Morgunblaðið - 17.04.2013, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.04.2013, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013 ✝ Jóna KrístínHallgrímsdóttir fæddist á Sauð- árkróki 21. júní 1919. Hún lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 8. apríl 2013. Foreldrar henn- ar voru Hallgrímur Jónsson smiður, f. 4. mars 1888, d. 15. júní 1972, og Helga Sigríður Jónsdóttir, f. 17. jan- úar 1878, d. 29. júní 1957. Jóna átti eina alsystur, Ingibjörgu Sigríði, f. 21. apríl 1918, d. 28. apríl 2004, og 11 hálfsystkini. Þau eru: Gunnlaug Stefanía Veronika, Ingunn Helga, Mar- grét, Kjartan, Jón, Hólmfríður Þórleif, Jón Friðrik, Jónína Snjólaug, Sævar Júní, Magnea Guðjóna og Guðbjörg. Ragnar Helgason. Börn: Jó- hanna Kristín, Hafdís, Atli, Jón Heimir, Ómar, Ragnar Kristinn og Hafsteina Helga. Þau eiga 24 barnabörn og sex barna- barnabörn. 4) Stefán Sigurjón, f. 12. september 1946, d. 29. mars 1993. 5) Jón Helgi f. 29. maí 1950, maki Drífa Heið- arsdóttir. Börn: Jóhannes Haf- berg, Kristbjörg, Jóna Kristín, Lilja Særós og Jón Helgi. Þau eiga sex barnabörn. 6) Helgi Edward, f. 27. janúar 1958, maki Sigrún Agnarsdóttir. Börn þeirra eru Guðjón Örn, Birna Íris og Agnar Þór. 7) Jó- hanna, f. 14. september 1963, d. 6. desember 2009. Börn henn- ar: Stefán Hafberg, Heiða og Lísa og tvö barnabörn. Jóna flutti barnung frá Sauð- árkróki til Siglufjarðar. Fimm- tán ára gömul fluttist hún til Hafnarfjarðar og var húsmóðir í Hamri sem nú er Strandgata 69. Útför hennar fer fram í Hafnarfjarðarkirkju í dag, 17. apríl 2013, og hefst athöfnin kl. 15. Jóna giftist 21. febrúar 1939 Jóni Helga Jóhanns- syni, f. 20. sept- ember 1913, d. 6. júní 1982, frá Hamri í Hafn- arfirði. Foreldrar hans voru Jóhann- es Þorsteinsson, f. 9. nóvember 1884, d. 27. nóvember 1947, og Þóra Jónsdóttir, f. 7. október 1878, d. 9. október 1972. Börn Jónu og Jóns eru 1) Hafsteina Helga Magliolo, f. 6. júlí 1940. Börn hennar og Jerry Magliolo eru Joseph, Jerry og Jeannette Jóna. Þau eiga fimm barna- börn. 2) Jóhannes Hafberg, f. 7. maí 1943, d. 3. nóvember 1963. 3) Ingibjörg Sigríður, f. 23. mars 1945, maki Sigurbjörn Mamma mín, nú er komið að kveðjustund. Ég vil minnast hennar mömmu minnar með nokkrum orðum. Við vorum ekki bara mæðgur heldur líka vinkon- ur og við vorum alla tíð mjög nán- ar. Minningarnar hrannast upp: Skemmtilegir tímar eins og þegar við vorum saman í saumaklúbb. Reykjavíkurferðirnar með strætó voru margar eftirminnilegar og oft þurftum við að hlaupa niður Laugaveginn á háhæluðu skónum til að ná vagninum heim. Ég man að í einni ferðinni átti að kaupa sérstaka tegund af skóm en þegar komið var í búðina uppgötvaðist að veskið hafði gleymst heima. Ég sakna hennar mikið. Við áttum auðvelt með að tala hvor við aðra. Hún var ákaflega sjálfstæð, ákveðin og stolt kona, alltaf tilbú- in að hjálpa öðrum þegar upp komu veikindi eða önnur vanda- mál. Oft keyrði ég hana til Imbu systur hennar svo hún gæti rétt henni hjálparhönd. Heimilið var hennar stolt og prýði og gekk hún af atorku í öll verk, hvort sem var við þrif eða viðhald. Varla var hægt að líta af henni án þess að hún gripi tusku og færi að þrífa, hvort sem hún var heima eða gestkomandi hjá mér. Mamma átti ekki bíl né hafði bílpróf svo það kom oftast í minn hlut, eða okkar Bjössa, að keyra hana. Þeg- ar verið var að keyra út í búð eða í bankann var oft tekinn aukakrók- ur. Á vorin og sumrin var vinsælt að skreppa austur fyrir fjall og skoða lömbin hjá Hafdísi, kaupa ís á Selfossi eða fara í búðir. Í þess- um ferðum var oft hlegið mikið. Mamma hafði mikinn áhuga á af- komendum sínum, var allaf að spyrja frétta af þeim. Líka eftir að hún greindist með alzheimer- sjúkdóminn, þá mundi hún eftir þeim. Henni fannst nauðsynlegt að mæta í fermingar, skírnir og á aðrar uppákomur. Einstök mann- eskja er horfin á braut. Ég mun alltaf minnast þín, mamma. Þín dóttir, Ingibjörg Jónsdóttir. Kraftmikil kona er fallin frá. Hún Jóna tengdamóðir mín var sú kraftmesta kona sem ég hef kynnst. Þessi litla kona bjó yfir svo mikilli orku að maður mátti oft skammast sín fyrir það að vera mikið yngri en hún, en gerði samt ekki nema brot af því sem hún gerði og kunni. Ég kynntist Jónu þegar ég var 15 ára og var að passa fyrir Imbu dóttur hennar, þar komu þau oft hann Jón og hún Jóna. Mér fannst hann Jón alltaf svo kátur og stríð- inn en Jóna var alvarlegri og ég svona hálfsmeyk við hana. Hjá Imbu kynntist ég svo öðr- um Jóni sem var sonur þeirra hjóna. Við giftum okkur þegar ég var 17 ára og þau hjón tóku mér yndislega. Alltaf var hún Jóna til í að passa barnabörnin og passaði hún bæði Krissu og Jónu þegar ég fór í siglingar með Nonna og fór létt með það. Hún tók stelp- unum eins og sínum og fór t.d. með Jónu dóttur mína í klippingu eitt skiptið þegar hún passaði, ekki varð ég nú voða glöð þegar ég sótti barnið og hún hafði látið snoða hana. En hárið óx og varð bara fallegra. Annað skiptið var hún að passa Krissu og hún eitthvað kvefuð sú litla, þá var tengdapabbi sendur út á hafnargarð til að sækja sjó í fötu og þetta notaði hún sem nefdropa. Þetta var gamalt hús- ráð sem hún þekkti en ég átti ekki til orð yfir þetta allt. Árið 1982 lést hann tengda- pabbi og var það mikill missir fyr- ir hana. Það ár vorum við Nonni að byggja og bauð hún okkur að búa hjá sér í hálft ár. Ég var ófrísk af Lilju og lifði eins og prinsessa svo vel hugsaði hún um okkur. Nonni var á sjónum og alltaf þegar hann kom í land fór hún í heimsókn í næsta hús til að leyfa okkur að vera einum. Þegar Lilja fæddist fyrir tímann var ég ekki tilbúin með allt sem fylgir litlu barni. Þá tók Jóna sig til og gerði allt klárt fyrir mig og barn- ið. Hún var búin að sauma, þvo, strauja og baka fullt af kökum. Svo var dekrað við mig og stelp- urnar. Lífið hjá Jónu var ekki alltaf auðvelt, hún varð ekkja fyrir rúmum 30 árum, lifði þrjú af börnum sínum og eitt barnabarn. En Jóna var dugleg kona, alltaf hélt hún áfram. Jóna og Jón áttu aldrei bíl og töluðum við oft um það að þess vegna væri hún svona hraust. Þó að hún væri hátt á níðræðisaldri fór hún út og mokaði allar tröpp- urnar ef það snjóaði. Heilsan fór að gefa sig fyrir nokkrum árum og var það aðal- lega minnið og heyrnin sem fóru. Síðustu tvö árin dvaldi Jóna á Hrafnistu í Hafnarfirði og naut þar mikillar umhyggju starfs- fólks sem á bestu þakkir skilið. Langri ævi er lokið og efa ég ekki að það hafi orðið fagnaðar- fundir þegar hún hitti ástvini sína hinum megin. Elsku Jóna mín, þakka þér fyr- ir allt. Hvíl í friði. Þín tengdadóttir Drífa. Jóna amma var alltaf svo glöð þegar við systkinin komum í heimsókn. Hún var mjög áhuga- söm um hvað væri að frétta og þá sérstaklega hvort ekki væri kom- in kærasta eða kærasti. Þegar við vorum loksins komin í samband spurði hún hvort við værum ekki búin að lofast. Eitt sinn sagði hún: „Það er svo gott veður núna, þið ættuð að setja upp hringana.“ Hún tók betri helmingum okkar alltaf mjög vel. Amma var mjög þrjósk. Það var ekki hægt að segja nei við hana. Við gátum gleymt því að fá að sleppa því að borða nammið eða kökurnar sem hún bauð upp á. Það var ekki inni í myndinni. Við gleymum aldrei þegar við hittumst árlega á Strandgötunni á sjómannadaginn. Við minnt- umst þá afa og hittum stórfjöl- skylduna. Það sem fékk mann til að hlakka mest til að koma í heim- sókn voru Jónu ömmu pönnukök- ur. Betri pönnukökur munu aldr- ei verða gerðar. Amma var hörkudugleg. Oft- ast þegar við komum í heimsókn var hún uppi á stól að þrífa, með ryksuguna á fullu eða sat við saumavélina. Við nutum oft góðs af því og fórum heim með þessi fínu nýju rúmföt. Amma hugsaði alltaf vel um okkur. Þegar eitt okkar átti af- mæli gaf hún hinum líka pakka. En þó að amma hafi verið bæði elskuleg og góð var hún þó alls ekki þessi týpíska amma. Við sögðum oft hetjusöguna af því að uppáhaldsleikari ömmu hafi verið Steven Seagal. „Hann er svo ynd- islegur,“ sagði hún alltaf. Elsku amma, takk fyrir allar góðu stundirnar. Guðjón, Birna og Agnar. Það fyrsta sem okkur dettur í hug um hana ömmu okkar er hversu mikil hörkukona hún var. Margar minningar þar sem hún stóð uppi á borði að þrífa loftin, að taka upp rabarbara, moka snjó á hverjum vetri eða alveg þangað til hún var orðin 91 árs. Hún lét heldur aldrei neinn vaða yfir sig og ef hún var spurð hvort hún vildi hjálp, var svarið ávallt „nei takk, því hún amma þín er enginn aumingi“. Það eru heldur ekki allir eins og hún amma sem skellti sér til Banda- ríkjanna 83 ára til að vera við- stödd brúðkaup hjá barnabarninu sínu. Annað sem verður að nefna er hversu dugleg hún var í eldhús- inu. Á jólunum voru bakaðir nokkrir tugir tegunda af smákök- um og var hún einnig þekkt fyrir bestu pönnsur í Hafnarfirðinum og þó að víðar væri leitað. Hún bjó alltaf til rabarbarasultu og gerði slátur. Hún fussaði líka og sveiaði þegar henni var gefinn ör- bylgjuofn í afmælisgjöf, því hún vildi bara gera allt frá grunni. Alltaf um jólin, á jóladag, var líka farið á Strandgötuna til hennar ömmu þar sem var haldið jólaboð fyrir alla stórfjölskylduna og það besta var alltaf heimagerður ís frá henni. Ásamt því að vera hörkukona var hún rosalega barngóð og hjálpfús við alla og mátti ekkert aumt sjá. Hún elsk- aði félagsskap og var algjör fé- lagsvera og fannst ekkert skemmtilegra en að punta sig upp áður en hún fór eitthvað fínt út. Þetta eru einungis fá atriði af endalausum sem hægt er að rifja upp, en við það að rifja upp sögur um hana ömmu finnst okkur systkinunum ótrúlegt hversu mikið hún gekk í gegnum án þess þó að hún bæri það mikið utan á sér. Aldrei mátti greina bitur- leika eða annað sem getur fylgt miklum missi og megum við læra margt af henni ömmu okkar. Við vorum öll systkinin hjá henni rétt áður en hún fór og átt- um við yndislega stund saman þar sem var mikið hlegið og margar minningar rifjaðar upp. Við erum stolt og þakklát að hafa haft ömmu Jónu í lífi okkar og söknum hennar mikið. Vonum við, amma, að þér líði vel og við vitum að það var vel tekið á móti þér. Mig hryggir svo margt, sem í hug mín- um felst og hvernig ég þreytist að lifa og mér finnst það, vina mín, hugga mig helst, að hugsa um þig eða skrifa, að minnast á armlög þín ástrík og góð og allt sem að þú hefur talað: því ligg ég hér aleinn og yrki nú ljóð það eitt gæti huganum svalað. Eins veit ég það, hvert sem mig hrekur og ber, og hverju sem annars ég gleymi, þá man ég þó allt sem ég unni með þér og elska það, faðma og geymi. Og þegar að dimmir við skamm- degisskeið og skuggarnir þéttast um fætur, þá vona ég stjörnur þær lýsi mér leið, sem leiftur á bláhveli nætur. Ég man það sem barn að ég margsinnis lá og mændi út í þegjandi geiminn, og enn get ég verið að spyrja og spá, hvar sporin mín liggi yfir heiminn. En hvar sem þau verða mun hugurinn minn, við hlið þína margsinnis standa, og vel getur verið í síðasta sinn ég sofni við faðm þinn í anda. (Þorsteinn Erlingsson.) Kristbjörg, Jóna Krist- ín, Lilja Særós og Jón Helgi Jónsbörn. Jóna Kristín Hallgrímsdóttir ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, INGUNN JÚLÍUSDÓTTIR, sem lést mánudaginn 8. apríl, verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmanna- eyjum laugardaginn 20. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kvenfélagið Líkn. Svanhildur Eiríksdóttir, Arnór Páll Valdimarsson, Eiríkur Arnórsson, Arnheiður Pálsdóttir, Valgeir Arnórsson, Bryndís Guðmundsdóttir, Ingunn Arnórsdóttir, Svanur Gunnsteinsson, Arnór Arnórsson, Hildur Björk Bjarkardóttir og langömmubörn. ✝ Hjartkær eiginkona mín og móðir okkar, HRAFNHILDUR HÉÐINSDÓTTIR, Jökulgrunni 24, Reykjavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn 16. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey. Pétur Guðmundsson, Guðmundur Pétursson, Héðinn Pétursson, Hólmfríður Pétursdóttir, Jónas Pétursson. ✝ Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RANNVEIG FANNHVÍT ÞORGEIRSDÓTTIR frá Lambastöðum, Garði, síðast til heimilis Háaleiti 3c, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, föstudaginn 5. apríl. Útför hennar fer fram frá Útskálakirkju föstudaginn 19. apríl kl. 14.00. Helga Jónína Walsh, Agnar Breiðfjörð Sigurvinsson, Walter Leslie, Esther Guðmundsdóttir, barnabörn og langömmubörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN HERMANNSSON verkfræðingur, Giljalandi 19, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn 9. apríl, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 19. apríl kl. 11.00. Sigríður Jónsdóttir, Jón Hallur Stefánsson, Rikke Houd, Hermann Stefánsson, Sigrún Benedikz, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN SIGURÐSSON frá Raufarhöfn, sem lést á Skjóli mánudaginn 8. apríl, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 18. apríl kl. 13.00. Heiðar Bergur Jónsson, Þorbjörg Sandra Sveinsdóttir, Guðlaug Sjöfn Jónsdóttir, Guðlaugur Vilberg Sigmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, HARALDUR HRAFNKELL EINARSSON, sem andaðist á Landspítalanum við Hring- braut þriðjudaginn 9. apríl, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 19. apríl kl. 13.00. Margrét Jóna Magnúsdóttir, Kristín Júlía, Helgi, Hrafnhildur, Dröfn, Helga Björk og þeirra fjölskyldur. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa- langamma, KRISTÍN ÁSTHILDUR JÓHANNESDÓTTIR, Dídí, Árbraut 15, Blönduósi, andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 3. apríl. Útförin verður frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. apríl kl. 15.00. Pétur Þorláksson, Þorsteinn Pétursson, Jóhannes Gaukur Pétursson, Þorlákur Pétursson, Pétur Már Pétursson, Gréta Pétursdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.