Morgunblaðið - 17.04.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.04.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Polarolje Meiri virkni Hátt hlutfall Omega 3 fitusýrur Minn læknir mælir með Polarolíunni, en þinn ? Selolía, einstök olía Gott fyrir: Maga- og þarmastarfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Kolesterol Liðina Polarolían fæst í: apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúð Nú líka í hylkjum Nýtt! Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, sagði í setningarræðu sinni á prestastefnunni 2013 í Háteigskirkju í gærkvöldi að kirkjan hefði ekki aðeins áhrif á líf einstaklinga heldur á sam- félagið allt, hugsunarhátt og framkvæmdir all- ar og að hún léti sér ekkert mannlegt óviðkom- andi. „Á þeim forsendum hefur kirkjan boðist til að leiða söfnun fyrir tækjakaupum á Land- spítalanum því traust og góð heilbrigðisþjón- usta varðar okkur öll og velferð okkar. Nú stendur yfir undirbúningur þeirrar söfnunar og opnaður hefur verið reikningur sem félaga- samtök og einstaklingar hafa þegar lagt inn á,“ sagði Agnes. Þá benti hún á að mikilvægt væri að ræða stöðu kirkjunnar og þjóna hennar í samfélaginu og gera sér grein fyrir mikilvægi erindis kirkj- unnar inn í þann heim sem við lifðum í. Prestastefnan stendur yfir í tvo daga en í dag munu dr. Gunnar Kristjánsson, dr. Sigríður Guðmarsdóttir og sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir flytja framsögu. Þá verður presta- stefnunni slitið að lokinni messu í Háteigskirkju klukkan 14 á morgun. Góð heilbrigðisþjónusta varðar okkur öll Morgunblaðið/Ómar Gengið til prestastefnu Þar er fjallað um málefni kirkju og starf presta og djákna og eru ýmis mál á dagskrá, en stefnan er haldin í Háteigskirkju. „Þetta er óskaplega mikið sjokk því ekkert svona hefur gerst hér áður,“ segir Sigurður Helgason, prófessor í stærðfræði við MIT-háskólann í Massachusetts. Hann hefur verið prófessor þar frá árinu 1965. Hann þekkti enga sem lentu í sprenging- unum í Boston. Sigurður segir eðlilega mikið fjallað um sprengingarnar í Boston í fjölmiðlum, einkum blaðinu Bost- on Globe. Frásagnir af upplifun fólks hafi verið fyrirferðarmiklar. Honum þykir frásögn tveggja barna móður ákaflega sorgleg, en synir hennar tveir lömuðust báðir; annar missti útlim og hinn er stór- slasaður. Þá birtist viðtal við einn hlaupara sem sagði að raunveru- leikinn hefði verið mun verri en birst hefði í sjónvarpinu. „Í fyrstu var talið að erlend hryðjuverkhreyfing bæri ábyrgð á þessu. En mér skilst, eftir því sem ég hef lesið, að talið sé að þetta sé frekar innlent,“ segir Sigurður og vísaði í að slíkt hefði komið fyrir í Bandaríkjunum. „Til að byrja með hika menn ef- laust við að hafa fjölmenna hópa samtímis í borg- inni. En þetta gerðist á fjöl- förnum stað í borginni þar sem vanalega er margt fólk. En Það er ekki gott að segja til lengri tíma litið hvaða áhrif þetta á eftir að hafa á Boston. En ég veit ekki hvort lagt verður í að hafa annað maraþonhlaup í Bost- on á næstunni,“ segir Sigurður að- spurður, hvaða áhrif hann telji að sprengingarnar muni hafa á ímynd Boston. Eins og staðan sé núna hafi flugi seinkað en daglegt líf sé komið nokkuð í samt lag. Sigurður segir að árásir eins og þessar hafi til- hneigingu til að gleymast til- tölulega fljótt. „Það er mikið um þetta fjallað núna og verður næstu daga. En það er svo margt annað sem er að gerast og ekkert allt gott,“ segir Sigurður og vísar í ástandið í Norður-Kóreu. thorunn@mbl.is „Ekkert svona gerst hér áður“  Daglegt líf að komast í samt lag í Boston að sögn Sigurðar Helgasonar stærðfræðiprófessors  Frásagnir af upplifun fólks fyrirferðarmiklar Sigurður Helgason Þórunn Kristjándsdóttir thorunn@mbl.is „Auðvitað viljum við alltaf vera rétt- um megin við núllið en það tókst því miður ekki í fyrra,“ segir Magnús Árnason, framkvæmdastjóri skíða- svæða höfuðborgarsvæðisins. Þau voru rekin með tapi árið 2012, rekstrarniðurstaða ársins var nei- kvæð um 72,4 milljónir króna, sam- kvæmt ársreikningi fyrir árið 2012. Hins vegar var rekstrartap, fyrir fjármagnsliði og afskriftir, 14,2 millj- ónir króna. Þar sem skíðasvæðin eru rekin af sex sveitarfélögum er horft á reksturinn fyrir afskriftir, segir Magnús. Hann nefndi að helstu skýringar á tapinu væru vegna aukins launa- kostnaðar vegna nýrra kjarasamn- inga, sem námu um 9 milljónum króna. Þá var skíðasvæðið opið í 78 daga í fyrra sem eru 18 fleiri en gert var ráð fyrir í rekstraráætlun. Tekjur af þessum dögum skiluðu sér hins vegar ekki eins og ráð var gert fyrir. Þá setti veðrið strik í reikning- inn. Óvænt útgjöld urðu þegar skáli brann með ýmsum búnaði; tjónið nam um þremur milljónum króna. Dræm aðsókn eftir páska Í fyrra heimsótti um 61 þúsund gesta skíðasvæðin, en búist er við fleiri gestum í ár. „Aðsóknin hefur verið dræm eftir páska, við urðum að grípa til þessara aðgerða; að loka á mánudögum og föstudögum svo við myndum ekki horfa upp á ábata vetrarins brenna upp,“ segir Magn- ús. Ákvörðunin um að hafa lokað þessa daga, næstu tvær vikur, var tekin sl. föstudag eftir ákaflega dræma aðsókn marga daga í röð, þrátt fyrir prýðisveður. Mikið tap á skíðasvæðunum Útivist Margir bregða sér á skíði í Bláfjöllum eins oft og þeir geta.  Lokað tvo daga í viku vegna dræmrar aðsóknar eftir páska Skúli Hansen skulih@mbl.is Guðbjartur Hannesson velferð- arráðherra kynnti á fundi ríkisstjórn- arinnar í gær skýrslu starfshóps sem hann fól að gera til- lögur um horfur og hlutverk Íbúðalána- sjóðs til framtíðar. Þar er ítrekað að ÍLS starfi áfram í al- mannaþágu. Þá er lagt til að dregið verði eins og kostur er úr ábyrgð ríkisins á framtíðarskuld- bindingum ÍLS, áhætta ÍLS af lán- veitingum minnkuð og að lánskjör lán- takenda verði bætt með aukinni sam- keppni á útlánamarkaði. Einnig er lagt til að stofnaður verði sjálfstæður heildsölubanki í samráði við Samtök fjármálafyrirtækja, ÍLS og aðra hagsmunaaðila. Hann verði án hagnaðarkvaðar og öllum fjár- málastofnunum sem uppfylla tiltekin skilyrði verði boðin aðild að honum. Auk þess er lagt til að skilið verði á milli út- lánastarfsemi ÍLS og umsýslu fulln- ustueigna, dregið úr uppgreiðslu- áhættu, leitað leiða til að koma handbæru fé í ávöxtun og dregið úr van- skilum með bættum innheimtuferlum og úrræðum fyrir skuldug heimili til að bæta stöðu sjóðsins. Gæti þurft meiri innspýtingu Að sögn Gunnars Tryggvasonar, for- manns starfshópsins, er með heildsölu- bankanum verið að reyna að leysa tæknilega örðugleika sem felast í smæð íslenska fjármálamarkaðarins með því að búa til einn fjármögnunaraðila. „En útlánastarfsemin verður í samkeppni eins og í dönsku leiðinni,“ segir Gunnar og bendir á að þessi lausn gangi ekki upp nema a.m.k. stærstur hluti bank- anna taki þátt í henni. Aðspurður hvort tillögur hópsins dugi til að koma rekstri sjóðsins í samt lag eða hvort þörf sé á meiri innspýtingu segir Gunnar: „Það gæti þurft meiri innspýtingu. Það er ekkert víst að þetta dugi. Það gæti sigið enn frekar á ógæfu- hliðina og þessar aðgerðir ekki dugað, það er alveg fræðilegur möguleiki ef vextir lækka enn frekar.“ Þá bendir hann á að stærðargráða áhættunnar sé ekki það mikil að ríkisinngrip myndu alltaf bjarga sjóðnum, þau yrðu hins- vegar kostnaðarsöm. Heildsölu- banki verði stofnaður Gunnar Tryggvason  Segir ekki víst að tillögurnar dugi ÍLS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.