Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.04.2013, Síða 28
*Matur og drykkir Góður hópur fór á dögunum í árlega kræklingatínslu í Hvalfirðinum og eldaði í fjörunni »32 H ráefnið sem við notum á NAM er í sama gæða- flokki og á háklassa veitingastöðum erlendis en við ákváðum að selja þetta á bensínstöð á Ís- landi,“ segir Emil Helgi Lárusson hlæjandi. Emil og Einar Örn Einarsson eru eigendur veitingastað- arins NAM á N1, Bíldshöfða. Þeir hafa rekið saman veit- ingastaðina Serrano í mörg ár og lagt sig fram við að bjóða upp á hollan og ferskan mexíkóskan skyndibita. „Við höfðum lengi gengið með þá hugmynd í kollinum að opna stað með sömu áherslum og Serrano nema bara með asískum mat,“ segir Emil. „Alex, yfirkokkurinn okkar á Serrano, er sérhæfður í asískri og kínverskri matargerð og gerði matseðilinn fyrir okkur. Þegar staðsetningin hér á N1 bauðst létum við verða af þessu.“ Emil og Einar hafa ekki aðeins rekið Serrano hér á Ís- landi heldur einnig í Svíþjóð. „Við erum með fimm staði þar núna en komum til með að opna þrjá til viðbótar á næstu mánuðum,“ segir Emil og bætir við að þeir hafi ný- verið fengið stóran fjárfesti í Svíþjóð. „Það hefur eiginlega allt setið á hakanum á meðan verið var að ganga frá þessu,“ játar Emil. „Við höfum meðal annars dregið lapp- irnar við uppbyggingu NAM.“ Nú fari hins vegar að rofa til hjá þeim og þá hafi þeir hugsað sér að færa út kvíarnar. Emil segir þá félaga ekki endilega stefna á fleiri staði á þjónustustöðvum heldur vilji þeir opna sjálfstæðan stað. „Þessi matur er æðislega góður og hann býður upp á veit- ingastað með stærri matseðli,“ segir Emil en þeir Einar setja stefnuna á tvo nýja NAM-staði á árinu en eru þó ekki sérstaklega bjartsýnir á að það gangi eftir fyrir ára- mótin. Morgunblaðið/Rósa Braga ASÍSKUR MATUR ÚR GÓÐU HRÁEFNI Hollt og ferskt á NAM EMIL OG EINAR, EIGENDUR NAM OG SERRANO, LEGGJA MIKIÐ UPP ÚR METNAÐI Í MATARGERÐ EN EINNIG HAGKVÆMNI OG GÓÐU VERÐI. ÞEIR HYGGJAST OPNA FLEIRI NAM-STAÐI Á NÆSTUNNI. Kristín Björk Jónsdóttir kbj3@hi.is Emil Helgi Lárusson, annar eigenda veitingastaðarins NAM sem staðsettur er á þjónustustöð N1 á Bíldshöfða. Tófú-grunnur 100 g sveppir 10 g saxað engifer 3 stk. rauður chili 50 g blaðlaukur 40 ml mild soja 200 g tófú 1 tsk. sezshuan-pipar 20 ml ólífuolía 10 g salt Aðferð Steikið sveppi, engifer og blaðlauk í olíu. Bætið við chili, soja og pipar og steikið þar til allur vökvi hefur gufað upp. Bætið tófú við og bland- ið saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Tófú-bollur 600 g hrísgrjón soðin og kæld tófúgrunnur 2 egg 25 g saxaður vorlaukur pankó-raspur Aðferð Blandið öllu saman. Best er að setja á sig hanska og nota hendurnar, hnoðið saman í kúlur og veltið þeim uppúr raspinum. Djúp- steikið við 170°C í ca. 3 mínútur eða þar til bollurnar eru gullinbrúnar. Meðlæti Gott að bera fram með soja og vor- lauk yfir. Bollurnar eru einnig gott meðlæti með kjöti og salati. Tófúbollur frá NAM

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.