- og
fjölskylduhætti, alþýðumenningu,
sögu kristni, þróun lestrar- og
skriftarkunnáttu sem og ung-
barnadauða í norrænu samhengi á
þessu tímabili.“ Þá hefur Loftur
einnig fengist við rannsóknir á þró-
un sagnfræðinnar á 20. öld. Í öllum
þessum greinum hefur hann verið
virkur í fjölþjóðlegu samstarfi.
Eftir Loft liggja fjölmargar rit-
smíðar um ofangreind rannsókn-
arefni. Af bókum má nefna eftir-
taldar: (Ásamt tveimur öðrum höf.)
Mannkynssaga. Tuttugasta öldin.
Fyrra bindi (1981); Bernska, ung-
dómur og uppeldi á einveldisöld
(1983), Uppeldi á upplýsingaröld
(1987); Frá siðaskiptum til upplýs-
ingar. Kristni á Íslandi 3.b. (2000);
Alþýðumenning á Íslandi 1830-1930
(2003), ritstj. ásamt Inga Sigurðs-
syni; Almenningsfræðsla á Íslandi
1880-2007. 1-2. b. (2008), ritstj.
verksins og höf. fyrra b. Af grein-
um eða bókarköflum má nefna:
„Félagsfræði og sagnfræði. Vanda-
mál þeirra skoðuð í sögulegu ljósi“.
Saga 16 og 17 (1978 og 1979);
„Barnaeldi, ungbarnadauði og við-
koma á Íslandi 1750-1860“, í: At-
höfn og orð (1983); „The develop-
ment of popular religious literacy
in the 17th and 18th centuries“,
Scandinavian journal of history
(1990); „Huset“ í: Den nordiske
verden, 2. b. (1992); „Parent-child
relations, í: Family Life in the
Long Nineteenth Century, 1789-
1913. History of the European
Family (2002); frá 1994 hefur Loft-
ur ritstýrt ritröðinni „Heimildarrit
í íslenskri uppeldis- og skólasögu“.
3. b. í röðinni Sögukennsluskamm-
degið er nýkomið út.
Mikill kvikmyndaáhugamaður
„Við hjónin höfum gaman af því
að fara í leikhús og sækjum einnig
kvikmyndahúsin. Okkur finnst við
alltaf vera aldursforsetarnir þegar
við förum á kvikmyndir. Ég komst
á bragðið þegar ég var í Frakk-
landi, þar var mikill kvikmynda-
kúltúr og síðan hef ég reynt að
elta uppi góðar kvikmyndir. Það
vænkaðist hagurinn hér á landi eft-
ir að Bíó Paradís kom til skjal-
anna. Svo les ég dálítið, mest er
það faglitteratúr en ekki eingöngu,
ég les einnig fagurbókmenntir, t.d.
las ég nýlega fína bók eftir Braga
Ólafsson, sem heitir Fjarveran.“
Loftur hefur einnig ánægju af úti-
vist og þau hjónin ferðast mikið
um landið.
Fjölskylda
Foreldrar Lofts voru Guttormur
Pálsson, f. 12. júlí 1884, d. 5. júní
1964, skógarvörður á Hallorms-
stað, og Guðrún M. Pálsdóttir, f.
24. september 1904, d. 19. nóv-
ember 1968, húsfreyja á Hallorms-
stað.
Eiginkona Lofts er Hanna Krist-
ín Stefánsdóttir, f. 24.12. 1939,
fyrrv. deildarstj. og kennari. Hún
er dóttir Hönnu Guðjónsdóttur pí-
anókennara, f. 16. 5. 1904, d. 1984,
og Stefáns Kristinssonar fulltrúa,
f. 28.6 1986, d. 1982.
Börn Lofts og Hönnu eru Hrafn,
f. 14.4. 1965, Arnaldur, f. 21.6.
1970, og Hanna, f. 27.10. 1977.
Alsystkin Lofts eru Margrét, f.
1932, d. 2001, Gunnar og Hjörleifur
(tvíburar), f. 1935, Elísabet, f. 1943.
Hálfsystkini Lofts voru fjögur:
Bergljót, f. 1912, Páll, f. 1913, Sig-
urður, f. 1918, og Þórhallur, f.
1925.
Úr frændgarði Lofts Guttormssonar
Loftur
Guttormsson
Gyðríður Þórhalladóttir
Húsfreyja á Syðri-Steinsmýri
Elías Gissurarson
b. á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi
Margrét Elíasdóttir
húsfreyja í Þykkvabæ
Páll Sigurðsson
b. á Þykkvabæ í Landbroti
Guðrún M. Pálsdóttir
húsfreyja á Hallormsstað
Guðríður Bjarnadóttir
húsfreyja á Nýja-Bæ
Sigurður Sigurðsson
b. á Nýja-Bæ í Meðallandi
Bergljót Guttormsdóttir
húsfreyja á Hallormsstað
Sigurður Gunnarsson
pr. á Hallormsstað í Vallahreppi
Elísabet Sigurðardóttir
húsfreyja á Hallormsstað
Páll Vigfússon
b.á Hallormsstað í Vallahreppi
Guttormur Pálsson
skógarvörður Hallormsstað
Vigfús Stefánsdóttir
húsfreyja á Ási
Vigfús Guttormsson
pr. á Ási í Fellum
ÍSLENDINGAR 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013
Hallgrímur Sveinsson biskup fædd-
ist í Blöndudalshólum í Austur-
Húnavatnssýslu 5.4. 1841. Faðir
hans var Sveinn prófastur Níelsson
sem var þá prestur þar (f. 14.8. 1801,
d. 17.1. 1881). Sveinn átti fyrst Guð-
nýju Jónsdóttur prests á Grenjaðar-
stað Jónssonar en seinna átti hann
Guðrúnu (f. 27.3. 1807, d. 10.6. 1873)
Jónsdóttur prófasts í Steinnesi Pét-
urssonar og er Hallgrímur biskup
eitt af börnum þeirra. Með fyrri
konu sinni átti Sveinn Aðalstein,
málfræðing í Kaupmannahöfn, og
Sigríði, húsfreyju á Grímsstöðum á
Mýrum, en alsystkini Hallgríms
voru Sveinn snikkari, Elísabet, kona
Björns Jónssonar ráðherra, og Jón
bóndi á Selvelli í Breiðuvík. Kona
Hallgríms var Elina Marie Bolette,
f. Fevejle (f. 12. júní 1847, d. 14. júní
1934) húsmóðir. Faðir hennar var
Fredr. Chr. Fevejle, yfirlæknir í
Kaupmannahöfn. Börn þeirra voru
Friðrik (1872), Guðrún (1875),
Sveinn (1876) og Ágústa (1877).
Hallgrímur varð stúdent 1863 og
hlaut við burtfararprófið hæstu ein-
kunn sem nokkur hafði hlotið frá
Reykjavíkurskóla. Hann tók guð-
fræðipróf frá Hafnarháskóla 1870 og
varð dómkirkjuprestur árið eftir. Í
Sunnanfara segir, í tilefni af fimm-
tugsafmæli Hallgríms: „Það, sem yf-
ir höfuð einkendi alla framkomu
hans sem prests, var annars vegar
ljúfmenska, alúð og lipurð, en hins
vegar sannkristileg alvara og hrein-
skilin vandlætingasemi.“
Hann var konungkjörinn þing-
maður 1885-1887 og 1892-1903 en
hann þurfti að víkja af þingi í fyrra
skiptið því hann mun hafa þótt of
frjálslyndur í stjórnarskrármálinu.
Hallgrímur var skipaður biskup
yfir Íslandi 1889 og fór utan og tók
biskupsvígslu í Frúarkirkju eins og
þá var lenska. Hann var helsti hvata-
maður að byrjað var á nýrri biblíu-
þýðingu 1897 sem lauk 1908. Honum
var mikið í mun að efla bindindi
meðal prestastéttarinnar í landinu
og varð nokkuð ágengt í því efni.
Hann lét af biskupsembætti vegna
vanheilsu árið 1908.
Hallgrímur lést í Reykjavík 16.
desember 1909.
Merkir Íslendingar
Hallgrímur
Sveinsson
90 ára
Guðrún Jónsdóttir
Kristinn Sigurðsson
Ragna Þorgerður
Kristjánsdóttir
85 ára
Ágúst Sæbjörnsson
Ásmundur Pálsson
80 ára
Einar Eylert Gíslason
Sigríður Baldursdóttir
Sigtryggur Bjarnason
75 ára
Einar Sigurðsson
Haukur Þormar Ingólfsson
Loftur Guttormsson
Ólafía Aradóttir
Ruth Hjaltadóttir
70 ára
Guðmundur I.
Guðmundsson
Ólöf Pálsdóttir
Sigrún Guðjónsdóttir
Valdimar Þorsteinsson
60 ára
Auður Helga
Jónatansdóttir
Grétar Þór Arnþórsson
Guðbjörg Marteinsdóttir
Hallmundur Guðmundsson
Kristín Guðnadóttir
Þórhalla Þórhallsdóttir
50 ára
Auður Guðjónsdóttir
Ásta Sigurjónsdóttir
Baldvin Birgisson
Baldvin B. Ringsted
Eggert Skúlason
Eiríkur Hilmisson
Guðrún Birna Magnúsdóttir
Heiðrún Georgsdóttir
Hugrún Þorsteinsdóttir
Jacky Jean André Pellerin
Kazimierz Wincenty
Chodziutko
Olga Björk Guðmundsdóttir
40 ára
Agnieszka Magdalena
Stefanczyk
Anna Kristine Larsen
Bergný Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir
Elías Erlingsson
Guðrún Eva
Guðmundsdóttir
Guðrún Johnsen
Ingibjörg Stefánsdóttir
Laufey Guðnadóttir
Lilja María Snorradóttir
Margrét Helga Jónsdóttir
Margrét Mekkín Helgadóttir
Marsela Vakiari
Óskar Björn Óskarsson
30 ára
Alda Albertsdóttir
Alrún Ýr Steinarsdóttir
Ari Erlingsson
Bjarki Þórarinsson
Elena Ukhatskaya
Ernir Eyjólfsson
Gréta Björg Jakobsdóttir
Hera Brá Gunnarsdóttir
Konráð Garðar
Guðlaugsson
Michal Cabaj
Pétur Darri Sævarsson
Sigurður Pétur Jónsson
Tinna Dögg Guðlaugsdóttir
Viðar Ben Teitsson
Til hamingju með daginn
30 ára Gréta býr í Kópa-
vogi, er íslenskufræðingur
og ritstjóri hjá Eddu
útgáfu.
Maki: Svanþór Laxdal, f.
1979, fjármálastjóri hjá
auglýsingastofunni Expo.
Börn: Logi, f. 2009, og
Lísa, f. 2011.
Foreldrar: Auður Hauks-
dóttir, f. 1953, vinnur hjá
Sekta- og innheimtu-
miðstöð ríkisins, og Jakob
Þór Guðmundsson, f.
1950, vinnur hjá Raf-
þjónustu HP.
Gréta Björg
Jakobsdóttir
60 ára Þórhalla býr á
Akureyri og er versl-
unarstjóri Hagkaups.
Maki: Ásgeir Baldursson,
f. 1949.
Börn: Þórlaug, f. 1974,
Rósa f. 1982, Eva Sóley, f.
1987. Stjúpbörn: Grétar, f.
1970, Inga, f. 1971 og Elva
f. 1978.
Foreldrar: Jóhanna
Björgvinsdóttir, f. 1917, d.
1998, og Þórhallur
Ágústsson, f. 1918, d.
1953, stjúpf. Sigurvin Elí-
asson, f. 1918.
Þórhalla
Þórhallsdóttir
50 ára Baldvin er Akur-
eyringur, blikksmíða-
meistari og kennslustjóri
tæknisviðs við Verk-
menntaskólann á
Akureyri.
Maki: Björk Jónsdóttir, f.
1981, grunnskólakennari.
Börn: Ólafur, f. 1993, Rán,
f. 1998, Baldvin Bessi, f.
2010, og Kristbjörg Kaja, f.
2011.
Foreldrar: Baldvin Ring-
sted, f. 1914, d. 1998, tann-
læknir, og Ágústa Sigurð-
ardóttir, f. 1925, d. 2003.
Baldvin B.
Ringsted
Bæjarlind 16 Kópavogur Sími 553 7100 www.linan.is
Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 laugardaga 11 - 16
Simone sófar - stílhreinir og þægilegir - fjölmargir möguleikar af áklæðum og leðri í boði
stærðir: 230 cm / 202 cm / 183 cm - einnig fáanlegur sem hornsófi í ýmsum stærðum