Morgunblaðið - 31.05.2013, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 31.05.2013, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2013 Hafrannsóknaskipið Bjarni Sæ- mundsson tekur á næstunni þátt í leiðangri Evrópusambandsins, Norðmanna, Færeyinga og Íslend- inga til að telja egg makríls. Skip- ið leggur í leiðangurinn 10. júní og er áætlað að það verði í þessu verkefni í rúmar tvær vikur. Alls tóku þrettán skip þátt í eggjataln- ingunni fyrir þremur árum í 16 að- skildum leiðöngrum. Í eggjatalningunni eru sýni tek- in með sérhæfðum háfi við yf- irborð sjávar og síðan er reiknað út miðað við fjölda eggja í hverju kasti hversu margir fiskar hrygndu það árið. Til grundvallar liggja margvíslegar upplýsingar, meðal annars úr fyrri leiðöngrum auk frjósemismælinga, þ.e. heild- arfjölda hrogna í hverri hrygnu. Þessir leiðangrar hafa verið grundvöllur við mat á stærð hrygningarstofns. Eggjaleiðangrarnir eru mjög umfangsmiklir og er verkefnið í gangi þriðja hvert ár frá janúar og fram í miðjan júní. Egg hafa verið talin alla leið frá Biskaya-flóa og í síðasta leiðangri í fyrsta skipti syðst og austast í íslensku lög- sögunni í lok verkefnisins. Þá var talið að um 1% af heildarhrygn- ingunni hafi verið í íslenskri lög- sögu. Hrygningunni er fylgt norð- ur á bóginn þar til engin egg finnast. Mælingar á makrílstofninum eru ýmsum vandkvæðum háðar. Í fyrsta lagi er fiskurinn ekki með sundmaga og því næst ekki end- urkast með bergmálsmælingum frá makrílnum. Þá er makríll mjög ofarlega í sjónum og yfir sum- armánuðina er hann ofar en botn- stykki skipanna. Þessi staðreynd torveldar enn frekar bergmáls- mælingar á makríl. Við bergmáls- mælingar á öðrum fiskum kemur endurvarp hljóðsins að 95% frá sundmaganum. Norðmenn hafa unnið að þróun tækni til að berg- málsmæla makríl. Makríll í Atlantshafi skiptist í þrjá stofnhluta og eru hrygning- arsvæði þeirra vel aðgreind. Vest- urstofn er langstærstur eða um 80% af heildarstofnstærð mak- ríls. Hann hrygnir á stóru svæði frá vestur af Skotlandi að Biska- ya-flóa í mars til júní. Hrygningar varð vart í íslenskri lögsögu í síð- asta leiðangri eins og áður sagði. Norðursjávarstofn er talinn mjög lítill og hrygnir í Norðursjó í apríl til júlí. Suðurstofn hrygnir með norður- og vesturströnd Íber- íuskagans í janúar til apríl. BJARNI SÆMUNDSSON TEKUR ÞÁTT Í FJÖLÞJÓÐLEGRI EGGJATALNINGU Sýni tekin með sérhæfðum háfi Ljósmynd/Björn Gunnarsson Rannsóknir Sýni eru tekin úr hrogna- sekkjum fullorðinna makrílhrygna. Með vefjafræðilegum aðferðum er hægt að áætla hversu mörg egg hver hrygna framleiðir á hrygningartíma. FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is E vrópusam- bandið hefur hafnað að taka þátt í trollleið- angri íslenskra, fær- eyskra og norskra vís- indamanna til að kanna stofnstærð og útbreiðslusvæði makríls og magn hans á hverju svæði yfir sumartím- ann. Áfram verður því einkum stuðst við svokallaðan eggjaleið- angur til að kanna vísitölu hrygningarstofns makríls, en í þá er aðeins farið á þriggja ára fresti. Þessir leiðangrar eru umfangsmiklir og eiga um þriggja áratuga sam- fellda sögu. Óformlega og formlega hefur ver- ið rætt við ESB síðustu ár um þátt- töku í fyrrnefndum rannsóknum með flotvörpu. Norðmenn og Fær- eyingar hafa stutt sjónarmið Ís- lands, en um leið eru þjóðirnar, þ.m.t. Íslendingar, einnig aðilar að eggjaleiðöngrum sem skipulagðir eru af Alþjóða hafrannsóknaráðinu. Síðustu ár hefur makríll í miklum mæli gengið norður á bóginn í æt- isleit yfir sumartímann og er talið að meira en milljón tonn hafi verið í ís- lenskri lögsögu síðustu sumur og allt að hálfri annarri milljón. Miklir hagsmunir eru því í húfi að rann- sóknir séu sem nákvæmastar. Ekki er samkomulag um stjórnun veið- anna. Andstaða Skota og Íra Síðast voru þessi mál rædd á sam- eiginlegum fundum vísindamanna og hagsmunaaðila frá Íslandi, Fær- eyjum, Noregi og löndum Evrópu- sambandsins í Danmörku í mars- mánuði. Á þeim fundum kom fram neikvæð afstaða Skota og Íra gagn- vart þátttöku í trollrannsóknunum. Borið var við að rannsóknaskip væru ekki fyrir hendi á þessum tíma með svo skömmum fyrirvara. Einnig að fjárhagsáætlanir gerðu ekki ráð fyr- ir þessu verkefni. Undirliggjandi kann að vera að vitneskja sé um að lítið sé af makríl í lögsögu þessara þjóða yfir sum- artímann. Ekki sé sérstakur áhugi á að fá úr því skorið þar sem það gæti haft áhrif á samningsstöðu ESB. Þó svo að framkvæmdastjórn ESB ráði ekki yfir rannsóknaskipum og bún- aði er það talið hafa mikil áhrif legð- ist hún á árar og styddi ósk Íslend- inga. Frá 2009 hafa göngur makríls norður á bóginn verið kortlagðar og í sumar verður göngum makríls fylgt inn í grænlenska lögsögu í fyrsta skipti. Þessar rannsóknir ná hins vegar aðeins að miðlínu suður af Færeyjum og aðeins stutt inn í ESB lögsögu í Norðursjó, norska rannsóknaskipið. Leiðangurinn á síðasta ári stóð allan júlímánuð og í fyrra notuðu öll rannsóknaskipin fjögur samskonar flotvörpu sem sér- staklega hefur verið þróuð fyrir þennan leiðangur. Ítrekaði þátttöku ESB Steingrímur J. Sigfússon, þáver- andi atvinnuvegaráðherra, skrifaði í síðasta mánuði bréf til Mariu Dam- anaki, sjávarútvegsstjóra Evrópu- sambandsins. Steingrímur ítrekaði þar að Evrópusambandið tæki þátt í fyrrnefndum trollrannsóknum. Bent var á að til að ná yfir allt út- breiðslusvæði makríls þyrfti leið- angurinn að ná lengra suður og vest- ur á bóginn. Ráðherra segir í bréfi sínu að sé ekkert rannsóknaskip frá ESB á lausu sé hann fullviss um að hægt sé að finna lausn á slíku fram- kvæmdaatriði. „Með einlægri ósk um að við get- um sameinað krafta okkar til að ná fram besta mögulega grundvelli fyr- ir samningi strandríkja,“ segir Steingrímur í lok bréfsins. Pólitískur vilji Í svari sínu segir Maria Damanaki að aukning á trollmælingum eða stofnmælingu með flotvörpu kalli á að tvö skilyrði séu uppfyllt. Í fyrsta lagi þyrfti að vera vissa um að ekki væri hætta á að það myndi beina fé og mannafla frá eggjaleiðöngrum, sem myndi hafa áhrif á mikilvæga og einstæða tímaröð hennar. Slík rösk- un myndi grafa undan undirstöðum stofnmats Alþjóða hafrannsókna- ráðsins. Í öðru lagi þyrfti að aðlaga að- ferðafræði núverandi stofnmælinga með flotvörpu svo henni mætti beita sunnar á hafsvæðinu. Makríll haldi sig í efri lögum sjávar þegar hann nærist í íslenskri eða færeyskri lög- sögu. Í lögsögum ESB-ríkja sem liggja sunnar sé makríll ekki bund- inn við efstu 20 metra sjávar heldur sé hann dreifðari þar. Í bréfinu seg- ist Damanaki binda vonir við að Al- þjóða hafrannsóknaráðið geti veitt ráðgjöf um sum þessara atriða fyrir haustið. Hún bendir á að jafnvel þótt stofnmælingar með flotvörpu myndu takmarkast við núverandi svæði að sinni hafi Alþjóða hafrannsóknar- ráðið nú þegar til skoðunar niður- stöður sínar í skýrslum vinnuhópa frá 2013. Og muni líklega gera það einnig við vinnu rýnihópa sem ráð- leggja um aðferðafræði við makríl- veiðar snemma á næsta ári. „Ég vona líka að við getum unnið saman að því að skapa sem besta umgjörð til að ná samkomulagi milli strandríkjanna og ný gögn sem vís- indamenn kunna að afla verði þáttur í því ferli. En umfram allt þarf að vera fyrir hendi pólitískur vilji til að ná lausn sem hlutaðeigandi geta fall- ist á,“ segir Maria Damanaki. Hrygning Eggjum safnað í háf um borð í Árna Friðrikssyni sumarið 2010. Ekki samstaða um rannsóknir, ESB styðst við eggjatalningu Fleiri stoðir » Mat á stærð hrygningar- stofns makríls er nú einkum byggt á aflagögnum og magni makríleggja í fjölþjóðlegum leiðöngrum. » Nýjar upplýsingar um vísi- tölu hrygningarstofns fást því aðeins á þriggja ára fresti samanborið við að árlegar stofnmælingar eru gerðar ár- lega í mikilvægustu botnfisk- stofnum við Ísland, jafnvel bæði að vori og hausti t.d. fyrir þorsk. » Séu tölur um aflamagn makríls verulega rangar, eins og mun hafa verið fyrir ekki svo mörgum árum í löndum ESB, hafi það veruleg skekk- juáhrif í stofnmatinu. » Samhæfðir leiðangrar Ís- lendinga, Norðmanna og Fær- eyinga á norðursvæðinu hóf- ust árið 2009 og fara því fram í fimmta skipti í sumar. » Íslendingar hafa farið fram á að mat á stærð makríl- stofnsins byggist á fleiri stoð- um en nú er gert og nið- urstöður trollrannsókna verði teknar með. Ljósmynd/Björn Gunnarsson Sumarútbreiðsla og gönguleiðir makríls Ísland Noregur Færeyjar Grænland Skotland Viðbótardreifing síðustu ár Dreifing 2004 Gönguleiðir RÚNSTYKKI MEÐ SKINKU & OSTI Til eru fræ sem þrá ekkert heitar en að lenda á rúnstykki með skinku og osti. Mundu það næst þegar þú færð þér bita. CUPCAKE Vissulega er hún sæt og girnileg en útlitið segir ekki allt. Hún er staðráðin í að halda sér í formi svo þú fáir notið hvers einasta bita. Fæst á Ártúnshöfða og Hringbraut.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.