Morgunblaðið - 17.04.2013, Page 34

Morgunblaðið - 17.04.2013, Page 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013 Það er gott að eiga afmæli að vori, það tengist upprisunni, von-inni, sumri og sól. Fyrirheitin eru mörg og miklar væntingarum gott og gefandi sumar,“ segir sr. Hjálmar Jónsson dóm- kirkjuprestur sem er 63ja ára í dag. Afmælisdaginn segir hann verða líkan flestum öðrum, hann verði á prestastefnu auk þess að sinna starfsskyldum. „Ég hef sjaldan haldið upp á afmælið mitt með stórveislum, en geri mér þó dagamun með fólkinu mínu. Fimmtugsafmælið er þar minnisstætt, en þá fórum við hjónin með börnum okkar til Lundúna. Skoðuðum British Museum og þar sá ég fjöldann allan af múmíum af fólki miklu eldri en fimmtugu. Það fannst mér nánast huggun og sá að ég ætti að óbreyttu talsvert eftir enn. Og sextugsafmælinu fagn- aði ég með golfferð til útlanda með vinahjónum,“ segir sr. Hjálmar sem er kvæntur Signýju Bjarnadóttur og eiga þau fjögur börn. Sr. Hjálmar sat á Alþingi um sjö ára skeið fyrir Sjálfstæðisflokk- inn á Norðurlandi vesta. Hann segir þingmannsárin hafa verið góð- an tíma, sem gefið hafi sér innsýn í aðstæður fólksins í landinu. „Auðvitað fylgist ég enn með stjórnmálunum og þá helst á almenn- um forsendum. Stjórnvöld þurfa öðru fremur að lægja öldurnar í samfélaginu og hvetja fólk til þess að horfa fram á veginn, því tæki- færi okkar Íslendinga eru mörg. Í vetrarlok verður þjóðfélagið eins og náttúran að losna úr klakaböndum.“ sbs@mbl.is Sr. Hjálmar Jónsson er 63 ára í dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Dómkirkjuprestur „Í vetrarlok verður þjóðfélagið eins og náttúran að losna úr klakaböndum,“ segir sr. Hjálmar Jónsson afmælisbarn. Fyrirheit mörg og væntingar miklar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Seltjarnarnes Þór Jökull fæddist 30. júlí kl. 6.56. Hann vó 3.640 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Hildur Edda Einarsdóttir og Sigurður Arnar Guðmundsson. Nýir borgarar Sandgerði Guðjón Víkingur fæddist 26. júlí. Hann vó 3.255 g og var 50 cm langur. Foreldrar hans eru Ása Guð- mundsdóttir og Jónatan Már Sig- urjónsson. L ára fæddist á Sjúkra- húsinu á Egils8stöðum, ólst upp á Egilsstöðum og hefur átt þar heima að mestu utan þess tíma er hún var í námi í Danmörku. Hún var í Barna- og gagnfræða- skóla Egilsstaða, lauk grunn- skólanámi í Skógarskóla undir Eyja- fjöllum, stundaði nám við ME og lauk þaðan stúdentsprófi árið 1983. Að loknu stúdentsprófi starfaði Lára við m.a.Búnaðarbankann á Eg- ilsstöðum til 1986. Þá hélt hún utan og stundaði nám við Skals hånd- arbejdsskole og Seminarium á Jót- landi og lauk þaðan BA-prófi 1990 sem kennari í textílhönnun á fram- haldsskólastigi.8 Lára flutti aftur heim til Egils- staða og stundaði kennslu við Hús- mæðraskólann á Hallormsstað og við Alþýðuskólann á Eiðum á ár- unum 1990-93. Hún stofnaði þá, ásamt fleirum, Randalín – Hand- verkshús á Egilsstöðum og starf- rækti það á árunum 1993-2003. Þar hönnuðu þau, framleiddu og höfðu á boðstólum ýmsa nytjalist, s.s. gjafa- vörur úr handgerðum og handmál- uðum pappír. Lára var framkvæmdastjóri fyrir Ormsteiti – Héraðshátíð á árunum 2000-2009 en það er árleg hátíð Hér- aðsbúa, haldin í ágústmánuði. Lára hefur auk þess kennt við Mennta- Lára Þ. Vilbergsdóttir, kennari á Egilsstöðum - 50 ára Við eldhúsgluggann Lára og Valgeir á heimaslóðum fyrir tveimur árum, ásamt dætrunum, Valdísi og Andreu. Ræktar garðinn sinn Við Gullabúið Lára, sjö ára, leikur sér við búið sitt í garðinum heima. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isÁrmúla 5 • 108 Reykjavík • Sími 544 8181 Þekking • Þjónusta Við sendum frítt heim í öll sveitarfélög á Íslandi! Heimasíðan okkar er uppfærð daglega. Þar má finna allar upplýsingar um vörurnar okkar, sérpantanir, hvað er væntanlegt ásamt spennandi tilboðum www.innlit.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.