Morgunblaðið - 17.04.2013, Side 19

Morgunblaðið - 17.04.2013, Side 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013 STUTTAR FRÉTTIR ● Gjaldþrot fé- lagsins Mótormax ehf. nam rúmum 752 milljónum samkvæmt auglýs- ingu í Lögbirtinga- blaðinu í gær. Lýst- ar kröfur í búið voru tæplega 908 milljónir króna, en 155 milljónir króna fengust upp í veð- kröfur. Ekkert var greitt upp í almennar kröfur að fjárhæð 752,5 milljónir króna. Félagið rak stórverslun í Reykjavík sem seldi meðal annars fjórhjól, götu- hjól, sæþotur, hjólhýsi, húsbíla, felli- hýsi, hraðbáta og annan mótorsportsv- arning. Það var í eigu Magnúsar Kristinssonar, útgerðarmanns og fyrr- verandi eiganda Toyota á Íslandi. 750 milljóna gjaldþrot Magnús Kristinsson ● Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp úrskurð þann 25. mars sl. að IEMI ehf., áður Iceland Express, skyldi tekið til gjaldþrotaskipta. Um leið var Ást- ráður Haraldsson hrl. skipaður skipta- stjóri í búinu. Frestdagur er tilgreindur þann 1. mars 2013 og skiptafundur ákveðinn þann 28. júní nk. Skiptastjóri hefur skorað á alla þá, sem telja til skulda eða annarra rétt- inda á hendur búinu eða eigna í um- ráðum þess, að lýsa kröfum sínum innan tveggja mánaða frá fyrri birt- ingu innköllunar þessarar. Skrá um lýstar kröfur mun liggja frammi á skrifstofu skiptastjóra síðustu viku fyrir skiptafundinn. Iceland Express tekið til gjaldþrotaskipta Hörður Ægisson hordur@mbl.is Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) óttast að ólík efnahagsþróun helstu ríkja heims geti haft hættulegar af- leiðingar í för með sér fyrir efnahags- bata í heimshagkerfinu. Í nýrri skýrslu sjóðsins, World Economic Outlook, kemur fram að hagvaxtar- horfur hafi versnað til skemmri tíma. Hins vegar hefur sjóðurinn vænting- ar um öflugri efnahagsbata á seinni helmingi þessa árs. Þrátt fyrir að sjóðurinn sé þeirrar skoðunar að aðgerðir stefnusmiða beggja vegna Atlantsála hafi dregið úr neikvæðum áhrifum alþjóðlegu fjármálakreppunnar fyrir raunhag- kerfið þá telur AGS ástandið enn vera mjög brothætt. Í skýrslunni er vakin athygli á því að á sama tíma og hag- vöxtur sé öflugur í flestum nýmark- aðs- og þróunarlöndum þá sé annað uppi á teningnum hjá ríkari þjóðum heims – ekki síst á evrusvæðinu. Oli- ver Blinchard, aðalhagfræðingur AGS, bendir á að það sé einkum áhyggjuefni að svo virðist sem leiðir séu að skilja á milli Bandaríkjanna og evrusvæðisins hvað varðar ástand efnahagsmála og fjármálakerfisins. AGS lækkar spá sína frá því í jan- úar fyrir hagvöxt á heimsvísu úr 3,5% í 3,3% en á næsta ári mun hagvöxtur aukast nokkuð og mælast 4%. Sjóð- urinn telur að hagvöxtur verði minni á þessu ári í öllum stærstu hagkerfum heimsins – fyrir utan Japan – en gert var ráð fyrir í upphafi árs. Samdrátt- ur mun mælast 0,3% á evrusvæðinu og hagvöxtur verður aðeins rétt yfir 1% á árinu 2014. Í Bandaríkjunum gerir AGS aftur á móti ráð fyrir 1,9% hagvexti á þessu ári og 3% vexti ári síðar. Til meðallangs tíma stafar heims- hagkerfinu mest hætta af annars veg- ar skulda- og bankakreppunni á evru- svæðinu og hins vegar hvort ráðamönnum í Bandaríkjunum og Japan muni takast að grynnka á skuldum hins opinbera og lækka fjár- lagahallann. Að mati Alþjóðagjald- eyrissjóðsins er ekki til nein ein „töfralausn“ til hvaða aðgerða eigi að grípa til að stemma stigu við minnk- andi eftirspurn og draga úr miklum ríkisskuldum. AGS telur aftur á móti mikilvægt að stjórnvöld í Japan og Bandaríkjunum leggi aukna áherslu á að minnka halla á rekstri ríkisins. Á evrusvæðinu hvetur sjóðurinn þau ríki sem séu í þeirri stöðu að hafa til þess fjárhagslegt svigrúm – með öðr- um orðum Þýskaland – til að örva neyslu og eftirspurn í hagkerfinu. AGS ráðleggur hins vegar Bretum að „íhuga“ það að draga úr umfangs- miklum niðurskurðaráformum. Óttast að ólík efnahags- þróun ríkja hamli bata  AGS lækkar spár um hagvöxt fyrir flest stærstu hagkerfi heimsins Kínverskur útflutningur Þótt hagvöxtur hafi mælst undir 8% í Kína síðustu fjóra ársfjórðunga þá telur AGS að hagvöxtur verði 8% á þessu ári. AFP AGS og efnahagshorfur á heimsvísu » Hagvaxtarhorfur í heims- hagkerfinu hafa versnað til skemmri tíma. AGS spáir 3,3% hagvexti á þessu ári en 4% á því næsta. » Samdráttur mun mælast 0,3% á evrusvæðinu í ár en á næsta ári gæti hagvöxtur verið rétt yfir 1%. » AGS spáir 1,9% hagvexti í Bandaríkjunum á þessu ári en 3% árið 2014. » Hagvöxtur í Kína verður 8% og 8,2% á þessu og næsta ári. Guðmundur Steingrímsson Katrín Jakobsdóttir Orri Hauksson Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Bjarni Benediktsson Björgólfur Jóhannsson Árni Páll Árnason SKRÁNING Á WWW.SA.IS HVERNIG ÆTLA ÞAU AÐ ÖRVA ATVINNULÍFIÐ? MORGUNVERÐARFUNDUR Í SILFURBERGI HÖRPU FIMMTUDAGINN 18. APRÍL KL. 8.30-10 Formenn Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Framsóknarflokks ræða um mikilvægustu mál samfélagsins. Björgólfur Jóhannsson, formaður SA, setur fundinn Orri Hauksson, framkvæmdastjóri SI, stýrir umræðum Bein útsending á vef SA. Kraftmikið kaffi frá kl. 8. 90 MÍNÚTUR STÖÐUGLEIKI SKATTAR FJÁRFESTINGAR GJALDEYRISHÖFT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.