Morgunblaðið - 17.04.2013, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.04.2013, Blaðsíða 14
Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Síðustu 3 mánuðir meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir eða augu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á almennum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ Fæst án lyfseðils Verkjastillandi bólgueyðandi ÁNÆGJA EÐA END URGREIÐSLA! Gildir frá 1. apríl - 30. júní 2013 Fjöldi atvinnulausra erlendra ríkisborgara í lok mánaðar Mars 2012 Fjöldi atvinnulausra erl. ríkisborgara Fjöldi erlendra ríkisborgara sem hafa misst bótarétt frá áramótum Mars 2013 2.113 1.618 360 Mars 2012 Mars 2013 Karlar Konur 1.157 776 956 842 Mars 2012 Mars 2013 Höfuðborgarsvæðið Landsbyggðin 1.559 554 1.162 456 Heimild: Vinnumálastofnun Mars 2012 Mars 2013 Dæmi um atvinnugreinar Gisting og veitingar Iðnaður/hráefnav. Mannvirkjagerð 259 248 393 227 186 158 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Alls voru 1.618 erlendir ríkisborgar- ar án vinnu í lok mars og hafði þá fækkað um 495 frá því í fyrra. At- vinnulausum körlum fækkaði úr 1.157 í 776 eða um 381. Atvinnulaus- um konum fækkaði minna eða úr 956 í 842 eða um 114. Þegar rýnt er í þessar tölur ber að horfa til þess að 360 erlendir ríkisborgarar hafa misst bótarétt frá áramótum, þar af hafa 221 farið af atvinnuleysisskrá. Sé þessum einstaklingum bætt við þá 1.618 sem voru án vinnu í lok mars er heildartalan hátt í 1.839. Fer sú tala nærri fjölda atvinnu- lausra í lok mars í fyrra. Kunna að hafa flutt frá landinu Þá er ekki hægt að útiloka að ein- hverjir þeirra erlendu ríkisborgara sem voru án vinnu fyrir ári hafi kosið að flytja frá landinu. Nákvæmar upplýsingar um það liggja ekki fyrir. Hins vegar kemur fram á vef Hag- stofu Íslands að 617 fleiri erlendir ríkisborgarar fluttu til landsins í fyrra en frá því. Fram kemur í sundurliðun Vinnumálastofnunar að verulega dregur úr atvinnuleysi á meðal erlendra ríkisborgara í mann- virkjagerð. Talan fer úr 393 einstak- lingum niður í 158. Hundruð missa bótarétt  Atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara fer minnkandi  Skýrist að hluta af því að margir hafa misst bótaréttinn MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013 Þremur vikum í lýsingu og grein- ingu og loks tveimur vikum í stefnumótum, markmið og tillögur um aðgerðir. Alls sjö vikum. Vinnan átti að hefjast 7. febrúar 2012. Frá þeim tíma til dagsins í dag hafa liðið 62 vikur. Það má því segja að vinnan, eins og hún er stödd í dag, sé 55 vikum á eftir áætlun og ennþá eru eftir fimm vikur af vinnu við gerð vernd- aráætlunarinnar miðað við upp- haflega verkáætlun. „Svona áætlun þarf að gera fyr- ir eyna miðað við núverandi að- stæður og við munum reyna að vinna með Umhverfisstofnun eins og við getum að því að þessi mál nái einhverri farsælli lausn,“ segir Ásgeir Magnússon, sveitarstjóri Mýrdalshrepps. Sveitarfélagið á fulltrúa í ráðgjafarnefndinni ásamt landeigendum, ábúendum, Ferða- málastofu og Náttúruverndar- samtökum Suðurlands. Mýrdals- hreppur hefur daglega umsjón með Dyrhólaey samkvæmt samn- ingi við UST. Verndaráætlun Dyr- hólaeyjar ári of sein  Átti að ljúka 1. maí 2012  Verður kynnt á næstunni Morgunblaðið/Brynjar Gauti Verndaráætlun Friðlandið Dyrhólaey er vinsæll áningarstaður ferðafólks. BAKSVIÐ Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is „Við erum komin að því að fara að kynna hana fyrir almenningi. Það má segja að hún liggi fyrir í drög- um en næsta verk er að auglýsa og kynna hana og fá inn at- hugasemdir áður en hún verður endanlega samþykkt,“ segir Ólaf- ur A. Jónsson, sviðsstjóri hjá Um- hverfisstofnun, um gerð vernd- aráætlunar fyrir Dyrhólaey í Mýrdal. Ólafur er formaður sex manna ráðgjafarnefndar um mál- efni eyjarinnar. Dyrhólaey hefur verið friðlýst síðan 1978 en 20. febrúar 2012 var kynnt verk- og tímaáætlun fyrir gerð verndaráætlunar um frið- landið. Samkvæmt henni átti verndaráætlunin að vera komin í gegnum fimm áfanga ferli og vera samþykkt fyrir 1. maí 2012. „Það hefur bara því miður dreg- ist vegna ýmissa mála að vinna eftir þeirri áætlun. Hún liggur fyrir núna og er í rauninni í skoð- un hjá fulltrúum nefndarinnar,“ segir Ólafur. Vonar að henni ljúki í vor „Á síðasta fundi ráðgjaf- arnefndar sem var í mars bað ég nefndarmenn um að taka til skoð- unar verndaráætlunina og koma með athugasemdir til þess að við gætum lokið við hana. Ég geri mér miklar vonir um að hún verði klár núna þetta vorið,“ segir hann. Samkvæmt verk- og tímaáætluninni átti kynningar- og athugasemdaferli að hefjast 28. mars 2012 og vera lokið 17. apríl sama ár. Þar stendur ferlið í dag, tæpu ári á eftir áætlun. Verkinu átti að vera endanlega lokið 1. maí í fyrra. Verk- og tímaáætlunin gerði ráð fyrir tveimur vikum í undirbúning. „Þessi áætlun er nauðsynleg vegna þess að sá fjöldi ferða- manna sem kemur í eyna á hverj- um tíma er meiri heldur en þetta landsvæði ræður við án verulegr- ar uppbyggingar og skipulagn- ingar,“ segir Ásgeir Magnússon, sveitarstjóri Mýrdalshrepps. „Sérstaklega hvað varðar merkingu gönguleiða, varanlega göngustíga og ýmiskonar að- stöðu eins og sal- ernisaðstöðu. Það er hugmyndin að byggja slíka að- stöðu á lágeynni á næstunni,“ segir hann. Ræður varla við fjöldann FERÐAMENN Í DYRHÓLAEY Ásgeir Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.