Morgunblaðið - 31.05.2013, Page 11

Morgunblaðið - 31.05.2013, Page 11
manns, þá væri viðskiptahóp- urinn að stórum hluta til ákveðin ríkra manna klíka. Knattspyrnumenn litnir hornauga „Við opnuðum útibúið Lond- on Rocks í febrúar. Ég er búinn að gera samning við stærsta klúbbinn í London, eða þann sem er erfiðast að komast inn í, The Box. Svo er einn aðili frá okkur í Berlín núna og við stefnum þangað líka,“ segir Unnar. Hann hefur náð að mynda góð tengsl í London og er meðal annars kunnugur umboðs- mönnum Gorillaz og Blur ásamt því að þekkja til Mark Jones sem á meðal annars plötuútgáfufyrirtækið Wall of Sound. „Þetta snýst allt um að mynda tengsl. Ef við tökum The Box sem dæmi þá hitti ég fram- kvæmdastjórann þar fyrir tilviljun. Það er einn í fót- boltalandsliðinu hérna heima sem vildi komast inn á þennan stað og hafði samband við mig. Ég þekki hann ekki neitt, þetta voru bara viðskipti. Ég hafði samband við framkvæmda- stjóra staðarins. Hún tjáði mér samstundis að þau tækju ekki við fótboltamönnum. Þau vilja ekki fá fótboltamenn inn á staðinn hjá sér, það er meira um Hollywood-lið sem þessi staður er ætlaður. Kate Moss er til að mynda ein þeirra sem sækja staðinn reglulega,“ seg- ir Unnar en hann mun á næst- unni draga sig frá rekstri fyr- irtækjanna þar sem ný og spennandi verkefni bíða hans. The Black Eyed Peas Charlie Sheen Liv Tyler Reuters Sean Lennon Kate Moss Busta Rhymes DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2013 2.000 notendur smáforritsins Á leikdegi fá hinir 2.000 not- endur forritsins senda áminningu um komandi leik og geta þeir á sama tíma nálgast leikskrá. „Mið- að við að þetta höfðar eiginlega bara til KR-inga þá finnst mér alveg ótrúlega fínt hversu margir nýta sér þetta.“ Jónas æfði lengi vel knattspyrnu með KR. „Pabbi er framkvæmdastjóri KR þannig að það er bein leið inn félagið fyrir mig og ekki annað hægt en að vera algjör KR-ingur. Þegar ég hætti í fótboltanum tók ein- faldlega annað áhugamál við og ég fór í verkfræði í HR.“ KR-smáforritið er frítt og er hægt að nálgast það ef leitað er undir KR Reykjavík og er það aðgengilegt bæði fyrir iPhone og Android. „Ég er alveg hrikalega ánægður með þetta og það eru allir ánægðir með þetta hjá KR. Maður finnur mest fyrir því að fólk vill að maður sé stöðugt að bæta einhverju nýju við.“ Smáforritari Jónas Óli Jónasson sameinaði tvö áhugamál sín, knattspyrnu og smáforritagerð, og bjó til KR-smáforritið. Einstaklingur stendursjaldan á jafnskýrumkaflaskilum í lífinu ogþegar hann útskrifast úr framhaldsskóla,“ hugsaði ég, við- staddur stúdentsveislu frænda míns um síðastliðna helgi. Við út- skrift stendur maður á tímamótum þar sem manni ber að segja skilið við kæruleysi menntaskólaáranna og reima á sig skóna áður en talið er í fyrir lífsins dans – eða eitthvað í þá áttina. Í veislunni varð mér hugsað til eigin útskriftar, sem reyndi þó ekki mikið á hugann þar sem að- eins eru liðin tvö ár síðan. Dag- urinn var einn sá besti sem ég hef lifað og lýtalaus að öllu leyti að frátöldu einu smáatriði, raunar ómerkilegu smáatriði. Umrætt smáatriði var fólgið í fjögurra orða spurningu sem annar hver gestur skvetti framan í mig, oftast er þeir höfðu króað mig af. „Hvað tekur svo við?“ Spurningin getur verið ansi erfið viðureignar, einkum þegar sá sem hún beinist að kann ekki svarið sjálfur. Merkilegt nokk taldi ég mig þó vita svarið, a.m.k. á þeim tímapunkti, svo ég var með romsuna nokkuð vel æfða þegar fyrsti gesturinn kró- aði mig af. Ég hafði hins vegar ekki fyrr lokið mér af við að þylja upp svarið en næsti gestur króaði mig af og sá næsti og sá næsti. Ljósgrái bletturinn á þess- um gleðidegi var sem sagt fólginn í þreyt- andi endurtekn- ingu. Í stað þess að fá að njóta þessa gleði- augnabliks til hins ýtrasta var ég neydd- ur til að sóa hálfri veisl- unni í að út- skýra fyrir 50 ólíkum einstakling- um hvað ég hygðist taka mér fyrir hendur mánuðum síðar. Nú kann einhver að halda að ég beri kala til gestanna en því fer fjarri. Ég kenni sjálfum mér um, því auðvitað hefði ég átt að sjá þetta fyrir. Við svona skýr kafla- skil er fátt eðlilegra en að margir gestir vilji fræðast um áform ný- stúdents. Ég hefði sem sé átt að vera með kláran fyrirlestur. Ég hefði átt að bjóða gesti vel- komna með því að rétta þeim út- drátt með lýsingu á áformum mín- um í stikkorðum. Útdrátturinn hefði jafnvel getað verið prentaður á servíettur, sem hefði þá nýst fyr- ir standandi borðhaldið um leið. Við fyrsta mögulega tækifæri eftir komu gesta hefði ég síðan átt að kveðja mér hljóðs, kveikja á skjá- varpa og svala forvitni allra gesta á einu bretti, jafnvel taka á móti spurningum. Á fimm mínútum hefði ég getað slegið 50 flugur í einu höggi. Það er auðvelt að vera vitur eftir á en hver veit nema að ég taki upp á þessu næst þegar ég út- skrifast úr námi, þótt ég standi víst aldrei aft- ur á kvíslóttu krossgöt- unum sem fylgja stúd- entsprófi. Að því sögðu má ég til með nefna að ef einhver sem á eftir að skella á sig hvítu húf- unni les þennan pist- il, þá er hon- um frjálst að færa sér þessa að- ferð í nyt. Ég lofa að lesa ekki yfir við- komandi. »Á fimm mínútumhefði ég getað slegið 50 flugur í einu höggi. Heimur Einars Einar Lövdahl elg@mbl.is Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ RÚNSTYKKI MEÐ SKINKU & OSTI Til eru fræ sem þrá ekkert heitar en að lenda á rúnstykki með skinku og osti. Mundu það næst þegar þú færð þér bita.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.