Morgunblaðið - 17.04.2013, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2013
laust eru flestir sýningargesta
mættir til að fá sinn skammt af Elsu
Lund, Saxa lækni og öllum hinum.
Og þeir fá skammtinn sinn enda er
ekki hægt að fjalla um ævi Ladda
og störf án þess að hleypa þessum
persónum að. Sumar eru orðnar dá-
lítið lúnar, t.d. Elsa Lund, en aðrar
merkilega fyndnar ennþá, t.d. Leif-
ur óheppni. Innkoma persónannna
er skemmtilega leyst, þær birtast
m.a. á skjá og hafa samskipti við
Ladda, húðskamma hann og lemja
og draga úr honum hálskirtlana.
Eitt atriði þótti mér öðrumfyndnara í sýningunni og hug-
myndin á bak við það er virkilega
góð. Laddi bauð sýningargestum að
búa til grínpersónu með sér. Allar
góðar grínpersónur eiga það sam-
eiginlegt að vera að einhverju leyti
gallaðar, sagði Laddi og spurði
gesti að hvaða leyti hin nýja per-
sóna væri gölluð. Einn gesta lagði
til að önnur öxlin á henni væri
hærra upp en hin, annar vildi hafa
hana mjóróma, sá þriðji að hún
stamaði og sá fjórði gaf henni nafn-
ið Sigtryggur. Hinn stamandi Sig-
tryggur fæddist þarna á sviðinu
með ljósa hárkollu, í alltof stórum
jakka og háður snjallsímanum sín-
um. Kostulegur náungi og með en-
demum kjánalegur. Þarna rifjaðist
upp fyrir manni hversu mikill snill-
ingur Laddi er þegar kemur að því
að búa til spaugilegar persónur.
Það komast fáir með tærnar þar
sem hann hefur hælana í þeirri list.
Laddi lengi lifi!
Grínkóngurinn Laddi þakkar fyrir sig að lokinni sýningu á Laddi lengir lífið í Kaldalóni í Hörpu.
AF LADDA
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Er Laddi ennþá fyndinn? Eiríkur Fjalar, Elsa Lund,Dengsi, Saxi læknir, Mart-
einn Mosdal … tilheyra þessar
grínpersónur Ladda ekki úreltri, ís-
lenskri fyndni? Þessu velti ég fyrir
mér áður en ég hélt í Kaldalón í
Hörpu laugardaginn sl. að sjá ein-
leik Ladda, Karls Ágústs og Sigga
Sigurjóns, Laddi lengir lífið. Hver
er Laddi? spyrja félagarnir og
Laddi veitir svör við því með
skemmtilegum hætti. Þegar sýn-
ingarskrá er flett rifjast upp fyrir
manni að Laddi er þjóðargersemi,
maður sem unnið hefur margt grín-
þrekvirkið, skapað ógleymanlegar
og sprenghlægilegar persónur á
áratugalöngum ferli sínum. Laddi
er vinsælasti grínisti Íslands fyrr
og síðar. Treystir sér einhver til að
mótmæla því? Nei, líklega ekki. Og
auðvitað er hann ennþá fyndinn,
hvernig datt mér annað í hug?
En Laddi er ekki bara Laddi,
hann er líka Þórhallur Sigurðsson.
Og hver er Þórhallur Sigurðsson?
Jú, hann er maðurinn sem allir
hlæja að, af því hann er Laddi, þó
að hann mæti handleggsbrotinn á
slysadeild. Það er ekkert grín að
vera Laddi en sýningin er engu að
síður mikið grín, mikið gaman, eins
og Grínverjinn myndi orða það.
Þórhallur Sigurðsson, Laddi,fæddist 20. janúar árið 1947 í
Hafnarfirði. Gælunafnið Laddi
hlaut hann snemma af því að hann
gat ekki sagt „Þórhallur“. Í sýning-
unni fjallar Laddi um margt það
sem mótaði hann í æsku, m.a.
feimni og ótta við að fara upp að
töflu þegar kennarinn kallaði í
hann. Varnarviðbrögðin fólust í því
að búa til skondndar persónur, per-
sónur sem bekkjarfélagarnir hlógu
að. Og þörfin fyrir að fá fólk til að
hlæja hefur fylgt honum æ síðan.
Laddi kom mér skemmtilega á
óvart í þessari sýningu. Hann sýnir
á sér nýja hlið, þá alvarlegu, þá
mannlegu. Hann segir gestum m.a.
frá því hversu illa honum og bróður
hans Halla leið þegar faðir þeirra
yfirgaf fjölskylduna, ótta þeirra við
að móðir þeirra myndi yfirgefa þá
líka og hversu illa þeim leið þegar
móðir þeirra var drukkin. Laddi
reyndi með skemmtiatriðum að
koma í veg fyrir að mamma hans
færi út á lífið. Á sviðinu birtist
manni lítill drengur með stórt
hjarta, drengur sem Laddi túlkar
yndislega. Á sviðinu birtist líka
bældur Laddi á táningsaldri, tán-
ingur sem dreymdi um að vera töff
en þorði ekki að tala við stelpur.
Unglingurinn sem gerðist trommu-
leikari í hljómsveitinni Föxum á 19.
aldursári og rokkaði með HLH-
flokknum á fertugsaldri. Laddi
opnar sig, sýnir manninn bak við
grímuna, alvöruna á bak við grínið
og tekur áhættu. Já, áhættu því ef-
»Hinn stamandiSigtryggur fæddist
þarna á sviðinu með
ljósa hárkollu, í alltof
stórum jakka og háður
snjallsímanum sínum.
Töffarar Bó, Laddi og Halli, þ.e.
HLH, í frumsýningarteiti.
Mammút kemur fram á tónleikum
í Stúdentakjallaranum við Há-
skólatorg Háskóla Íslands í kvöld
kl. 21.
Mammút vann sem kunnugt er
Músíktilraunir árið 2004 og hefur
síðan sent frá sér tvær breið-
skífur. Fyrri platan var samnefnd
sveitinni og kom út árið 2006 en
seinni platan kom út 2008 og
nefnist Karkari. Þriðja plata
sveitarinnar er senn væntanleg,
en nú þegar er hægt að nálgast
fyrsta lagið af henni, „Salt“, á
gogoyoko.com.
Á tónleikum kvöldsins mun
Mammút leika nýtt efni í bland
við eldra. Aðgangur er ókeypis.
Kraftmikil Hljómsveitin Mammút í miklum ham á Iceland Airwaves árið 2012.
Mammút í Stúdentakjallaranum
KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM
ÁTOPPNUM Í ÁR
KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
OLYMPUSHASFALLEN KL. 5:30 -8 -10:30
OLYMPUSHASFALLENVIP KL. 5:30 -8 -10:30
BURTWONDERSTONE KL.5:50-8-10:10
G.I. JOE:RETALIATION3D KL. 5:40 -8 -10:20
SIDEEFFECTS KL.8
ÓFEIGURGENGURAFTUR KL.5:50-8-10:10
JACKTHEGIANTSLAYER3D KL.10:30
OZ:GREATANDPOWERFUL KL.5:20 KRINGLUNNI
OLYMPUSHAS FALLEN KL. 5:30 - 8 - 10:30
OBLIVION KL. 5:20 - 8 - 10:40
BURTWONDERSTONE KL. 8
SIDEEFFECTS KL. 10:20
ÓFEIGURGENGURAFTURKL.5:50
OLYMPUSHAS FALLEN KL. 5:30 - 8 - 10:30
OBLIVION KL. 5:30 - 8 - 10:30
BURT WONDERSTONEKL. 8 - 10:20
G.I. JOE:RETALIATION3DKL. 10:20
SIDEEFFECTS KL. 8
ÓFEIGURGENGURAFTURKL.5:50
JACKTHEGIANTSLAYER2D KL. 5:30
NÚMERUÐ SÆTI
KEFLAVÍK
OLYMPUS HAS FALLEN KL. 10:30
OBLIVION KL. 10:10
BURTWONDERSTONE KL. 8
AKUREYRI
OLYMPUS HAS FALLEN KL. 8 - 10:30
BURTWONDERSTONE KL.5:50-8-10:30
ÓFEIGURGENGURAFTUR KL. 5:50
H.S. - MBL
THE NEW YORK TIMES
LOS ANGELES TIME
WALL STREET JOURNAL
TIME
NÝJASTA MYND STEVEN SODERBERGH
STÓRMYNDIN SEM TEKIN
VAR UPP Á ÍSLANDI
T.K., KVIKMYNDIR.IS
MÖGNUÐ GRÍNMYND
STEVE CARELL JIM CARREY
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
FRÁ LEIKSTJÓRA TRAINING DAY
OG HANDRITSHÖFUNDINUM KATRÍN BENEDIKT
GRJÓTHÖRÐ SPENNUMYND
Í ANDA DIE HARD