Morgunblaðið - 23.04.2013, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2013
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Lengi velstóðu tveirfrasar eink-
um upp úr þeim
sem var kappsmál
að Ísland gengi í
Evrópusambandið.
Sá fyrri var um „samnings-
markmiðin“. Landið skyldi
hefja vinnu við „samningsmark-
mið sín“ og baráttumennirnir
sögðu að sú vinna þyrfti ekki að
taka nema tvö ár eða svo. Þá
væri loks kominn tími til að
sækja um.
Nú eru fjögur ár síðan Al-
þingi samþykkti, undir svika-
stjörnu, að Ísland leitaði eftir
inngöngu í ESB. Enn hefur þó
vinnan við að undirbúa „samn-
ingsmarkmið“ þjóðarinnar ekki
hafist!
Hinn frasinn, sem var hæst
settur og helgastur, var að
„upplýst umræða“ um ESB yrði
að fara fram og þjóðinni svo
gert að taka endanlega ákvörð-
un um aðild eða ekki aðild.
Aldrei er „upplýst umræða“
sérstaklega tengd nokkru öðru
máli sem til meðferðar er í land-
inu. En samt er það svo að upp-
lýsta umræðan hefur enn ekki
hafist um ESB-aðildina. Nema
þá að hún sé inntakið í því að
Evrópusambandið hafi dælt inn
fé til einhliða áróðurs um sjálft
sig og um óendanlega kosti þess
að Ísland gengi í sambandið.
En hvernig stendur á því að
svo illa hefur farið fyrir þessum
tveimur heilögu frösum Evr-
ópusambandssinna? Sú spurn-
ing er ein af þessum lipru
spurningum sem svara sér
sjálfar.
Samningsmarkmiðin hafa
ekki verið rædd, undirbúin eða
ákveðin vegna þess að Evrópu-
sambandið hefur breytt for-
sendum sínum fyrir aðkomu
þeirra sem sækja þar um inn-
göngu. ESB tekur sérstaklega
fram að ENGAR samninga-
viðræður fari fram í tilefni af
óskum lands um aðild. Og ESB
gengur lengra. Það óskar sér-
staklega eftir því við for-
ráðamenn umsóknarríkja að
þeir láti algjörlega vera að gefa
í skyn að fram fari einhvers
konar samningaviðræður um
aðild. Þeir eigi þvert á móti að
upplýsa íbúa umsóknarlands
um þau skilyrði ESB að landið
lagi sig algjörlega að þeim
reglum sem er að finna á 100
þúsund síðum í regluskrá ESB
sem er aðgengileg fyrir alla.
ESB tekur fram að þessum síð-
um hafi fjölgað um 10 þúsund
frá því að ákveðið var að fram-
vegis færu engar samninga-
viðræður fram við ríki í aðild-
arferli.
Þótt sögufræg svik séu und-
irstaðan fyrir umsókn Íslands
að ESB verður það sama ekki
sagt um loforðið um að und-
irbúa rækilega
„samningsmark-
mið“ Íslands. Það
fólust engin svik í
því að gera ekkert
með þá stefnu-
mörkun Samfylk-
ingar og annarra slíkra, að for-
senda umsóknar að ESB væri
fullbúin og samþykkt samn-
ingsmarkmið af landsins hálfu.
Ísland er ekki í samninga-
viðræðum, eins og forystumenn
ESB hafa ítrekað bent á, um
leið og þeir hafa vísað beint til
ákvæða sem um sambandið
gilda. Vinna við samningsmark-
mið væri því ekki aðeins
ómerkilegur blekkingarleikur,
heldur meiri tímaeyðsla en að
hræra steypu í hús sem ekki
stæði til að byggja. Og það
skýrir líka hitt hvers vegna svo
illa fór um hina „upplýstu um-
ræðu.“
Til þess að nokkur umræða
geti farið fram um nokkurt mál
sem einhverju nemur er brýn-
ast að undirstaða hennar sé
réttilega lögð. Frumforsenda
„upplýstrar umræðu“ um aðild
að ESB væri auðvitað að stynja
upp þeirri staðreynd að um-
sóknarþjóðir færu ekki lengur í
viðræðuferli. Með umsókn sinni
lýstu þær einfaldlega yfir að
þær ætluðu að taka upp allar
reglur ESB. Eina verkefni um-
sóknarríkis er að sýna fram á að
það hafi lagað reglusetningu
síns eigin lands að reglusetn-
ingu ESB. Verkefni viðmæl-
enda þess er að staðfesta að það
hafi verið gert með fullnægj-
andi hætti.
Hafi aðlögun ekki þegar átt
sér stað í einhverjum afmörk-
uðum greinum þarf umsókn-
arríki að leggja fram tímasetta
áætlun um aðlögun þeirra. ESB
ákveður einhliða hvort hún
dugi. Þetta er ekki aðeins þekkt
staðreynd. Þetta er aðal-
forsenda alls ferils málsins frá
umsókn til aðildar. Engar
samningaviðræður í hefð-
bundnum skilningi tungumáls-
ins fara því fram, eins og
fulltrúar ESB benda ítrekað á.
Þess vegna var öllum hug-
myndum og loforðum um
„samningsmarkmið“ sópað út af
borðinu strax í upphafi. Og á
meðan óprúttnir trúnaðarmenn
Íslands láta eins og raunveru-
legar samningaviðræður eigi
sér stað, þótt í heil fjögur ár
hafi ekki verið „samið“ um neitt
bitastætt, getur engin „upplýst
umræða“ átt sér stað.
Könnunarfyrirtæki, sem taka
fé fyrir að annast spurningaleik
um hvort „ljúka eigi samninga-
viðræðum“ sem ekki eiga sér
stað, eru komin í verulegan trú-
verðugleikavanda, svo ekki sé
meira sagt. Svoleiðis spurn-
ingar eiga hvergi heima nema í
„könnunum“ Fréttablaðsins.
Hin upplýsta um-
ræða hefur enn ekki
hafist og samnings-
markmið eru ekki til}
Upplýst umræða um
samningsmarkmið
K
affistofuspjall síðustu 48 klukku-
stunda, sem og skoðanaskipti á
vettvangi Fésbókar, hafa að þó-
nokkrum hlut helgast umræðu um
hina tenntu árás úrúgvæska fram-
herjans Luis Suárez, sem leikur með Liverpool, á
hinn serbneska varnarmann Chelsea, Branislav
Ivanovic. Sitt sýnist hverjum um málið þó að al-
menn sátt ríki um þau sjónarmið að ekki sé til
siðs að láta tennur skipta í samskiptum við and-
stæðinga þegar hin fagra íþrótt er annars vegar.
Slíkt sæmir ekki leikmanni né heldur er það fé-
lagsliði hans til framdráttar; fari svo að Enska
knattspyrnusambandið dæmi hann í bann
missir Liverpool sinn besta leikmann á loka-
spretti tímabilsins og munar um minna.
Með furðulegu háttalagi sínu minnir Suárez
enn á aftur á hið einkennilega samband sem
virðist stundum vera milli hæfileika sem liggja nærri
snilligáfu og svo eldfimrar og gallaðrar skapgerðar. Eng-
um dylst að Úrúgvæinn er að líkindum besti leikmaður
þessarar leiktíðar í ensku úrvalsdeildinni (þó að verðlaun
þar að lútandi séu örugglega fyrir bí í kjölfar bitsins) en
hann á til glórulausar gjörðir þegar skaphitinn ber hann
ofurliði. Minnir hann þar á aðra goðumlíka knatt-
spyrnumenn á borð við Zinedine Zidane, sem lauk ferl-
inum með eftirminnilegum hætti. Hann skallaði Ítalann
Marco Materazzi í bringuna í úrslitaleik HM 2006 í kjölfar
fúkyrðaflaums sem sá ítalski dældi á „Zizou“ og laut eink-
um að systur þess síðarnefnda. Á svipuðum nótum var
árás Eric Cantona á orðljótan stuðningsmann Crystal Pa-
lace árið 1995, með kung-fu sparki og hvað-
eina. Menn sem leika fótbolta eins og englar
geta leyst úr læðingi hegðun sem hæfir djöfl-
um þegar minnst varir. Minnumst ekki á galla-
gripinn Diego Maradona í því sambandi.
Slíkt hefur vitaskuld verið viðloðandi hæfi-
leikafólk í fleiri kimum mannlífsins en fótbolta.
Djassgoðsögnin Bill Evans lék til að mynda eins
og engill á píanóið, en dópaði þess á milli hreint
djöfullega; Michaelangelo skóp guðdómleg lista-
verk en burðaðist að sögn með djöfullega óbeit
á eigin útliti. John Nash, Ernest Hemingway
og Vincent Van Gogh eru sömuleiðis nærtæk
dæmi um einstaklinga þar sem stutt er á milli
himneskra hæfileika og helvískra andlegra
bresta.
Ætli meining mín með þessu sé ekki að best
fari á því að hlúa að gölluðum snillingum svo
við megum njóta fágætra hæfileika þeirra og umbera
bresti þeirra þess á milli? Á grundvelli meiri hagsmuna
gagnvart minni (eins og málið horfir við mér, sem ekki hef
tiltakanlega snilligáfu til að bera) blasir við að lífið væri
talsvert leiðinlegra ef ekki nyti við einstaklinga á borð við
Maradona, Cantona, Zidane og Suárez? Þeir eru galla-
gripir sem stundum fá mann til að hrista hausinn, jafnvel
til að steyta hnefann. En þess á milli fremja þeir galdur
sem fær áhorfendur til að gapa af undrun og aðdáun, eitt-
hvað sem helst ætti að flokka sem gjörningalist og verður
í framhaldinu að ógleymanlegum minningum sem vert er
og gaman að rifja upp, aftur og aftur.
jonagnar@mbl.is
Jón Agnar
Ólason
Pistill
Englar og djöflar
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
E
ftir að verð á ferskum
þorskafurðum frá Ís-
landi lækkaði talsvert í
lok síðasta árs og byrj-
un þessa hefur það
leitað jafnvægis upp á síðkastið, að
sögn Helga Antons Eiríkssonar, for-
stjóra Iceland Seafood International.
Hann segir að verð á laxi, t.d. frá
Noregi, sé í hæstu hæðum og áætl-
anir um sölu á laxi hafi ekki gengið
eftir. Þetta hafi opnað möguleika í
öðrum afurðum og sums staðar hafi
sala á ferskum þorski gengið mjög
vel. Vikan framundan sé spennandi
því seljendur og kaupendur alls stað-
ar að úr heiminum muni næstu daga
ráða ráðum sínum á stóru sjávar-
útvegssýningunni í Brussel.
Helgi segir að talsverð óvissa sé
um framhaldið, en telur líklegt að
markaðir verði áfram þungir og
kaupendur fari varlega í innkaupum.
Hann segist þó hafa fulla trú á að
fiskur eigi eftir að hreyfast talsvert á
mörkuðum á næstu mánuðum. Eftir
páska hafi greinilega verið nokkur
skortur á ferskum fiski á mörkuðum
Íslendinga. Þar spili inn í veiðibann
víða á Íslandsmiðum vegna hrygn-
ingar þorsksins og framboð hafi ekki
verið mikið héðan.
Spennandi vika í Brussel
Hann segir að mikill þorskafli
við Norður-Noreg og í Barentshafi
hafi breytt stöðunni á mörkuðum og
sums staðar gert íslenskum útflytj-
endum lífið leitt. Kílóverð fyrir þorsk
hefur lækkað talsvert í Noregi, en
það hefur ekki dugað til því Norð-
menn hafa í auknum mæli flutt
slægðan og hausaðan fisk til vinnslu í
löndum þar sem vinnuafl er ódýrara
eins og í Póllandi, Litháen og Lett-
landi. Þessi fiskur komi þaðan inn á
markaði í Bretlandi og á meginland-
inu, að sögn Helga. Einnig sé hefð
fyrir því að Danir fullvinni norskan
fisk fyrir markaði á meginlandinu,
t.d. léttsaltaðan fisk.
„Þessi vika í Brussel verður
mjög spennandi og þar
fáum við væntanlega
mynd af því hvernig
næstu mánuðir
munu þróast,“ segir
Helgi Anton. Yfir 40 íslensk
fyrirtæki taka þátt í sjávar-
útvegssýningunni í Brussel sem
hefst í dag og íslenskir gestir og þátt-
takendur skipta hundruðum. Á
heimasíðu Íslandsstofu segir að þar
verði „flestir lykilmenn í sjávar-
útvegi í heiminum samankomnir“.
Á fimmta tug fyrirtækja
Íslandsstofa skipuleggur þátt-
töku íslenskra fyrirtækja á sjávar-
útvegssýningunni í Brussel og verða
36 fyrirtæki undir hatti hennar á
sýningunni. Þetta er mesta þátttaka
íslenskra fyrirtækja frá árinu 2008
að minnsta kosti. Þetta er í 21. skipti
sem íslenskir þjóðarbásar eru skipu-
lagðir á Brussel-sýningunni. Annars
vegar er um að ræða bás með sjávar-
afurðum á 300 fermetrum og hins
vegar 400 fermetra aðstöðu þar sem
tæki og önnur þjónusta eru kynnt.
Auk þessa eru fimm fyrirtæki
með eigin bása og allmörg kynna
starfsemi sína undir öðrum merkj-
um.
Fiskverð leitar jafn-
vægis eftir lækkanir
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Útvegur Íslensk fyrirtæki kynna vörur og þjónustu á sýningunni í Brussel
og þar verður örugglega mikið rætt um markaðshorfur og verð á afurðum.
Myndin er tekin á sjávarútvegssýningunni í Kópavogi fyrir tveimur árum.
Fyrir páska sendi Norway Seafoods um 140 starfsmenn í þremur fisk-
vinnsluhúsum í Kjøllefjord, Berlevåg og Hammerfest í Norður-Noregi í
frí fram yfir næstu mánaðamót. Nýlega kom fram í Finnmark Dagblad
að þetta frí kunni að verða framlengt í Berlevåg og Hammerfest, en
starfsemin í Kjøllefjord sé að fara í gang í kjölfar samnings um
vinnslu á saltfiski.
Þá kunni að verða gripið til tímabundinna lokana í fiskvinnslunum í
Stamsund og Båtsfjord. Þar starfa um 200 manns og gætu því yfir
300 manns verið sendir í frí gegn vilja sínum.
Þorskkvótar Norðmanna og Rússa voru auknir verulega í ár. Land-
burður hefur víða verið af þorski og vertíð er enn í fullum gangi á
norðursvæðinu. Á sama tíma hefur verð á þorski
lækkað mjög í Evrópu að því er fram kemur í
blaðinu. Nefnt er sem dæmi að verð á þorsk-
hnökkum hafi lækkað mikið og framleiðslan svari
ekki kostnaði.
Svarar ekki kostnaði
BLIKUR Á LOFTI Í FISKVINNSLU Í NORÐUR-NOREGI