Morgunblaðið - 17.04.2013, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 17.04.2013, Blaðsíða 44
 Leikstjórinn Óskar Þór Axelsson verður handritshöfundur og leikstjóri kvikmyndar sem byggð verður á ný- útkominni skáldsögu Stefáns Mána, Úlfshjarta, að því er fram kem- ur á vef Forlagsins sem gefur bók- ina út. Óskar hefur áður gert kvikmynd eft- ir einni af skáld- sögum Stefáns Mána, Svart- ur á leik. Úlfshjarta Stefáns Mána á hvíta tjaldið MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 107. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190 1. Fjöldi sprengja finnst í Boston 2. „Óskiljanleg lukka yfir okkur“ 3. 37 látnir og 273 særðir 4. Grænt salernisvatn í Elliðavatni »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hljómsveitin Valdimar mun halda tónleika í Andrew’s Theatre, fyrrver- andi kvikmyndahúsi á gamla varnar- liðssvæðinu í Keflavík, 27. apríl nk. ásamt 40 manna lúðrasveit frá Tón- listarskóla Reykjanesbæjar. Liðs- menn Valdimars eru flestir fyrrver- andi nemendur við skólann og léku með lúðrasveitinni á árum áður. Ljósmynd/Guðmundur Vigfússon Valdimar og lúðra- sveit í Keflavík  Hans-Ola Erics- son, einn þekkt- asti orgelleikari heims, heldur tónleika í Lang- holtskirkju 21. apríl nk. kl. 20. Er- icsson hefur hald- ið tónleika víða um heim og gefið út fjölda platna, m.a. heildarútgáfu á verkum Messiaen sem tímaritið Die Zeit tilnefndi sem eina af mikilvæg- ustu upptökum aldarinnar. Ericsson leikur í Langholtskirkju VEÐUR Haukar og Fram jöfnuðu metin gegn andstæð- ingum sínum í undan- úrslitum N1-deildar karla í handknattleik í gær- kvöld. Haukar gerðu góða ferð í Austurberg þar sem þeir skelltu ÍR- ingum, 29:19, og eftir að hafa tapað með 9 marka mun fyrir FH í Kaplakrika unnu Framarar á heima- velli í gær með fimm marka mun. »2-3 Haukar og Fram fögnuðu sigri Dave MacIsaac, landsliðsþjálfari karla í íshokkíi, telur að Ísland eigi sigurmöguleika í öllum leikjunum sem eftir eru á heimsmeistaramótinu í Króatíu. Jafnvel gegn sterku liði heimamanna sem er andstæðing- urinn í dag. Hann segir að fyrstu tveir leikir Íslands á mótinu hafi verið jafn ólíkir og dagur og nótt en er ánægður með frammistöðuna í sigrinum óvænta gegn Áströlum. »4 Telur möguleika á sigri í öllum leikjunum Það verða Keflavík og KR sem leika til úrslita um Íslandsmeist- aratitilinn í Dominos-deild kvenna í körfuknattleik. Keflavík hafði betur gegn Val í oddaleik á heimavelli sínum í gær. Leikurinn var jafn og spennandi en heima- konur reyndust sterkari á loka- sprettinum og framundan er rimma Keflavíkur og KR. »2 Keflavík mætir KR í úrslitarimmu ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Geymslur Þjóðminjasafns Íslands við Vesturvör í Kópavogi voru í gær opnar almenningi í fyrsta sinn. Þar eru um 350.000 gripir geymdir og því ekki ofsagt að margt leynist á bak við tjöldin. Aðeins brot af gripum í vörslu Þjóðminjasafnsins er til sýnis í safnhúsinu við Suðurgötu í Reykja- vík. Ólöf Breiðfjörð, kynning- arfulltrúi safnsins, segir að starfs- fólk eigi auðvelt með að finna gripina vegna númerakerfis auk þess sem forverðir hafi vinnuað- stöðu í rýminu. „Þetta eru full- komnar geymslur og meðal annars eru hér geymdar um fimm milljónir ljósmynda.“ Áður en Þjóðminjasafnið var lok- að í um átta ár vegna endurbóta sem hófust um miðjan tíunda ára- tug liðinnar aldar voru gripir safns- ins geymdir uppi á háalofti og í litlum skonsum hér og þar í safn- inu. Þessir gripir lágu undir skemmdum vegna leka í húsinu, en nú eru allir gripirnir undir einu þaki. „Sérfræðingarnir hafa því betri sýn yfir gripina,“ segir Ólöf. Grunnsýning Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til – menning og sam- félag í 1.200 ár, hefur verið í meg- inhluta safnhússins síðan 2004 og verður þar áfram. Ólöf segir að lítið sé hægt að skipta þar út munum en öðru máli gegni í sambandi við sér- sýningar eins og eru í Bogasalnum. „Þá er farið í geymsluna og gripir fundnir,“ segir Ólöf. Fjölbreytni Í geymslurýminu er nánast allt sem finnst milli himins og jarðar – og einnig í neðra. Þar má sjá gripi sem hafa fundist í jörðu, fornmuni frá landnámi upp í nútímahluti eins og húsgögn, tölvur, farsíma og strigaskó. Ólöf bendir á að margir hlutir safnsins séu geymdir í öðrum söfn- um, þar sem þeir séu til sýnis. Samvinna við minni söfn sé mikil og aukist stöðugt. Á Skógum sé til dæmis allt samgöngusafnið og fjarskiptasafnið og bílar í eigu safnsins séu í Slökkviliðsminjasafn- inu sem var opnað í húsnæði Byggðasafns Reykjanesbæjar í gamla Rammahúsinu um nýliðna helgi. „Við reynum að útdeila verk- efnum á þann hátt að söfn úti á landi beri að hluta til ábyrgð á eig- um Þjóðminjasafnsins,“ segir Ólöf og minnir á að stefnan sé að hafa sem flesta hluti aðgengilega fyrir almenning. „Við reynum að koma stærri hlutum og sértækum á rétta staði þar sem er mögulegt að sýna þá.“ Rýmið verður aftur opið almenn- ingi klukkan 12 til 14 á morgun. Margt leynist á bak við tjöldin  Um 350.000 gripir í geymslu Þjóðminjasafnsins Morgunblaðið/Golli Geymsla Ólöf Breiðfjörð, kynningarfulltrúi Þjóðminjasafns Íslands, í húsnæði safnsins í Kópavogi. Morgunblaðið/Golli Munir Í rýminu er nánast allt sem finnst milli himins og jarðar. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan- og austanátt, yfirleitt á bilinu 3-10 m/s. Úrkomulítið nyrðra og eystra, en skýjað og sums staðar dálítil rigning eða slydda á Suður- og Vesturlandi. Hiti 0-7 stig. Á fimmtudag Hæg norðlæg eða breytileg átt, en strekkingur við austurströndina. Stöku él norðanlands, annars bjartviðri. Hiti 0 til 5 stig suðvestan til að deginum, annars vægt frost.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.