Morgunblaðið - 17.04.2013, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Einu sprengjurnar sem fundist
hafa á vettvangi hryðjuverksins í
Boston á mánudag voru þær tvær
sem sprungu með nokkurra sek-
úndna millibili skammt frá mark-
línu Boston-maraþonsins. Þetta
kom fram á blaðamannafundi ríkis-
stjóra Massachusetts, Deval Pat-
rick, í gær vegna sprenginganna í
Boston. Hann sagði jafnframt að
ekki væri talin ástæða til að óttast
fleiri sprengingar. Þrír létu lífið í
sprengingunum og 176 særðust, þar
af 17 lífshættulega. Enginn hafði
enn lýst ábyrgð á hendur sér í gær.
Atburðurinn varð um 10 mínút-
um fyrir tvö að staðartíma, þá voru
liðnar um tvær stundir frá því að
fyrstu hlaupararnir komu í mark.
Fjöldi fólks var þó enn á staðnum.
Innan við hundrað metrar voru á
milli sprengjustaðanna sem eru í
miðborginni. Fulltrúar bandarísku
alríkislögreglunnar, FBI, kembdu í
gær svæðið í leit að vísbendingum.
Þeir hvöttu fólk til þess að hafa
samband við yfirvöld ef það hefði
einhverjar upplýsingar um árásina.
Þegar hefði borist fjöldi ábendinga
sem verið væri að fara yfir. Fólk
var sérstaklega hvatt til þess að
leggja fram ljósmyndir og upptök-
ur.
Engar hótanir höfðu borist
Fram kom á fundinum með Pat-
rick og FBI að enginn hefði verið
handtekinn en margir verið yfir-
heyrðir vegna málsins. Ekki væri
vitað til þess að hótun hefði borist
áður en sprengingarnar urðu.
Í hópi hinna slösuðu eru að
minnsta kosti 17 manns í lífshættu.
Einn hinna látnu var átta ára
drengur og mörg börn eru meðal
særðra. Sumir misstu útlimi í
sprengingunum, að sögn Fox-sjón-
varpsstöðvarinnar voru tveir bræð-
ur í hópi þeirra sem líklega yrði að
aflima. Aðrir hlutu slæm brunasár.
Lögreglumaðurinn Roupen Bas-
tajian hafði nýlokið hlaupinu þegar
hann heyrði hvellinn. „Við gripum
strax æðaklemmur og fórum að
binda um fætur,“ sagði hann.
Öryggisráðstafanir hafa verið
hertar í Boston og leyfi allra lög-
reglumanna voru afturkölluð, einn-
ig voru menn mjög á varðbergi í
öðrum stórborgum, ekki síst við
flugvelli.
Kemba svæðið í leit að vísbendingum
Enginn hefur lýst sprengjutilræðinu í miðborg Boston á hendur sér Öryggisráðstafanir hertar
Sprengingarnar í Boston
Minnst þrír létu lífið og tugir manna særðust illa
Rásmark
Markið
Tvær sprengingar þegar
liðnar voru 4 stundir og
níu mín. af hlaupinu.
Fyrri sprengingin
Markið
Old South
Church
Sjúkratjald
v. hlaupsins
Almenningsbókasafnið
í Boston
Copley-torg
Com
mon
weal
th-br
eiðg
ata
H
ereford
S
t
Mandarin-hótel
Lenox-
hótel
Boyl
ston
St
Hu
nt
in
gt
on
-b
re
ið
ga
ta
Seinni sprengingin
Bandaríkin
Boston
Ashland-klukkuturninn
Wellesley-háskóli
Boston-háskóli
50 m
Um 23.000 tóku þátt í hlaupinu
AFP
Sorg Kona á vettvangi tilræðisins
talar grátandi í farsíma sinn.
Enn var
ekkert vit-
að í gær
um það
hver eða
hverjir
hefðu
staðið á
bak við
sprenging-
arnar
mann-
skæðu í
Boston. Talíbanar í Pakistan
sendu frá sér yfirlýsingu og
sögðust engan þátt hafa átt í
þessum atburðum. Þeir hafa
áður hótað að gera hryðju-
verkaárásir í Bandaríkjunum.
Sprengjurnar voru að sögn
BBC fremur frumstæðar.
Alls ekki er hægt að útiloka
að gerandinn hafi verið einn,
ef til vill innfæddur Banda-
ríkjamaður.
Tilræðin voru fordæmd um
allan heim. Barack Obama
Bandaríkjaforseti sagði í gær
að ljóst væri nú að um hryðju-
verk hefði verið að ræða.
Hann lagði áherslu á að
Bandaríkjamenn létu ekki
hræða sig. Þeir brygðust við
voðaverkunum af ást, sam-
kennd og ósérhlífni.
Talíbanar
neita aðild
HVER SPRENGDI?
Barack Obama
ÖRYGGISVÖRUR IÐNAÐARMANNSINS
OG VERKTAKANS FULL BÚÐ AF ÖRYGGIS- OG REKSTRARVÖRUM.
KÍKTU Í KEMI BÚÐINA OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.