Morgunblaðið - 31.05.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.05.2013, Blaðsíða 2
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Heildartekjur einstaklinga hér á landi á árinu 2011 voru við álagn- ingu skattyfirvalda í fyrra tæpir 1.003 milljarðar. Höfðu þær þá lækkað um rúma 432 milljarða að raunvirði, eða 30,1%, frá árinu 2007. Mikil lækkun fjármagnstekna átti hér stóran hlut að máli en þær lækk- uðu úr 335,5 milljörðum árið 2007 í 59,2 milljarða fjórum árum síðar og hafa ekki verið jafn lágar síðan árið 1993. Þessar upplýsingar koma fram í ítarlegri úttekt Páls Kolbeins, hag- fræðings hjá ríkisskattstjóra (RSK), á tekjudreifingu og skattbyrði, sem birt er í Tíund, fréttablaði RSK. Meðal þess sem kemur fram í greininni er að fleiri einstaklingar greiddu minni skatta árið 2011 en þeir gerðu árið 2007 en skattar af sambærilegum tekjum hækkuðu hins vegar nokkuð á milli áranna 2007 og 2011, sérstaklega á þá tekjuhæstu í þjóðfélaginu. 43 milljörðum minni tekjur Segir Páll að sá helmingur fjöl- skyldna sem var með lægstu tekj- urnar samkvæmt skattframtölum, hafi verið með 43,4 milljörðum minni tekjur að raungildi árið 2011 en sambærilegur hópur hafði árið 2007. Tekjur þeirra fimm prósenta sem voru með hæstar tekjur árið 2011 voru 265,8 milljörðum, eða 56,7%, minni en sambærilegs hóps árið 2007. Af þessari lækkun voru 81,6% vegna lægri tekna þess hundraðs- hluta sem var efst í tekjustiganum. „Það er merkilegt til þess að hugsa að af tæplega 432,2 milljarða tekjulækkun milli áranna 2007 og 2011 voru tæpir 217 milljarðar, eða 50,2%, vegna þess að tekjur tekju- hæsta hundraðshluta fjölskyldna lækkuðu um 76,1%. Tekjur í tekju- hæsta fimm prósenta þrepinu hafa þannig lækkað mun meira en tekjur í öðrum tekjuþrepum, eða um 56,7%. Það vekur reyndar athygli að tekjur í neðsta fjórðungnum hafa lækkað meira, að undanskildu tekju- hæsta þrepinu, en tekjur í öðrum hlutfallshópum. Tekjur þessa hóps voru 24,6% minni en tekjur sam- bærilegs hóps árið 2007,“ segir í grein Páls. Páll segir tekjumun hafa vaxið. Eitt prósent fjölskyldna í landinu sem voru með hæstar tekjur var með 5,5% allra tekna í landinu árið 1992. Þessi tekjuhæsti hundraðs- hluti greiddi þá 10,7% þeirra skatta sem lagðir voru á. Árið 2007 hafði hlutur tekjuhæstu fjölskyldnanna í heildartekjum hækkað í 19,9% af tekjum í landinu. Þrátt fyrir að skattbyrðin hefði minnkað þannig að þeir greiddu almennt lægri skatt en meðalmaðurinn hafði hlutur þessa hundraðshluta í heildarskatt- byrði aukist í 15,2%. Árið 2011 var tekjuhæsti hundraðshluti fjöl- skyldna með 6,8% heildartekna og greiddi þá 10,9% álagðra skatta. Tekjur einstaklinga lækkuðu um 432 milljarða á 4 árum  Miklar breytingar á tekjum og skattbyrði  Tekjumunur hefur vaxið Skattar og tekjur » Lægri tekjur og breytingar á skattkerfinu hafa leitt til þess að þó landsmenn hafi almennt greitt hærra hlutfall tekna í skatt af tekjum ársins 2011 en 2010, þá greiða 2/3 fjöl- skyldna lægra hlutfall tekna í skatt en árið 2007. » Þeir sem tilheyra tekju- hæsta eina prósenti lands- manna höfðu meira en 43 milljónir í árstekjur 2007 en þau tekjumörk sigu niður í 24 millj. kr. 2011. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. KJÚKLINGASALAT Nú er létt að borða rétt. Þessi réttur virkar alltaf þegar mann langar í eitthvað almennilegt sem er bæði létt og gott. Fæst á öllum veitingastöðum N1 (12 staðir). Stefnt er að því að Alþingi komi saman næstkomandi fimmtudag, þann 6. júní, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Lengd sumar- þingsins liggur ekki fyrir, en hún ræðst af umfangi og fjölda þeirra mála sem tekin verða fyrir. 27 nýir þingmenn taka sæti á nýju þingi og sátu þeir fund í gær þar sem þeir fræddust um störf þingsins. Stefnt að sumarþingi „Þetta er í fyrsta skipti sem ég prófa svo stór- ar sápukúlur,“ segir Kári Svan Rafnsson, með- limur í Sirkus Íslands-hópnum, um fimm metra langa sápukúlu sem hann bjó til er hann var staddur á Klambratúni. „Ég hef verið að finna upp uppskriftir og þróa þetta áfram í um einn mánuð.“ Til verksins notar Kári heimatilbúna mixtúru og dýfir þar ofan í tveimur prikum sem tengd eru við snæri. „Kjöraðstæður eru hæg gola og blautt veður, vegna þess að blöðr- urnar lifa á raka. Því þurrara sem er, því fyrr þorna þær upp og springa. Þetta spratt upp úr sirkusstarfinu, maður er alltaf að skoða hitt og þetta í fjöllistum.“ Ásamt nýtilkominni færni í sápukúlugerð hefur Kári með sirkushópnum verið að snúa upp á blöðrur, halda hlutum á lofti og sýna loftfimleikalistir. „Þetta verður undir væng sirkussins og ég verð væntanlega á hátíðum á hans vegum að búa til kúlur. Þetta er alveg þrælskemmtilegt,“ sagði Kári að lok- um. Kári Svan Rafnsson, meðlimur í Sirkus Íslands og sápukúlumeistari, æfði sig á Klambratúni Morgunblaðið/Júlíus Býr til fimm metra langa sápukúlu eftir sérstakri uppskrift „Við horfum á þetta sjónarspil af hlaðinu,“ segir Guðrún Lilja Arnórs- dóttir, bóndi á Eiði við Kolgrafa- fjörð. Enn er töluvert af síld í firð- inum og fuglar og smáhveli elta hana inn fyrir brú. Súlan er tignarleg þegar hún steypir sér eftir æti. Veiðiaðferðin er nefnd súlukast. Súlan steypir sér úr mikilli hæð með sínu mikla væng- hafi, gerir sig spjótslaga og klýfur vatnið. Þannig getur hún sótt fisk á miklu dýpi. Guðrún segir að súlan sé heldur áköf á veiðum því fjöldi fugla hafi vængbrotið sig í atganginum. Þær stingi sér hver á aðra eða lendi á grjóti. Ábúendur á Eiði hafa fundið tugi súlna dauðar eða vængbrotnar. Síðustu daga hefur súlan mest haldið sig við brúna yfir Kolgrafa- fjörð og mest er hún að veiðum á að- fallinu, þegar straumur er mestur. Þar er súlan með sýningu fyrir veg- farendur. helgi@mbl.is Ljósmynd/Róbert A. Stefánsson Súlan kast- ar sér á síld í Kol- grafafirði  Fara sér að voða Mikil fjölgun ferðamanna til Íslands felur í sér áskoranir og kallað hefur verið eftir aðgerðum stjórnvalda með til dæmis innheimtu gjalds á ferðamannastöðum. „Þetta er eitt mest aðkallandi málið sem snýr að ferðaþjónustunni núna,“ segir Ragn- heiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. „Það er komin ákveðin sátt innan greinarinnar um að finna þurfi fyrir- komulag á gjaldtöku sem sé einfalt og skili sér til uppbyggingar á ferða- mannastöðum. Standa þarf vörð um náttúruna sem fólk er að koma að sjá og verja hana átroðningi.“ Aðspurð segist Ragnheiður ekki geta fullyrt hvaða fyrirkomulag verði ofan á en bendir á að sala náttúrupassa geti reynst erfið í framkvæmd. „Það hafa margir talað fyrir því að hafa ein- hvers konar nátt- úrupassa en þá koma upp ákveð- in álitamál sem taka verður af- stöðu til eins og til dæmis hvort þeir séu aðeins ætlaðir erlendum ferðamönnum, en það gæti verið erfitt í framkvæmd út frá alþjóðlegum skuldbindingum og jafnræðissjónarmiðum. Þá má líka velta því fyrir sér hvort sanngjarnt sé að ferðamaður sem ekki ætlar sér að skoða þessa helstu ferðamanna- staði eigi að greiða fyrir náttúru- passa sem hann mun ekki nota. Varðandi annars konar gjaldtöku þá er það ekki aðlaðandi hugmynd að hafa innheimtumenn á bílastæðum um allt land. Þetta eru sjónarmið sem við munum taka til athugunar og finna viðeigandi lausnir.“ Finna þurfi finna lausnir sem skila árangri. „Við þurfum að byggja upp einfalt og sanngjarnt kerfi sem skil- ar tekjum inn í ferðaþjónustuna og til uppbyggingar á ferðamannastöð- um. Eins verður að afnema þá skatta og þau gjöld sem hafa ekki náð þess- um markmiðum. Gistináttagjaldið hefur til dæmis verið gagnrýnt þar sem það er flókið í framkvæmd, skil- ar litlu og kemur ekki jafnt niður á fyrirtækjum og öðrum í ferðamála- geiranum.“ Ragnheiður segir málið mjög ár- íðandi en tekur fram að ekki megi skella á gjaldtöku á atvinnugreinar með skömmum fyrirvara. Það kom illa niður á fyrirtækjum þegar virð- isaukaskattinum á gistingu var breytt því þau voru mörg hver búin voru að selja ferðir langt fram í tím- ann. mariamargret@mbl.is Passar erfiðir í framkvæmd  Afnema skatta sem ekki skila árangri Ragnheiður Elín Árnadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.