Morgunblaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 05.04.2013, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú færð hverja hugmyndina á fætur annarri en gengur illa að gera þær allar að raunveruleika. Nýttu tækifærið og reyndu að koma sem mestu í verk. 20. apríl - 20. maí  Naut Rómantíkin liggur í loftinu í dag og upplagt að eiga stefnumót með einhverjum. Sýndu hagsýni en vertu um leið tillitssamur við þig og þína. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Vinnan göfgar manninn, en það er fleira sem gefur lífinu gildi. Farðu þó var- lega í allar skyndiákvarðanir því þér hættir til fljótfærni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert trúr og traustur í starfi og ert nú farinn að njóta sannmælis. Betri vinnuaðstaða gæti verið á næsta leiti. Að gera hlutina á sinn hátt er æðislegt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er mikilvægt að þú áttir þig á að þig er farið að lengja eftir ró og næði heima fyrir. Næsti mánuður er einnig hag- stæður fyrir fasteignaviðskipti. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Hættu að mikla fyrir þér eigin vanda. Flest af verkefnunum eru hlutir sem þú hef- ur dregið á langinn, en getur ekki dregið lengur. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú er rétti tíminn til að taka til hend- inni heima fyrir og losa sig við það sem þú hefur ekki þörf fyrir lengur. Stundum gerast hlutirnir þegar maður á síst von á því. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Reyndu að slaka á í frítíma þínum og varastu umfram allt að taka vinn- una með þér heim. Láttu engan þvinga þig til að gera eitthvað sem þú vilt ekki. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú skalt ekki vera mjög vonsvik- inn þótt eitthvað renni þér úr greipum. Farðu eftir innsæi þínu og láttu aðra alls ekki stjórna þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft að halda vel á spilunum ef þér á að takast að ná til þín verkefni sem þú hefur mikinn áhuga á. Gefðu þér því tíma og haltu þig því við ljósar stað- reyndir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Stundum er betur heima setið en af stað farið. Farðu í gegnum skápana og fleygðu því sem þú þarft ekki lengur á að halda. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þið ættuð að finna ykkur tóm til þess að líta upp og virða fyrir ykkur fegurð himinsins. Reyndu að skipuleggja þig betur. Hermann Jóhannesson hafðisamband vegna limru sem fyrir misgáning var rangfeðruð í Vísnahorninu í gær. „Mér sýnist á öllu að þarna sé á ferðinni limra, sem ég gerði fyrir margt löngu (ca. 1983-4), allavega var það skömmu eftir að grámosabók Thors heitins kom út. Sú limra var þannig: Vart getur svo vesælan gróður að gagnist ei neinum sem fóður, og víst er að enn búa meðal vor menn, sem finnst jafnvel grámosi góður. Ég sýndi þessa limru fáum, mest af því að mér fannst hún minna óþægilega mikið á vísu Jóns Helga- sonar um Sturlu í Vogum. Nú er mér sosum sama þó að vís- urnar mínar séu eignaðar öðrum, en mér þykir slæmt ef þær afbakast til muna (nema auðvitað þegar það er til bóta).“ Leiðréttist þetta hér með. Í minn- isorðum Gísla Ólafar Péturssonar á netinu má finna skemmtilegan fróðleik. Þar segir að Jón Helgason hafi skrifað eftirfarandi vísu á ein- tak af Sturlu í Vogum en eintakið síðan gengið milli landa í Höfn: Hér kemur prófessor Hagalín hampandi Sturlu í Vogum: uppáhellingur, ónýtt vín, undanrenna í trogum. Í minnisorðunum má finna annan gamankveðskap Jóns. Tilefnið var að Matthías Þórðarson, þjóðminjavörð- ur, ritaði ævisögu Jónasar Hall- grímssonar og birtist hún framan við heildarútgáfu af verkum skáldsins. Íslensku skáldin, ástmey firrt, angurvær súpa úr glasi. Lognast svo útaf lítils virt frá lífsins argaþrasi. Um þeirra leiði er ekkert hirt allt fer á kaf í grasi. Síðast er þeirra saga birt samin af Matthíasi. Og eftirfarandi vísu skrifaði Jón á eintak af bók sinni, Úr landsuðri. Bókin var síðan seld á uppboði og hreppti Árni Hafstað hana. Er ég opna þetta yrkingakver með andfælum við ég hrekk. Hvort er þetta heldur ort af mér ellegar Ríkharði Beck? Ríkharður kemur einnig fyrir í ljóðinu „Til lesandans“ eftir skáldið Kristján Karlsson: Allt gengur sinn gang, jafnt um heiðar og sali. Taktu Andrew Lang, hann var skáld en fyrst smali. Ætli það sé rétt? Ef svo er ekki, þá taktu dæmið af Ríkharði Becki. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af grámosa, þjóðskáldi og Ríkharði Becki Í klípu „NEI, ÞETTA ERU EKKI AUKAVERKANIR AF LÝSISPILLUM. REYNDU NÚ AÐ TROÐA ÞVÍ Í LITLA HAUSINN ÞINN.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „EFTIR TVO DAGA ÆTTIRÐU AÐ VERA ORÐINN NÓGU GÓÐUR TIL AÐ SJÁST Á HJARTALÍNURITINU.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... púkalega góð. ÞETTA ER SVAKA- LEGASTI BAR SEM ÉG HEF KOMIÐ Á. HÉR ER SVO MIKIL HARKA AÐ ÞAÐ ER EKKI EINU SINNI „HAPPY HOUR“. HVAÐ ER ÞÁ Í STAÐINN? „REYNDU AÐ LEMJA EKKI TENNURNAR ÚR NEINUM-STUND.“ ÉG ER SVOSEM EKKI SYFJAÐUR ... EN ÉG ER JÚ ATVINNUKÖTTUR.Ég heiti Óskar og er kallaðurpáskar og ekki bara á páskum, sagði innhringjandi í útvarpsþætti á árum áður þegar strákar, sem þá kunnu þá list að skemmta öðrum, gerðu einmitt það á réttum vett- vangi, í útvarpi, sjónvarpi eða á sérstökum skemmtunum, en héldu sig fjarri pólitíkinni. Nú er af sem áður var en piltunum hefur samt ekki enn tekist að koma páskunum fyrir kattarnef. x x x Víkverji fellur fyrir ýmsu, meðalannars tilboðum. Hann drekk- ur venjulega ekki gosdrykki en fyr- ir páska fylgdi frítt páskaegg með ef keyptir voru átta lítrar af gosi. Þetta hitti í mark hjá Víkverja sem keypti töluvert margar kippur af gosi og dró þannig að búi fjölda páskaeggja. Nú sýpur hann seyðið af því, en finnur ekkert í geymsl- unni fyrir gosi. x x x Þegar Víkverji horfir á heimilis-hundinn éta sömu tegund af hundamat í öll mál hugsar hann hlýtt til páskaeggjaframleiðenda. Eggin eru ekki aðeins mismunandi frá einum framleiðanda til annars heldur er úrvalið fjölbreytt hjá framleiðendum. Á páskum þakkar Víkverji fyrir að vera ekki hundur. x x x Margir kannast ekki við eiginvandamál og sumir segjast til dæmis aðeins kaupa páskaegg vegna málsháttanna. Hinir sömu hefðu eflaust orðið fyrir von- brigðum hefðu þeir fengið einn málsháttinn sem Víkverji fékk: Hoppaðu á karamellu hvað þetta er gott páskaegg! x x x Annars var Víkverji frekaránægður með málshættina þessa páskana enda báru þeir með sér skilaboð: Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Drukkins fögnuður er ódrukkins harmur. Atlotin góð eru útlátum betri. Betur vinna hyggindi en harðindi. Fáir eru smiðir í fyrsta sinn. Þögn er betri en þarflaus ræða. Flest verður glöðum að gamni … víkverji@mbl.is Víkverji Kenn mér, Drottinn, veg laga þinna og ég mun fylgja honum allt til enda. (Sálmarnir 119:33)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.