Morgunblaðið - 17.04.2013, Síða 18

Morgunblaðið - 17.04.2013, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013 ● Um 300 manns frá 180 kínverskum fyrirtækjum sóttu í dag viðskiptaþing sem haldið var í Peking í gær í tilefni af nýjum fríverslunarsamningi milli Ís- lands og Kína. Aðsóknin varð þrefalt meiri en búist var við í upphafi. Í til- kynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að á þinginu hafi verið lagður grunnur að margvíslegum tengslum kínverskra og íslenskra fyrirtækja. Nánar á mbl.is Margir mættu í Peking Fjárfestingarfélagið Kjölfesta hefur keypt 30% hlutafjár í afþreyingar- fyrirtækinu Senu ehf., ásamt dótt- urfélögum Senu. Félagið er í eigu 14 fagfjárfesta, þar af 12 lífeyrissjóða. Tilgangur félagsins er að fjárfesta í meðalstórum og smærri fyrirtækj- um á Íslandi, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu. „Þessi fjárfesting er í takt við fjár- festingarstefnu Kjölfestu, við viljum byggja upp dreift eignasafn og fjár- festa í fyrirtækjum með góða rekstr- arsögu. Við erum stolt af því að fjár- festing í Senu er fyrsta verkefni Kjölfestu og teljum að það séu tæki- færi í þeirri þróun sem er að eiga sér stað á afþreyingarmarkaðnum,“ seg- ir Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmda- stjóri Kjölfestu. Sena er stórt félag á íslenska af- þreyingarmarkaðnum á sviði, kvik- mynda, tónlistar, tölvuleikja, at- burða, leikfanga og dreifingar á stafrænu afþreyingarefni í gegnum dótturfélag sitt D3, en D3 rekur meðal annars tonlist.is. Sena rekur einnig þrjú kvikmyndahús. Hluthafar í Senu eftir kaupin eru auk Kjölfestu: Draupnir fjárfest- ingafélag ehf., Sigla ehf., Magnús Bjarnason og Björn Sigurðsson. Samið Tómas Kristjánsson frá Siglu, Kolbrún Jónsdóttir frá Kjölfestu, Jón Diðrik Jónsson og Björn Sigurðsson frá Senu. Kjölfesta hefur keypt 30% í Senu  Tækifæri á afþreyingarmarkaðnum Karlstjórnendur eru með 872 þús- und krónur að meðaltali á meðan kvenstjórnendur eru að meðaltali með 684 þúsund krónur í laun á mánuði. Þetta þýðir að karlinn er með 188 þúsund krónum meira í mánaðarlaun en konan. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri launakönnun Hagstofu Íslands. Stjórnendur voru með hæstu reglulegu launin á almennum vinnumarkaði árið 2012 en regluleg laun fullvinnandi stjórnenda voru 821 þúsund krónur að meðaltali. Fleiri stjórnendur voru með laun undir meðaltalinu en yfir því en helmingur hópsins var með 717 þúsund krónur á mánuði eða minna en það var miðgildi hópsins. Hafa ber í huga að starfsstéttin stjórnendur er misleitur hópur hvað varðar laun en í starfsstéttinni eru bæði yfirmenn deilda og æðstu stjórnendur fyrirtækja, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands. Þá voru regluleg laun lægst hjá verkafólki árið 2012, en regluleg laun þeirra voru 296 þúsund krónur að meðaltali hjá fullvinnandi launa- mönnum. Um 60% verkafólks voru með regluleg laun undir 300 þúsund krónum á mánuði. Í starfsstéttinni eru ekki mörg útgildi til hækkunar á meðaltalinu sem sést á því að mið- gildi hópsins var einungis 21 þús- und krónum lægra en meðaltalið. Regluleg laun verkamanna voru 305 þúsund krónur á mánuði að meðaltali en regluleg laun verka- kvenna voru 266 þúsund krónur. Munur milli kynja er því 39 þúsund krónur á mánuði. Mikill launamunur á milli karl- og kvenstjórnenda  Karlinn með 872 þúsund krónur en konan með 684 þúsund krónur á mánuði Lægstu launin Verkafólk var með lægstu launin 2012 samkvæmt launakönn- un Hagstofunnar, en 60% voru með undir 300 þúsund krónum á mánuði. Morgunblaðið/Golli                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-., +,/-,0 ++1-,1 23-02, 23-12 +4-.,+ +20-1, +-+/41 +,0-/ +5.-4+ ++,-05 +43-2 ++5-34 23-04, 23-14 +4-125 +20-42 +-23+/ +,,-1. +51-21 23/-4.02 ++,-/. +43-01 ++5-12 23-,1, 23-51 +4-1,/ +2,-+, +-2351 +,,-/0 +51-0, Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á MMeira á mbl.is Margverðlaunuð frönsk gæðagler SJÓNARHÓLL FRUMKVÖÐULL AÐ LÆKKUN GLERAUGNAVERÐS Á ÍSLANDI Reykjavíkurvegur 22 | S. 565 5970 | sjonarholl.is Umgjarðir og gler á lægra verði Nokkur hundruð umgjarðir á kostnaðarverði Margskipt gleraugu• 39.900 kr. umgjörð og gler. Frönsku Anateo verðlaunaglerin á• 48.900 kr. umgjörð og gler. Verðlaunaglampavörn frá NEVA MAX, 150%• harðari, sleipari og þægilegri í þrifum 8.000 kr. NEVA + milli glampavörn kr• 5.000 kr. Öll verð miðast við plast-gler. GLERAUGNAMARKAÐUR Þar sem lágt verð og gæði fara saman

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.