Morgunblaðið - 23.04.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2013
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Menn vita að fæðing sumarsins
er alltaf erfið, halda að það sé
komið einn daginn en svo kemur
bakslag. Menn bíða því rólegir eft-
ir hlýindunum,“ segir Elvar Ey-
vindsson, bóndi á Skíðbakka II í
Austur-Landeyjum um undirbún-
ing sáningar korns og önnur vor-
verk.
Í gær rigndi í Landeyjum. Ekki
er útlit fyrir hlýnandi veður fyrr
en eftir sumardaginn fyrsta sem
er á fimmtudag. Eitthvað er um að
menn séu byrjaðir að plægja og
einstaka bóndi undir Eyjafjöllun-
um er byrjaður að sá korni. „Þeir
sem plægðu snemma lentu í því
um páskana að plógstrengirnir
frusu. Þá verður lengur að fara úr
þeim en óhreyfðu landi,“ segir
Elvar. Hann segir að bændur noti
tímann til að aka út búfjáráburði.
Eitt núll fyrir tíðinni
„Staðan er eitt núll fyrir tíðinni
en maður segir ekki neitt þegar
maður veit af ástandinu annars
staðar á landinu,“ segir Sigurður
Ágústsson, bóndi í Birtingaholti í
Hrunamannahreppi. Hann er stór-
tækur kornræktandi og verktaki.
Sigurður segir að enn sé tölu-
verður klaki í jörðu og ekki þýði
að fara með vélar af stað en tekur
fram að eitthvað gangi nú á klak-
ann þótt ekki sé hlýtt í veðri.
„Ég hefði gjarnan viljað byrja
að sá um þetta leyti og er þegar
orðinn viku á eftir miðað við síð-
asta ár. Ég vonast til að byrja að
reynslukeyra tækin fyrir lok vik-
unnar. Hálfnað verk þá hafið er og
ef það gerir góða tíð upp úr mán-
aðamótum er ekki yfir neinu að
kvarta,“ segir Sigurður.
Eldfljótir að undirbúa
Elvar á Skíðbakka segir að bún-
aðarfélagið eigi stór og öflug tæki
til að vinna flögin. Þeir verði því
eldfljótir að undirbúa sáningu þeg-
ar tíðin leyfi. Margir fá verktaka
einnig til að sá fyrir sig korni. Von-
ast hann til að búið verði að sá fyr-
ir 10. maí. „Þegar moldin nær að
hlýna og við fáum hlýtt sumar ger-
ir ekkert til þótt ekki sé sáð fyrr
en í maí,“ segir hann.
Elvar segir ekki hægt að kvarta
yfir vetrinum á Suðurlandi. „Það
var vor hér með grænum túnum
fram í febrúar. Liturinn fölnaði að-
eins en gróðurinn er að byrja að
taka við sér aftur í rigningunni.“
Fæðing sumarsins alltaf erfið
Bændur á Suðurlandi bíða flestir með plægingu og kornsáningu eftir hlýnandi veðri Ekkert hægt
að segja þegar menn vita af ástandinu í öðrum landshlutum, segir bóndi í Hrunamannahreppi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Landeyjar Bændur í Hólmahjáleigu í Austur-Landeyjum voru að vinna flög í síðustu viku og undirbúa sáningu.
Sigurður
Ágústsson
Elvar
Eyvindsson
Sala á sáðkorni hefur verið
heldur hægari í vor en í fyrra
en ekki er útséð með nið-
urstöðuna, að sögn Jóhann-
esar Baldvins Jónssonar,
söluráðgjafa í sáðvöru hjá Líf-
landi.
Hann segir að pantanir hafi
verið svipaðar og í fyrra en
nefnir að norðlenskir korn-
ræktendur hafi orðið fyrir
skakkaföllum í fyrrahaust og
gætu haldið að sér höndum.
Þá er enn mikill snjór fyrir
norðan. Þá segir Jóhannes að
góð uppskera hafi verið sunn-
anlands og vestan í fyrra og
hugsanlega vildu ræktendur
nýta meira af heimafengnu
sáðkorni á móti aðkeyptu.
Helstu breytingar eru í sölu
á repju og nepju til olíu-
framleiðslu. Nepjan hefur
komið vel út í tilraunum og
margir vilja prófa hana, sér-
staklega voryrki. Talið er að
hægt sé að rækta nepjuna yf-
ir sumarið af sæmilegu ör-
yggi og fá uppskeru að hausti
en væntingar um uppskeru
eru þó minni en af haust-
afbrigðinu.
Ótíðin dregur
úr mönnum
HÆGARI SALA Á SÁÐKORNI
Símavist
Sterkara samband
fyrir fyrirtæki
IP símkerfið í öruggum höndum
Með Símavist geta fyrirtæki leigt IP símkerfi og látið Símann sjá um uppfærslur, rekstur og
viðhald á því fyrir fast verð á hvern starfsmann. Vertu með fyrirtækið þitt í öruggri skýþjónustu
hjá Símanum og losnaðu þannig við óvænt útgjöld og áhyggjur af rekstri símkerfisins.
Hringdu í síma 800 4000 og sérfræðingar Símans aðstoða þig við að finna hagkvæmustu lausnina.
Nánar á siminn.is