Morgunblaðið - 17.04.2013, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013
Skömmu fyrir
þinglok samþykkti
Alþingi frumvarp
sem ekki fékk
mikla athygli en
áhugafólk um lýð-
ræði ætti að láta
sig varða. Um er að
ræða breytingar á
sveitarstjórn-
arlögum sem veita
heimild til raf-
rænna íbúakosn-
inga og gerðar rafrænnar kjör-
skrár og miðar heimildin að
því að styðja við þróun og
framkvæmd rafræns lýðræðis í
sveitarfélögum.
Starfshópur innanrík-
isráðherra
Forsaga þessa máls er sú að
26. júní á síðasta ári skipaði
Ögmundur Jónasson innanrík-
isráðherra stýrihóp um raf-
ræna stjórnsýslu og rafrænt
lýðræði í samvinnu við Sam-
band íslenskra sveitarfélaga.
Hópurinn skilaði tveim meg-
intillögum í október sl., ann-
arsvegar um rafrænar auð-
kenningar á vegum hins
opinbera sem innanrík-
isráðherra fól Þjóðskrá að
framkvæma og hinsvegar um
ofangreint frumvarp.
Lögin heimila innanrík-
isráðherra, að beiðni viðkom-
andi sveitarstjórnar, að víkja
frá ákvæðum X. kafla sveit-
arstjórnarlaga þannig að íbúa-
kosning fari eingöngu fram
með rafrænum hætti og að
kjörskrá vegna íbúakosninga
verði rafræn. Meginmarkmið
laganna er að auðvelda sveit-
arfélögum að kanna vilja íbúa
þeirra til ýmissa mála og um
leið að auðvelda íbúum að hafa
áhrif á stjórnun og stefnumót-
un viðkomandi sveitarfélaga.
Ávinningur
Í nýlegum sveitarstjórn-
arlögum eru ákvæði um rétt
íbúa til áhrifa á stjórn sveitar-
félags. Þar er meðal annars
fjallað um frumkvæði íbúa og
rétt þeirra til að óska eftir al-
mennri atkvæðagreiðslu um
ýmis álitamál. Búast má við að
þetta ákvæði verði til þess að
íbúakosningum/skoðanakönn-
unum meðal íbúa í sveit-
arfélögum fjölgi umtalsvert á
næstu árum.
Við alþingiskosningar 2009
var talað um að kostnaður við
hvert atkvæði væri um 900
krónur. Miðað við 200.000 íbúa
á kjörskrá og eina
íbúakönnun á ári í
hverju sveitarfélagi
þá er slíkur kostn-
aður nálægt 200
milljónum á ári. Sá
kostnaður mun
lenda með fullum
þunga á sveit-
arfélögum landsins
verði ekkert að
gert. Með heimild
til rafrænna íbúa-
kosninga er stigið
mikilvægt skref í að
lækka þennan kostnað umtals-
vert og ryðja úr vegi varnaðar-
orðum þess efnis að kosningar
séu of kostnaðarsamar.
Sveitarfélögin taki boltann
Í innanríkisráðuneytinu fer
nú fram vinna við reglugerð
með lögunum en þar er mælt
nánar fyrir um undirbúning,
framkvæmd og fyrirkomulag
rafrænna kosninga og gerð
rafrænna kjörskráa en auð-
kenning kjósenda og umsjón
kosningakerfanna mun verða
hjá Þjóðskrá Íslands. Frum-
kvæðið þarf að koma frá sveit-
arstjórnum en innanrík-
isráðherra hefur skipað þriggja
manna ráðgjafarnefnd sem
verður honum til ráðgjafar og
fylgist með framkvæmd raf-
rænna íbúakosninga og gerð
rafrænna kjörskráa sem og
sinnir öðrum verkefnum sem
ráðherra felur henni á þessu
sviði.
Undirritaður hvetur sveit-
arstjórnir, íbúa sveitarfélaga
og allt áhugafólk um lýðræði
til að gefa umræddu verkefni
gaum því það mun ekki aðeins
auðvelda íbúakosningar í sveit-
arfélögum heldur hafa í för
með sér hagræði og hag-
kvæmni við hvers kyns at-
kvæðagreiðslur og ryðja braut
fyrir innleiðingu rafrænna
lausna við allar lögbundnar
kosningar á Íslandi.
Rafrænt lýðræði
Eftir Þorleif
Gunnlaugsson
Þorleifur
Gunnlaugsson
»Hagræði og hag-
kvæmni við at-
kvæðagreiðslur og
brautin rudd fyrir inn-
leiðingu rafrænna
lausna við allar lög-
bundnar kosningar á
Íslandi.
Höfundur er formaður stýrihóps
innanríkisráðherra um rafræna
stjórnsýslu og rafrænt lýðræði.
Í kjölfar hruns bankakerfisins og
gengis krónunnar jukust opinberar
skuldir mikið og eru nú mjög miklar í
sögulegu samhengi. Á það ber að líta að
margar þjóðir eru í sömu eða verri
stöðu. Jafnframt eru skuldir heimila og
fyrirtækja enn miklar og mörg heimili
eiga í erfiðleikum með að ná endum sam-
an. Við þær aðstæður er skiljanlegt að
leitað sé leiða til að bæta hag heimila. Í
sambandi við þau úrræði sem fyrir val-
inu verða er afar mikilvægt að stjórn-
málamenn og kjósendur hafi ríkan skiln-
ing á því að lítið svigrúm er til staðar til
að auka þegar miklar skuldir ríkissjóðs.
Í þessari grein er skuldsetning hins op-
inbera og áhrif hennar á efnahagslífið
reifuð.
Í nýlegri rannsókn sem við Paul van
den Noord framkvæmdum um það hvort
besta leiðin hefði verið valin úr úr banka-
hruninu, könnuðum við áhrif ólíkra við-
bragða við hruninu á m.a.
skuldir hins opinbera og
hagvöxt. Niðurstöður
rannsóknarinnar voru
kynntar í grein í Morg-
unblaðinu 15. mars. sl. Í
rannsókninni athuguðum
við einnig hvaða áhrif
mismikið aðhald í fjár-
málum hins opinbera hef-
ur á skuldastöðuna og
hagvöxt. Það er vel þekkt
í hagfræði að miklar
skuldir leiða til þess að
vextir hækka en það
dregur úr hagvexti og vel-
ferð. Rannsókn Carmen Reinhart, Vin-
cent Reinhart og Kenneth Rogoff frá
árinu 2012 sýnir að ef skuldir ríkissjóðs
eru yfir 90% af landsframleiðslu um
fimm ára skeið hefur það áhrif til að
lækka hagvöxt um 1% á ári. Sama ár
gerðu Pier Carlo Padoan, Urban Sila og
Paul van den Noord ítarlega rannsókn á
sambandi opinberra skulda og hag-
vaxtar á grundvelli gagna fyrir öll
OECD ríkin, þ.m.t. Ísland, yfir 50 ára
tímabil, 1961-2011. Þar kom í ljós að op-
inberar skuldir geta verið annaðhvort í
góðu eða slæmu jafnvægi. Ef skuldir eru
hóflegar og dregur úr þeim lækka vextir
og hagvöxtur verður meiri, sem síðan
leiðir til þess að skuldirnar minnka
meira. Það er hið góða jafnvægi. Rann-
sókn þeirra leiddi einnig í ljós að ef
skuldir verða of miklar geta þær orðið
óviðráðanlegar. Þá hækka vextir og hag-
vöxtur minnkar. Við það aukast skuld-
irnar og ferlið getur orðið stjórnlaust.
Það er hið slæma jafnvægi. Fórnirnar
sem þarf að færa til að ná tökum á fjár-
málum í slæmu jafnvægi verða margfalt
meiri. Um leið felst í þeirri stöðu að
skuldsett ríki hefur lítið sem ekkert svig-
rúm til að bregðast við frekari áföllum í
þjóðarbúskapnum. Meginniðurstaða
ofangreindra rannsókna er að ef skuldir
verða of miklar er bráðnauðsynlegt að
fyrirbyggja að þær hækki
meira og vinna markvisst að
því að lækka þær. Það verð-
ur hins vegar aðeins gert
með aðhaldssemi í stjórn op-
inberra fjármála, þannig að
tekjur hins opinbera verði
umtalsvert meiri en gjöld
um margra ára skeið.
Með þjóðhagslíkani Pado-
an, Sila og van den Noord
framkvæmdum við rann-
sókn á mögulegri þróun
skulda á Íslandi miðað við
ólíkar forsendur um aðhald.
Niðurstöður þeirrar rannsóknar má sjá í
eftirfarandi fjórum myndum. Annars
vegar er sýndur ferill fyrir opinber fjár-
mál, skuldir hins opinbera, lang-
tímavexti og hagvöxt fyrir árin 2009-
2025 þar sem gert er ráð fyrir að stjórn-
völd beiti umtalsverðu aðhaldi á
komandi árum til að lækka skuldirnar. Í
mynd 1 má sjá feril þar sem miðað er við
að hið opinbera skili afgangi á frumjöfn-
uði (tekjujöfnuður að undanskildum
vaxtatekjum og -gjöldum) sem nemur
um 4% af landsframleiðslu á ári (sýnt
sem neikvæður halli). Í mynd 2 má sjá
þá lækkun skulda sem af því leiðir. Í
mynd 3 sést að stig langtímavaxta lækk-
ar vegna minni skulda. Í mynd 4 má síð-
an sjá að hagvöxtur eykst og verður
3,1% á ári eftir rúman áratug. Til sam-
anburðar er sýndur ferill þar sem eng-
inn afgangur er á frumjöfnuði. Afleið-
ingin er að skuldirnar aukast á ný sem
leiðir til þess að vextir hækka og hag-
vöxtur verður minni, eða 2,2%. Eftir því
sem fjær dregur verður skuldastaðan
ósjálfbær þannig að ferilinn springur
upp á við um leið og hagvöxtur og lífs-
kjör versna.
Þekking á áhrifum mikilla skulda á
efnahagslífið og viðbragðsgetu hins op-
inbera er ástæða þess að Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn og Evrópusambandið
hafa brugðist við fjármálakreppu í fjölda
ríkja þar sem skuldir eru miklar og svig-
rúm er lítið með því að krefjast aukins
aðhalds í opinberum fjármálum. Á móti
fá ríkin neyðarlán þar til þau eru í stakk
búin að fá lán á almennum markaði. Með
því eru ríkin aðstoðuð við að komast úr
ósjálfbærri stöðu. Mikilvægi þess að
lækka skuldirnar er talið slíkt að aðhaldi
er beitt þótt það geti valdið sársauka
með auknu atvinnuleysi og lækkun lífs-
kjara um hríð. Til samanburðar er stað-
an á Íslandi mun betri hvað hagvöxt og
atvinnuleysi varðar. Íslensk stjórnvöld
hafa hingað til brugðist í meginatriðum
rétt við hruni bankanna með því að lág-
marka það tjón sem af því hlaust. Þá hef-
ur gríðarlegum tekjuhalla ríkissjóðs ver-
ið eytt að mestu og hækkun opinberra
skulda hamin. Framundan er glíman við
að lækka skuldirnar úr þeirri ógnarstöðu
sem þær enn eru og þar má hvergi slá
slöku við. Ýmsar hættur eru til staðar
sem geta valdið því að skuldir hins op-
inbera aukist meira, m.a. tengt endur-
fjármögnunarþörf Íbúðalánasjóðs. Von-
andi ber nýja ríkisstjórn gæfu til að finna
úrræði sem koma til móts við stöðu
skuldsettra heimila en þó án þess að
víkja af braut ábyrgrar fjármálastefnu
sem miðast við að hámarka hagvöxt, vel-
ferð og þjóðaröryggi á komandi árum.
Af hverju er aðhalds þörf?
Eftir Þorstein
Þorgeirsson
» Íslensk stjórnvöld
hafa hingað til brugð-
ist í meginatriðum rétt
við hruni bankanna með
því að lágmarka það tjón
sem af því hlaust.
Þorsteinn Þorgeirsson
Höfundur er sérstakur ráðgjafi á skrif-
stofu bankastjóra Seðlabanka Íslands.
Þær skoðanir sem koma fram eru höf-
undar og ber ekki að túlka sem skoð-
anir Seðlabanka Íslands.
Mynd 1. Halli á frumjöfnuði Mynd 2. Skuldir hins opinbera
Mynd 3. Raunvextir á langtímalán Mynd 4. Hagvöxtur að raungildi
Heimild: Þorsteinn Þorgeirsson og Paul van den Noord (2013). The Icelandic banking collapes: was the optimal policy path
chosen? Rannsóknarritgerð nr. 62. Seðlabanki Íslands. Mars.
Afgangur Enginn afgangur Afgangur Enginn afgangur
Afgangur Enginn afgangur Afgangur Enginn afgangur
2009 2025
%
af
VL
F
9%
7%
5%
3%
1%
-1%
-3%
-5%
%
af
VL
F
150%
130%
110%
90%
70%
50%
2009 2025
%
12%
10%
8%
6%
4%
2%
0%
-2%
2009 2025
%
4%
2%
0%
-2%
-4%
-6%
-8%
2009 2025
- með morgunkaffinu
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími: 534 9600 · heyrn.is
Erum með allar gerðir
af heyrnartækjum
Fáðu heyrnartæki til reynslu
og stjórnaðu þeim með
ReSound Appinu
Komdu í
greiningu hjá
faglærðum
heyrnarfræðingi
Taktu stjórnina
og stilltu
heyrnartækin
í Appinu