Morgunblaðið - 17.04.2013, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 17.04.2013, Qupperneq 10
Morgunblaðið/Rósa Braga Listakokkur Kristín Bjarnadóttir nýtur þess að vanda til verka þegar hún býr til eitthvað matarkyns í eldhúsinu. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þ egar ég fermdi stelpuna mína um daginn slógu brauðkörfurnar mínar svo rækilega í gegn að ég hef gert þó nokkuð af því að búa þær til fyrir aðrar fermingar í vinkonu- og fjölskylduhópnum síð- an,“ segir Kristín Bjarnadóttir flug- freyja sem er margt til lista lagt. „Ég hef ofboðslega gaman af því að halda veislur og margir af þeim gestum sem koma til mín aftur og aftur eiga það til að krefja mig um að hafa eitt- hvað ákveðið sem þeir hafa fengið áð- ur. Ég legg mikið upp úr því að sjá al- farið sjálf um veislur á mínu heimili sem tengjast stórum stundum eins og skírnum, fermingum og afmælum. Mér finnst rosalega gaman að gefa mér góðan tíma í það, nostra við hlut- ina og gera þá vel,“ segir Kristín sem sækir sér hugmyndir í allskonar blöð og vefsíður og er óhrædd við að Við lesum hópinn hverju sinni um borð Hún er listakokkur og hefur starfað sem flugfreyja í sautján ár og er varafor- maður flugfreyjufélagsins. Kristín Bjarnadóttir býður sig nú fram til formanns fé- lagsins enda vill hún veg þess sem mestan. Störfin í háloftunum geta tekið á sig ýmsar myndir, eitt sinn þurfti hún að sitja á gólfinu hjá konu í tvo tíma. Morgunblaðið/Rósa Braga Flugfreyjur Kristín lengst t.v. með vinkonum sínum í uppáhaldsstarfinu. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013 Eins og svo margir var Kevin Lynch lengi vel verið fastur í því fari að elda alltaf sama matinn og hafði í sjálfu sér lítinn áhuga á mat. Þegar hann var búinn að vera með nánast sömu máltíðina á disknum árum saman fannst honum kominn tími á breyt- ingu. Hann hellti sér út í elda- mennsku og sér til mikillar furðu hafði hann mikla ánægju af því að töfra fram dýrindis mat úr ólíkum hráefnum. Það sem honum áður þótti leiðinlegt var á augabragði orðið áhugamálið. Í dag heldur hinn kan- adíski Kevin Lynch úti vefsíðunni clo- setcooking.com sem vísar í pínulitla eldhúsið sem hann notast við dag- lega. Á síðunni má finna fjölbreyttar og góðar mataruppskriftir. Vefsíðan www.closetcooking.com Girnilegt Skápakokkurinn Kevin Lynch er mikill samlokumaður. Kanadíski kokkurinn í skápnum Í kvöld kl. 20 verður heimspekikaffi í Gerðubergi undir yfirskriftinni: Hin hliðin á lífinu. Þar verður viðhorf til lífs og dauða í brennidepli og ætla Gunnar Her- sveinn heimspekingur og Bjarni Randver Sigurvinsson guðfræðingur að efna þar til umræðu um líf og dauða út frá mörgum og stundum óvæntum sjónarhornum. „Lífið er undirbúningur fyrir dauð- ann,“ sagði Sókrates forðum en hvað átti hann við? Hver er afstaða austrænna trúar- bragða til dauð- ans, t.d. hindú- isma og búddisma? Hvernig birtist afstaða manna til dauðans í út- fararsiðum? Hvaða merkingu leggja einstök trúar- brögð í dauðann? Er hægt að segja að sérhver siður svari því með skýrum hætti eða gefi mörg svör við ráðgátunni um dauðann? Þetta og margt fleira mun bera á góma í heim- spekikaffinu í kvöld. Allir eru hjartanlega vel- komnir. Endilega … Bjarni Randver Gunnar Hersveinn … tékkið á hinni hliðinni á lífinu Margar hliðar eru á teningi. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Konfúsíusarstofnunin Norðurljós sýnir kvikmyndina Shanghai klíkan í Öskju 132, í dag kl. 16. Sveitastrákur sem er skyldur fólki í skipulagðri glæpaklíku í Shanghai er fenginn til starfa í Shanghai-borg á fjórða ára- tug síðustu aldar sem þjónn hjákonu foringjans. Leikstjóri er hinn víðfrægi Zhang Yimou. Myndin hefur verið til- nefnd og unnið til fjölda verðlauna, þar á meðal í Cannes og á Óskars- verðlaunahátíðinni. Aðalhlutverk eru í höndum Gong Li og Li Baotian. Shanghai klíka Frítt í bíó ÞAR SEM BARN ER Hamraborg 9 | sími 564 1451 | www.modurast.is | opið 10-18 virka daga og 12-16 laugardaga Mikið úrval af kerrum og barnabílstólum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.