Morgunblaðið - 17.04.2013, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.04.2013, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013 Brammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á Slöngur og þvottabyssur Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Hrúturinn er fyrsta merki dýrahrings- ins og vill vera fyrstur í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur. Innst inni óska margir þess að vera líkir honum. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er gott að læra eitthvað nýtt á hverjum degi. Gríptu tækifærið til að koma þér áfram, einkum í tengslum við starfið. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Maður er eins sætur og manni finnst, sem eru góðar fréttir því þér finnst þú mjög heillandi í dag. Hóaðu eftir liðsauka, þess þarf með og gefðu skýr fyrirmæli. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Að sjálfsögðu finnurðu fyrir spennu í dag enda mikið í gangi hjá þér. Hlúðu að sjálf- um þér og imundu að hvatning virkar mun betur en gagnrýni. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Hugkvæmni þín er aðdáunarverð og mun færa þér margan sigurinn. Stundum verðurðu að láta eðlisávísunina ráða og hrökkva eða stökkva. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þótt þig langi ekkert til þess kann svo að fara að þú verðir að deila sérstökum hlut með öðrum. Gefðu þér tíma til að skoða það betur og allt mun ganga vel. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er ekkert að því að kveðja fleiri til, þegar vandasöm verk eru á döfinni. Taktu þér tíma til þess að kanna málin. Láttu faguryrði ekki blekkja þig. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er ekki gaman að deila við vini eða vandamenn. Aðrir eiga mikið undir viðbrögðum þínum svo þú skalt temja þér til- litssemi í þeirra garð. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert ekki viss um hvernig þú eigir að taka á málunum í dag. Stíg þú fyrsta skrefið. Nauðsynlegt er að huga að hverju smáatriði ef heildarútkoman á að vera rétt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þetta er ekki rétti dagurinn til að sitja heima. Þú þarft að horfast í augu við vandamál liðins tíma. Sýndu þolinmæði og þá mun allt leysast farsællega. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Sannleikurinn er sagna bestur og það skaltu hafa í huga allavega gagnvart þín- um nánustu. Haltu áfram að fylgja hug- myndum þínum eftir, sama hvort þær heppn- ast að þínu mati eða ekki. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert alvörugefinn í dag. Reyndu að fá að vera í einrúmi part úr degi. Ef þú neyðir þig til þess að vera glaður í bragði, finnur þú eitthvað til þess að gleðjast yfir. Skírnir Garðarsson hitti SigrúnuHaraldsdóttur í kirkju og þekkti hana ekki. Er hann uppgötv- aði yfirsjónina varð honum að orði: Konu ég vaska í kirkju sá hún kunnugleg sýndist mér. Förlast tekur nú flestallt hjá fauski sem gamall er. Sigrún tók þetta ekki nærri sér, enda fermingarathöfnin falleg og hún sjálf „herfilega ómannglögg“. Auk þess þekkti hún varla sjálfa sig í spegli á morgnana nema hún væri búin að fara í sturtu og mála sig. Minnisleysið með sér bar, mér að fullu skýring dugar; guðsmaðurinn góði var greinilega annars hugar. Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía á Sandi, lagði orð í belg: Held það ætti að hugga þig að hér eru fleiri blindir. Ég þekki sjaldan sjálfa mig sjái ég nýjar myndir. Pétur Stefánsson staðfestir að Sigrún sé ómannglögg. „Við vorum bekkjarsystkin einn vetur í Vörðu- skóla … Ég bauð henni átta sinnum í bíó, tvisvar í leikhús og 12 sinnum út að borða, sem hún þáði í öll skiptin. En hún man sjálfsagt ekk- ert eftir þessu. Hún er alveg fer- lega gleymin og ómannglögg. Engu lýg ég um það hér – er það hennar ljóður ekki man hún eftir mér; æsku skólabróður.“ Sigrún var fljót til svars: Lítið úr fyrndinni muna má mest vegna ólgu og svíma, man þó að stöðugt ég starði á stráka á þessum tíma. En Pétur lét sér ekki segjast og bætti við: „Gleymdi að minnast á það að við Sigrún vorum á föstu um fimm mánaða skeið fyrir langa- löngu. En hún man það örugglega ekki. Ferðuðumst við um frygðarlönd frjáls úr kynlífshöftunum. Ástfangin gengum hönd í hönd og héngum saman á kjöftunum.“ „Það er ekki eðlilegt hvað ég er gleymin,“ skrifaði Sigrún er hún heyrði vísuna: Þótt minninguna geti ei greint gæti kviknað skíma hart ef verður rembst og reynt að rifja upp þessa tíma. En … Ef að fjörugt ástarfar æfðum forðum saman hjá okkur þá vísast var voðalega gaman. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af ferlegri gleymni, æsku og frygðarlöndum Í klípu „AUÐVITAÐ ÁTTU PABBA. EN ÞEGAR ÞÚ FÆDDIST ÁKVÁÐUM VIÐ AÐ ÉG YRÐI HEIMA OG HANN YRÐI Í VINNUNNI.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „FINGRAFÖRIN ERU NOKKUÐ AFGERANDI SÖNNUNARGÖGN Í ÞESSU TILFELLI, DÓMARI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hafa gaman af því að keyra eitthvert, því hún vill ekki fljúga. EGILSSTAÐIR 652 KM GRETTIR, ÉG TÝNDI SÍMANUM MÍNUM! ÉG ER SVO EINANGRAÐUR ... OG ÞAÐ ER GOTT! SVONA LEIÐ HELLIS- BÚUNUM LÍKA. ÉG ÞRÆLA OG PÚLA ALLAN DAGINN OG ÞÚ SITUR BARA ÞARNA OG ÆTLAST TIL AÐ KVÖLDMATURINN SÉ STRAX TILBÚINN! ÞAÐ ER EKKI SATT ... ÉG ER ALVEG TIL Í AÐ FÁ MÉR ANNAN BJÓR OG BÍÐA SMÁ. Víkverji hefur verið að velta þvífyrir sér hvort hann geti ekki komið böndum á tímann. Honum finnst tíminn líða of hratt og vik- urnar einhvern veginn renna saman við mánuðina, sem hverfa inn í árin. Minnið er sem betur fer enn til stað- ar – hann heldur það að minnsta kosti og hafi hann gleymt einhverju man hann ekki eftir því. Gallinn er hins vegar sá að þótt minnið haldi at- burðum og uppákomum til haga er tímaröðin í rugli. Víkverji man ekki hvort tiltekinn atburður gerðist í fyrra, hittifyrra eða fyrir hálfum áratug. Eins fáránlega og það virðist er Víkverji líklegri til að muna hvort eitthvað gerðist þegar hann var fjór- tán ára heldur en þegar hann var fertugur. Þetta finnst Víkverja órök- rétt. Eðlilegra væri að muna hvenær nýlegir atburðir hefðu gerst, en eitt- hvað, sem átti sér stað fyrir nokkr- um áratugum. x x x Víkverji sá nýverið skýringu áþessu, sem honum fannst nokk- uð trúverðug. Hún hljómaði eitthvað á þá leið að í barnæsku (að fyrstu ár- unum slepptum) og á unglingsárum væri allt svo nýtt og framandi að það stimplaðist af krafti inn í minn- isbankann. x x x Með árunum yrði hins vegar það,sem eitt sinn var óvenjulegt, hversdagslegt fyrir utan það að við- fangsefnin hættu að vera jafn fjöl- breytt og áður, árin liðu í sömu vinnunni og færra teldist til tíma- móta en áður. Þetta ylli því að okkur virtist tíminn hafa verið lengur að líða á yngri árum en þegar fram í sækir. Víkverji veit ekki alveg hvernig hann á að bregðast við þess- ari kenningu. Er hún tilefni til þess að breyta um kúrs – myndi Víkverja virðast tíminn fyllri og lengur að líða ef hann skipti um vinnu á nokkurra mánaða fresti, varpaði sér ofan í djúpar gjár festur í teygju, gerðist ljónatemjari, færi að stunda djúp- köfun, húrraði á gúmbát niður ólg- andi ár og gerði sér almennt far um að forðast þægindi og endurtekn- ingu? Eða verður Víkverji einfald- lega að sætta sig við að hann kemur engum böndum á tímans flug? víkverji@mbl.is Víkverji Engill Drottins setur vörð kringum þá sem óttast hann og frelsar þá. (Sálmarnir 34:8)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.