Morgunblaðið - 17.04.2013, Blaðsíða 11
blanda þeim saman. „Ég held að bil-
aða vigtin mín sé ástæða þess að sumt
smakkast öðruvísi hjá mér en vinkon-
um mínum þó uppskriftin sé sú
sama,“ segir hún og hlær.
Jákvæð spennuorka
Kristín er varaformaður í flug-
freyjufélaginu og býður sig nú fram
til formanns. „Ég hef starfað sem
flugfreyja í sautján ár og kann því af-
ar vel. Ég hef líka notið þess að starfa
fyrir stéttarfélagið og ég er með alls-
konar hugmyndir til að gera félagið
enn betra.“ Hún segir að það sem
geri flugfreyjustarfið skemmtilegt sé
sú staðreynd að allir sem koma um
borð séu í langflestum tilfellum að
fara að gera eitthvað skemmtilegt.
„Þetta er fólk sem hefur hlakkað til
og það kemur með góða orku inn í
flugvélina. Þessi sameiginlega já-
kvæða spennuorka nærir okkur
starfsfólkið. Vinnufélagar mínir eru
líka frábærir og það skiptir ekki svo
litlu máli í vinnunni.“ Þegar hún er
spurð að því hvort ekki geti verið
þreytandi að vinna við þær aðstæður
sem eru um borð, þröngt og takmark-
að rými, segir hún að nýlega hafi ver-
ið gerð könnun um álag starfsfólks-
ins. „Þá kom í ljós að góðu félagslegu
tengslin milli okkar sem störfum um
borð gera þetta allt bærilegra og
minnka álagið. Vinnumórall og vinnu-
staðamenning hefur ofboðslega mikið
að segja.“
Er einhver á lausu?
Kristín segir að af nógu sé að
taka þegar kemur að eftirminnilegum
atvikum úr sautján ára starfi um
borð. „Misskilningur í samskiptum
okkar við farþega er oft í tengslum
við tungumál og getur verið
skondinn. Um daginn gekk farþegi
um borð og spurði okkur tvær sem
stóðum við dyrnar, hvort einhver
væri á lausu. Við urðum orðlausar í
smástund en hann átti auðvitað við
hvort einhver sæti væru laus um
borð. Maðurinn hló sjálfur svo mikið
að við fengum öll hláturskast.“
Kristín segir að vissulega sé
munur á fólki eftir því frá hvaða lönd-
um það komi. „Við þurfum að setja
okkur í ákveðnar stellingar gagnvart
sumum. Frakkar, Hollendingar og
Þjóðverjar eru til dæmis rólyndisfólk
og flug með þeim eru yfirleitt róleg.
Svíarnir eru aftur á móti svolítið líkir
Íslendingum. En stemningin um borð
fer líka eftir því hvert fólk er að fara.
Ef fólk er að fara í sólarlandaferð þá
er allt öðruvísi stemning um borð
heldur en þegar fólk er að fara í við-
skiptaferð. Farþegasamsetningin
ræður miklu um andrúmsloftið og við
lesum hópinn hverju sinni og skiptum
um hlutverk. Það er ekkert mál, við
erum vön því. Á sumrin og í kringum
jólin er mikið um barnafólk og þá er
allt öðruvísi dínamík heldur en þegar
eingöngu fullorðnir eru um borð.“
Margt getur komið upp á
Kristín segir að starfsfólkið um
borð fái mjög góða þjálfun í því að
ræða við fólk og leysa úr vanda-
málum á staðnum. „Vandamál sem
koma upp leysast yfirleitt farsællega,
en ef það verður eitthvað alvarlegra
þá erum við líka með þjálfun í því að
takast á við það, hvort sem það er
tengt þjónustu eða öryggi.“ Margt
getur komið upp á, til dæmis eru
sumir sjúklega flughræddir. „Ég sat
eitt sinn í tvo tíma á gólfinu á leið til
Boston, til að halda í höndina á konu
og styðja hana, en hún var svo flug-
hrædd að hún var skelfingu lostin og
gat ekki staðið upp. Það hafði verið
ókyrrð í lofti og hún missti stjórn á
óttanum. Þá settum við í forgang að
sinna konunni.“
Rúllið yfir sneiðina með kökukefli þar til hún
er orðin jafn þunn og mexíkósk pönnukaka.
Penslið með olíu, látið ofan í míní-múffuform, bakið í ofni við 190° í 10 mín.
Búið til kalt kjúklingasalat og setjið í brauðkörfurnar og berið fram. Það
tekur mjög stuttan tíma að búa til brauðkörfur og krakkar hafa gaman af
því að hjálpa til, bæði við að skera út brauðið og fletja það með kökukefli.
Brauðkörfur, aðferð
Leggið glas ofan á brauð-
sneið og skerið meðfram út-
línunum til að fá hringsneið.
Vinnufélagar mínir eru
líka frábærir og það
skiptir miklu máli.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013
www.kia.com
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
0
6
2
Nýr Kia cee’d er kraftmikill, sparneytinn, rúmgóður og enn betur búinn
en nokkru sinni. Hann eyðir aðeins 4,1 l/100 km í blönduðum akstri og
fær því frítt bílastæði í Reykjavík í 90 mínútur í senn.
Eigum bíla til afgreiðslu strax! Komdu og reynsluaktu.
Kaupau
ki:
Vetrar
-
dekk
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
* M.v. 50% útborgun eða uppítökubíl að sambærilegu verðmæti og bílasamning ERGO í 84 mánuði.
9,70% óverðtryggðir vextir. Árleg hlutfallstala kostnaðar 10,7%.
Komdu og prófaðu
sparneytinn Kia cee’d
Verð frá 3.490.777 kr. Kia cee’d dísil
Aðeins 29.777 kr. á mánuði í 84 mánuði*