Morgunblaðið - 31.05.2013, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 31.05.2013, Qupperneq 20
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is S kógar og kjarrlendi draga stórlega úr neikvæðum af- leiðingum gjóskufalls. Það er því talið brýnt lang- tímaverkefni að byggja aftur upp skóga- og kjarrvistkerfi umhverfis stærstu eldstöðvar lands- ins. Fjallað er um forvarnargildi gróð- urs gegn hamförum af völdum eld- gosa og eldgosagjósku í skýrslunni Gróður og eldgosavá sem birt hefur verið á vef Landgræðslu ríkisins. Skýrslan er liður í undirbúningi að gerð hættumats vegna eldgosa á Ís- landi sem ríkisstjórnin samþykkti fyrir tæpum tveimur árum og reiknað er með að taki 15-20 ár að gera. Skýrslan er innlegg í starf vinnuhóps sem skipaður var til að safna upplýs- ingum um verkefni í landgræðslu, skógrækt og landbúnaði sem tengjast eldgosum og leiðum til að draga úr skaðsemi þeirra með markvissri upp- byggingu vistkerfa á eldvirkum svæð- um. Byggja þarf upp vistkerfin Í skýrslunni er rifjað upp að eld- virkni og váleg áhrif eldgosa á gróður eru algeng í umhverfissögu landsins. Gjóskan geymdist í skjóli skóganna á meðan þeir voru, en varðveittist ekki á gróðurlitlum bersvæðum. Þar fauk gjóskan um og olli frekari gróður- og jarðvegseyðingu. Bent er á að gróskumikil vistkerfi með hávöxnum gróðri, líkt og skógi og kjarrlendi, þoli betur áföll og dragi úr neikvæðum af- leiðingum gjóskufalls. Sá gróður sé líklegri til að lifa af gjóskufall, hann geti dregið úr langvinnum áhrifum öskustorma og stytti tímann sem landið þurfi til að ná bata. „Það er því brýnt langtímaverkefni að byggja aft- ur upp vistkerfi umhverfis stærstu eldstöðvakerfi landsins svo þau megni að sinna því hlutverki á ný. Með upp- græðsluaðgerðum má byggja upp gróskumikil vistkerfi sem væru betur í stakk búin að mæta áföllum og gætu dregið verulega úr neikvæðum afleið- ingum gjóskufalls og endurteknu foki,“ segir meðal annars. Lítið þanþol vistkerfa Bent er á að þótt ástand vistkerfa á Íslandi sé hugsanlega að færast til betri vegar þá sé enn mikið rof á stórum hluta landsins. Bendi það til þess að vistkerfi landsins sé enn undir miklu álagi. Ef viðbótaráföll dynji yfir sé því hætt við að geta vistkerfanna til að bregðast við sé takmörkuð. Þan- þolið sé því lítið á áhrifasvæðum eld- gosanna. Lagt er til að ráðist verði í marg- þættar rannsóknir á áhrifum eldgosa á vistkerfi landsins, meðal annars á ástandi vistkerfa og þoli þeirra gagn- vart gjóskufalli. Reynslan frá síðustu eldgosum í Eyjafjallajökli og Mýrdalsjökli og fyrri eldgosum er talin sýna að tjón af völdum eldgosa verður að verulegu leyti vegna gjóskufoks eftir að gosi lýkur. Þá hefur reynslan erlendis sýnt að það er endurflutningur gjósk- unnar sem veldur landbúnaði mesta efnahagslega tjóninu. Þá sýni reynsl- an að gjóskan fjúki margfalt meira en þyrfti vegna lélegs ástands vistkerf- anna. Settar eru fram tillögur að að- gerðaáætlun til að draga úr tjóni af gjóskufoki, meðal annars með því að skilgreina hættusvæði og byggja hratt upp vistkerfi á forgangs- svæðum, þar sem talin er mikil hætta á tjóni. Líklegt er talið að mesta þörf á að- gerðum sé við gosbeltin og þau eld- stöðvakerfi þar sem gjóskugos hafa verið tíðust. Það er í nágrenni eld- stöðvanna við Grímsvötn, Heklu, Bárðarbungu, Veiðivötn og Kötlu. Skógur og kjarr til varnar gegn öskufoki Morgunblaðið/Ómar Öskugrátt Bílarnir þyrluðu upp öskunni sem féll úr gosinu í Eyjafjallajökli þegar ekið var um Mýrdalssand. Askan er enn á ferðinni á vissum svæðum. 20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ U m síðustu helgi varð pistilshöf- undur þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að fylgjast með braut- skráningu ungs ættarlauks frá einum af framhaldsskólum landsins. Umrætt ungmenni útskrifaðist frá sama skóla og sú sem hér skrifar og við braut- skráningarathöfnina bauð stjórnandi kórs skólans þeim fyrri kórfélögum sem voru við- staddir að stíga á svið og taka undir með kórn- um. Undirrituð er í þeim hópi og tók áskor- uninni. Við það rifjaðist upp að síðast hafði verið sungið með þessum kór fyrir 24 árum, við eigin brautskráningu frá sama skóla. Síðan þá hefur margt breyst í skóla- og menntamálum, annað væri óeðlilegt. Eitt af því sem hefur tekið miklum breytingum er umræðan. Til dæmis heyrðist orðið brottfall sjaldan vorið 1989, þrátt fyrir að fjölmargir hyrfu þá frá námi fljótlega á skólagöngunni, eitthvað var þó rætt um að auka fjölbreytni, lítið var talað um að stytta þyrfti námstíma í grunn- og framhaldsskólum. En nú eru aðrir tímar; krafan um að stokka upp í skólakerfinu verður sí- fellt háværari og kemur úr mörgum áttum og það er fagnaðarefni að nýskipaður menntamálaráðherra skuli telja menntamálin stærsta efnahagsmálið. Þegar rætt er um styttingu náms í grunn- og fram- haldsskólum gleymist stundum að sá möguleiki hefur lengi verið fyrir hendi. Margir framhaldsskólar gefa nemendum kost á að hraða námi sínu og samkvæmt lög- um um grunnskóla er heimilt að útskrifa nemendur þaðan í lok 9. bekkjar, uppfylli þeir tiltekin skilyrði. Í rauninni ætti ekkert að standa í vegi fyrir því að nemendur geti stytt námstíma sinn á því skólastigi sem best hent- ar hverju sinni. En til þess að það mætti verða þyrfti að líta til alls námsferilsins í þessu sambandi, en ekki bara til einstakra skólastiga. Skoða leik-, grunn- og framhalds- skóla sem eina heild. Það virðist stundum gleymast í allri þessari skólaumræðu að leik- skólinn er skilgreindur sem fyrsta skólastig- ið, menntun þeirra sem þar starfa er talsvert meiri en var fyrir nokkrum árum og í flestum leikskólum eru elstu börnin undirbúin mark- visst fyrir grunnskólanám. Mörg börn eru vel í stakk búin til að hefja grunnskólanám yngri en sex ára, önnur eru ekki tilbúin til þess fyrr en síðar. Þetta vita allir sem starfað hafa við grunnskóla- kennslu á yngsta stigi. Það sama gildir um nemendur á unglingastigi, sumir þeirra gætu vel tekist á við nám í framhaldsskóla fyrr en hefðin býður. Stundum blandast umræðan um kjaramál kennara saman við umræðu um styttingu skólaársins. Að verði námstíminn styttur, þá verði miklir peningar afgangs sem megi m.a. nýta til þess að lagfæra kjör kennara. Kjaramál kennara eru óskylt málefni og þarf að ræða á öðrum vettvangi. Því ef okkur er alvara með því að vilja betri skóla þá verðum við líka að vera tilbúin til að borga fólkinu sem þar vinnur laun við hæfi. annalilja@mbl.is Anna Lilja Þórisdóttir Pistill Skólarnir stærsta efnahagsmálið STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Eldgosin í Eyjafjallajökli og Grímsvötnum hafa minnt Ís- lendinga á þá hættu sem stafar af eldgosum. Rannsóknir benda til þess að búast megi við virk- ara tímabili eldvirkni á næst- unni. Af þessum ástæðum var ákveðið að gera heildar- hættumat vegna eldgosa á Ís- landi og leggja mat á tjón sem þau geta valdið og áhrif á sam- félagið og móta mótvægis- aðgerðir. Tilgangurinn er að lág- marka skaða samfélagsins vegna eldgosa. Gert er ráð fyrir að þetta verk taki 15 til 20 ár. Hættumat vegna gosa AUKIN ELDVIRKNI Grímur Íbúar þurftu að verja önd- unarfærin eftir Grímsvatnagosið. Ídag kemur Morg-unblaðið les-endum sínum öðruvísi fyrir sjónir en aðra daga. Blaðið er gefið út á því formi sem þekkt hefur verið í gegnum tíðina hjá er- lendum stórblöðum og kallað er breið- síða, eða broadsheet á enskri tungu. Þó að Morgunblaðið hafi ekki fylgt fyrirmynd erlendra stórblaða að þessu leyti nema um skamma hríð snemma á síðustu öld – frekar að þau séu farin að fylgja fordæmi Morgunblaðsins – er blaðið vitaskuld stórblað á íslenskan mælikvarða og hefur verið í þau 100 ár sem það hefur komið út, en blaðið á aldarafmæli síðar á árinu. Lesendur Morgunblaðsins, sem margir eru íhaldssamir þegar kemur að efni og útliti blaðsins síns, þurfa raunar ekki að hafa áhyggjur af að stækkun blaðsins sé varanleg. Ætlunin er aðeins að blaðið verði á þessu formi þennan eina dag, en segja má að þessi óvenjulega útgáfa sé til marks um að þó að blaðið sé búið að slíta barns- skónum og sé á margan hátt jafn íhaldssamt og lesendur þess, er það engu að síður nýjungagjarnt og hefur gaman af að breyta til. Þessa hafa oft sést merki í gegnum tíðina og má nefna að blaðið tók snemma til við að veita öfluga frétta- þjónustu á netinu og hefur um árabil haldið úti öflugasta frétta- og afþrey- ingarvef landsins, mbl.is. Morg- unblaðið var einnig fyrst dagblaða til að bjóða lesendum sínum blaðið í gegn- um smáforrit á spjaldtölvum og á því formi og á hinum hefðbundna vef er blaðið í dag að finna í hefðbundinni stærð líkt og aðra daga. Morgunblaðið hefur einnig haft sér- stöðu í að tengja saman blað og vef með svokölluðum QR-kóðum fyrir snjallsíma og mun áfram tryggja að lesendur geti fengið blaðið á því formi sem hentar best, bæði raf- rænu og á pappír. Ánægjulegt er að geta á afmælisárinu gefið út eina breiðsíðu af Morgunblaðinu en lesendur blaðsins munu á næstu mán- uðum verða afmælisins varir á ýmsan annan hátt. Rifjuð verða upp áhuga- verð og skemmtileg atvik úr sögu Ís- lands síðustu 100 árin, sem óhætt er að segja að sé hvergi betur skráð en á síðum Morgunblaðsins. Allan aldur Morgunblaðsins hefur meginþunginn í útgáfu þess og helsta markmið verið að veita lesendum sín- um sem bestar, mestar og réttastar fréttir af því sem á sér stað hér á landi og í umheiminum. Á tímum þegar aðrir hafa brugðist og ýmist ekki haft getu eða vilja til að upplýsa um það sem máli skiptir hefur Morgunblaðið staðið vaktina og tryggt lesendum sínum aðgang að nauðsynlegum upp- lýsingum. Þetta hlutverk tekur Morg- unblaðið alvarlega og mun sinna því áfram af sömu elju og það hefur gert. Um leið mun blaðið áfram tryggja lesendum sínum afþreyingar- og skemmtiefni af margvíslegum toga og vera á sama tíma vettvangur fyrir þá að koma skoðunum sínum og hugð- arefnum á framfæri. Meðal annars með þeim hætti er Morgunblaðið, og hefur verið, gagnvirkur miðill, eins og það gæti kallast á tölvu- og upplýs- ingaöld. Þannig þjónar það einnig les- endum sínum af þeim áhuga sem það hefur gert í tæpa öld, enda starfar Morgunblaðið í þágu lesenda sinna. Þjónustan við áskrifendur blaðsins hefur verið í fyrsta sæti hjá starfs- mönnum þess í tæpa öld og verður áfram um ókomna framtíð, á hvaða formi sem áskrifendur kjósa að njóta blaðsins. Blaðið birtist lesendum sínum með óvenjulegum hætti í dag} Breiðsíða Morgunblaðsins Samkvæmt skil-yrðum sem Evr- ópusambandið hefur birt fara engar raun- verulegar „samninga- viðræður“ fram þegar land sækir um aðild að sambandinu. Eingöngu eiga sér stað aðlögunarviðræður samkvæmt birtum ófrávíkjanlegum skilyrðum ESB. Um þetta verður ekki deilt, enda gera það engir aðrir en þeir sem koma af fjöll- um í íslenskri þjóðfélagsumræðu og eru almennt úti á þekju. Þessi skilyrði Evrópusambandsins eru bæði eðlileg og sanngjörn, eins og Hollande forseti Frakklands hefur ný- lega bent á. Aðild einstakra ríkja er ekki í ætt við að fara á veitingahús og velja sérsniðna máltíð. Evrópusam- bandið er félagsskapur 27 ríkja sem hafa komið sér saman um reglur á 100.000 – eitthundrað þúsund síðum. Þær liggja fyrir og ríki sækir ekki um aðild fyrr en það hefur kynnt sér þær og telur sig geta fallist á að undirgang- ast þær. „Viðræðurnar“ sem fram fara eru tvenns konar. Annars vegar mæta fulltrúar umsóknarríkis með reglu- bundnar skýrslur um það, hvernig því gengur að laga tilveru sína að reglum ESB. Aðlögun fer fram alla þá daga sem „viðræðurnar“ standa án þess að nokkur hafi „kíkt í pakka“ eða að þjóð- in hafi fengið nokkuð um þessar breyt- ingar að segja. Sá þáttur, sem er næstur því að nálgast það að flokkast undir „samningaviðræður“ (þótt ESB vari við því að nota það orð), snýst um hvort aðildarríki þurfi í undantekningartilvikum að fá aukinn tíma til að innleiða einhverjar reglur. Þetta liggur fyrir og er ekki deiluefni, nema þeirra einna sem telja það ekki forsendu þess að fjalla um mál að hafa sett sig inn í þau. Slíkir eru fáir og ná naumast máli. Nú, þegar margt bendir til þess að íslenska ríkisstjórnin muni efna loforð stjórnarflokkanna um að hætta aðild- arbröltinu, fer áhugi vaxandi meðal þjóða sem eru í ESB um að finna leið út úr þeim ógöngum sem fylgja aðild og ekki síst evrunni. Nýlega kom út bók í Portúgal eftir þekktan fræði- mann þar í landi um veruna í ESB. Bókin heitir Porque Debemos Sair do Euro sem mætti þýða „Þess vegna eig- um við að kasta evrunni“. Það gerist ekki oft að þunglamalegar bækur um slík efni verði sölubækur. En þessi flaug í fyrsta sæti metsölulista Portú- gals. Það segir mikla sögu. Allir vita um vaxandi efasemdir um ESB-aðild í Bretlandi og eru Bretar þó ekki fastir í evrugildrunni. Fullyrð- ingar um heimspólitískan jarðskjálfta, ef Ísland hyrfi úr aðildarbröltinu, reyndust markleysa. Málið er ljóst og einfalt. Á að gera það flókið? Bók um að kasta evrunni fór á topp sölulista í Portúgal} Málið er sáraeinfalt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.