Morgunblaðið - 17.04.2013, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 17.04.2013, Blaðsíða 17
VIÐTAL Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is „Við erum algerlega ótengd öllum hagsmunaaðilum, við tökum ekki við fjármagni frá lögaðilum, viljum að- skilnað stjórnmála og viðskiptalífs. Hér er engin valdaklíka sem öllu ræður og getur togað í spotta,“ segir Margrét Tryggvadóttir, aðspurð hvað aðskilur flokk hennar Dögun frá gamla fjórflokknum. Margrét er efsti maður á lista Dögunar í Suð- vesturkjördæmi. Ekki eins máls flokkur En hvað aðskilur Dögun frá hin- um fjölmörgu nýju framboðum sem hafa sprottið upp? „Kannski ásamt Bjartri framtíð erum við það fram- boð sem er með hvað heildstæðast skipulag og stefnu í öllum mála- flokkum. Stefna okkar hefur verið unnin í málefnahópum sem hafa ver- ið öllum opnir,“ segir Margrét og tekur fram að ekki sé um eins manns framboð eða eins máls fram- boð að ræða eins og sé í einhverjum tilvikum raunin með hin nýju fram- boð. „Við skerum okkur úr hvað varðar önnur ný framboð því við er- um búin að vinna að þessu í eitt og hálft ár, öll okkar stefnumótun hefur farið fram í opnu og lýðræðislegu ferli.“ Liðsmenn Dögunar koma úr ýms- um áttum, einhverjir koma úr Borg- arahreyfingunni og Hreyfingunni auk þess sem aðilar innan Hags- munasamtaka heimilanna hafa verið atkvæðamiklir innan Dögunar. Þá hafa einstaklingar sem börðust gegn Icesave-samningunum verið áber- andi í starfi Dögunar sem og stuðn- ingsmenn nýrrar stjórnarskrár. Að sögn Margrétar setur Dögun þrjú mál á oddinn fyrir kosningar, skuldir heimilanna, lýðræðis- umbætur og skipan auðlindamála. „Í fyrsta lagi eru það skuldir heimilanna, leiðréttingar á lánum, afnám verðtryggingar og efnahags- málin. Við viljum leiðrétta lánin, þennan forsendubrest. Við tölum um 26% leiðréttingu að meðaltali. Þá erum við að tala um að leiðrétta umfram verðbólgumarkmið Seðla- bankans,“ segir Margrét. Dögun er til viðræðu um aðferðir til að standa straum af slíkri niður- fellingu skulda að sögn Margrétar. „Við lokum ekki á neina leið, við segjum ekki endilega að okkar leið sé sú eina rétta.“ Spurð um leiðir til að afla tekna á móti slíkri niður- fellingu nefnir Margrét skattlagn- ingu á hagnað bankanna sem hafi hagnast um 200 milljarða frá hruni. Margrét segir að sá hagnaður komi að miklu leyti til vegna þess gríðar- lega afsláttar sem þeir hafi fengið af lánasöfnum, sá afsláttur hafi hins- vegar ekki nema að litlu leyti runnið til heimilanna. Margrét segir að Dögun vilji heldur ekki útiloka þá leið sem Framsóknarflokkurinn hafi lýst. Að lokum nefnir Margrét skiptigengisleið sem Þjóðverjar hafi framkvæmt, sú leið hugnist Dögun hvað best. Auðlindamál er annað mál sem Dögun setur á oddinn. Margrét seg- ir að Dögun muni berjast fyrir nýju fiskveiðistjórnunarkerfi og sjálf- bærri nýtingu á öllum náttúru- auðlindum. Þá þurfi einnig að tryggja þjóðinni meiri arð af auð- lindum sínum. „Það þarf að tryggja að ekki sé farið í framkvæmdir nema tryggt sé að þær séu raun- verulega arðbærar.“ Lýðræðisumbætur á oddinn Þriðja málið sem Dögun setur á oddinn eru lýðræðisumbætur. „Við erum að tala fyrir þessari nýju stjórnarskrá. Við viljum hana og ýmislegt sem hún felur í sér, þ.e. meiri völd til fólksins, að fólk hafi meira um sín mál að segja.“ Í stefnu Dögunar segir að leggja eigi áherslu á að taka upp persónukjör og á rétt þjóðarinnar til að óska eftir þjóð- aratkvæðagreiðslum. Þá er einnig talað fyrir siðvæðingu stjórnsýslu og fjármálakerfis í kjarnastefnu Dögunar. „Ný stjórnarskrá kæmi þar sterk inn, þar er t.d. gerð krafa á að ráð- herra segi satt sem er ekki í núgild- andi lögum. Þar er einnig tekið á upplýsingaskyldu stjórnvalda gagn- vart almenningi. Þar er fullt af atrið- um sem hægt er að tína til,“ segir Margrét að lokum. Vilja leiðrétta forsendubrest  „Hér er engin valdaklíka sem öllu ræður og getur togað í spotta,“ segir Margrét Tryggvadóttir um Dögun  Tala um 26% leiðréttingu lána að meðaltali  Eru til viðræðu um aðferðir Morgunblaðið/Golli Ný stjórnarskrá Margrét hefur barist kröftuglega fyrir nýrri stjórnarskrá og að tillögur stjórnlagaráðs verði að veruleika í nýrri stjórnarskrá. Margrét segir að þær lýðræðisumbætur sem Dögun kalli eftir færi völdin til fólksins. 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013 Hyundai Santa Fe Comfort 2,2 dísil, sjálfskiptur. Verð 7.650 þús. kr. Eyðsla 6,6 l/100 km* HYUNDAI SANTA FE SPARNEYTINN DÍSILJEPPI NEW THINKING. NEW POSSIBILITIES. Kauptúni 1 - 210 Garðabæ 575 1200 - www.hyundai.is Verið velkomin í reynsluakstur * M ið as t vi ð bl an da ða n ak st ur sa m kv æ m t fr am le ið an da E N N E M M / S ÍA / N M 5 7 5 3 4 Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070Hyundai / BL ehf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.