Morgunblaðið - 31.05.2013, Síða 28

Morgunblaðið - 31.05.2013, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2013 ✝ Lovísa HafbergBjörnsson fæddist á Akureyri 27. febrúar 1925. Hún lést á hjúkr- unar- og dval- arheimilinu Grund 21. maí 2013. Móðir hennar var Halldóra Sig- urðardóttir hús- freyja, f. 4.5. 1887, d. 20.11. 1979. Fóst- urforeldrar Lovísu voru hjónin Sigurjón Jónsson, héraðslæknir á Dalvík, f. 22.12. 1872, d. 30.8. 1955, og Sigríður Ólafsdóttir, f. 26.9. 1875, d. 4.1. 1952. Börn þeirra Sigurjóns og Sigríðar voru: Elín, f. 19.12. 1903, d. 23.3. 1991, Oddný, f. 19.12. 1904, d. 18.5. 1967, Júlíus, f. 26.12. 1907, d. 9.9. 1988, Ingibjörg, f. 17.12. 1914, d. 16.8. 1986. Hálfsystur Lovísu sammæðra: Ólína, f. 10.9. 1927, d. 6. 3. 2007, og Karla, f. 15. 9. 1930, d. 9.8. 2004, Stef- ánsdætur. Hinn 28.12. 1947 giftist Lovísa Gunnari Kristjáni Björnssyni efnaverkfræðingi, f. á Kópaskeri þeirra er Emma Lovísa. 3) Björn viðskiptafræðingur, f. 29.9. 1951, d. 8.5. 2006, m. Guðrún Nanna Guðmundsdóttir (skildu), börn Íris, m. Freyr Berg- steinsson, börn þeirra eru Breki, Katla og Svava. Egill, sambýlis- kona Sóley Árnadóttir, börn Al- exander Björn, Kristofer Árni og Elías Hilmar. 4) Sigurjón for- stöðumaður, f. 15.4. 1954. M1 Marta Helgadóttir (skildu), barn Arnar, barnsmóðir Guðrún Stef- ánsdóttir, barn Svanur. M2 Sig- ríður Olgeirsdóttir fram- kvæmdastjóri, börn Lovísa Kristín og Björk. 5) Gunnar Örn vélaverkfræðingur MS, f. 14.1. 1958, m. Olga Bergljót Þorleifs- dóttir kennari, börn Þorleifur Örn, Snorri Björn, Anna Berg- ljót og Gunnhildur Ýrr. 6) Hall- dór, BFA kvikmyndagerð- armaður, f. 8.1. 1962. Barnsmóðir Sólveig Svein- björnsdóttir, barn Steinunn Eyja, barnsmóðir Sonný Lísa Þorbjörnsdóttir, barn Halldór Falur, sambýliskona Anna Pers- son, börn Dagur Erik Kristján og Birta Måna-Lisa. 7) Þórarinn verslunarmaður, f. 29.1. 1964, m. Berglind Garðarsdóttir leik- skólakennari, börn Rakel Tara og Rebekka Sól. Útför Lovísu fer fram frá Ás- kirkju í dag, 31. maí 2013, og hefst athöfnin kl. 13. 20. janúar 1924, d. 26.2. 2009. For- eldrar hans voru hjónin Björn Krist- jánsson, bóndi, al- þingismaður og kaupfélagsstjóri á Kópaskeri, f. á Vík- ingavatni, Keldu- neshr., N-Þing. 22.2. 1880, d. 10.7. 1973, og Rannveig Gunnarsdóttir, f. í Skógum, Öxarfjarðarhr., N- Þing. 6.11. 1901, d. 29.1. 1991. Börn þeirra Lovísu og Gunnars eru: 1) Árni vélaverkfræðingur og viðskiptafræðingur, f. 18.8. 1948. M1 Margrét Arnórsdóttir (skildu), sonur Arnór Sigurður, m. Marta María Skúladóttir, börn þeirra eru Margrét Laufey og Skúli Snær. M2 Daniela I. Gunnarsson, börn María og Gunnar Daníel. 2) Rannveig for- stjóri, f. 18.11. 1949, m. Tryggvi Pálsson hagfræðingur, börn Gunnar Páll, m. Guðbjörg Karen Axelsdóttir, börn Tryggvi og Laufey. Sólveig Lísa, m. Guð- mundur Gísli Ingólfsson, dóttir Þegar ég sem tæplega 19 ára menntaskólapiltur fór að stíga í vænginn við Rannveigu, síðar eiginkonu mína, var mér tekið opnum örmum af foreldrum hennar, Lísu og Gunnari í Hvassaleiti 79. Þá kynntist ég kraftmikilli, samheldinni fjöl- skyldu sem ég ætíð síðan hef notið að tilheyra og er stoltur af. Lísa sagði gjarnan við Gunnar sinn, að þó hann teldi sig eiga all- ar tengdadæturnar sex að tölu, þá ætti hún mig. Þegar mín ynd- islega Rannveig var eitthvað að kvarta yfir hæglætis ofríki mínu, eins og hún kýs að kalla stjórn- semina, þá mælti tengdamamma mér ætíð bót. Lísa var glæsileg kona og að- laðandi. Hún var kvik í hreyf- ingum, skörp í sinni og góð í gegn. Skaphöfn hennar var ljúf, hún var einstaklega tillitssöm og átti ekki til eigingirni. Umtals- góð var Lísa en þoldi ekki órétt- læti og sviksemi. Hún sá til þess að börnin erfðu hennar ríku rétt- lætiskennd. Oft var glatt á hjalla í fjöl- skyldunni og alltaf var eitthvað framundan því þau Lísa og Gunnar voru einstaklega sam- hent og harðdugleg. Þau voru vinir vina sinna og bóngóð með afbrigðum. Það er meira en að segja það að ala og koma til manns sjö börnum. Síðan bættust við barnabörnin og svo barnabarna- börnin sem öll fengu ást Lísu og Gunnars. Allt frá fyrstu stundu með Lísu til hennar síðustu höfum við öll notið einstaklega hlýrrar nærveru hennar. Þó skammtíma- minnið væri farið undir lokin, þá breyttist í engu sú góðvild sem frá henni streymdi leynt og ljóst. Ég kveð elskulega tengda- móður mína með söknuði og djúpu þakklæti. Tryggvi Pálsson. Nú þegar sumarið er nær komið, snjórinn og veturinn um það bil að kveðja fyrir norðan á æskuslóðum Lísu, þá kveður elskuleg tengdamóðir mín Lovísa H. Björnsson þessa jarð- vist. Margar myndir koma upp í hugann. Lísa með fallega milda brosið og sína hæglátu og hlýju nærveru. Lísa að leggja kapal, ráða krossgátu, spila við barna- börnin, elda, taka á móti fólki, gefa smáfuglunum, sinna gróðr- inum, nýkomin frá Kanarí brún og sælleg, létt og snögg í hreyf- ingum. Lísa fæddist á Akureyri og ólst þar upp til 6 ára aldurs. Þá fór hún til sumardvalar í Svarf- aðardal til læknishjónanna Sig- urjóns og Sigríðar í Árgerði við Dalvík. Þegar sumri tók að halla vildi sú stutta ekki snúa aftur til Akureyrar og varð henni að ósk sinni. Sómahjónin tóku Lísu í fóstur og ólu hana upp sem sína eigin dóttur upp frá því, fyrir áttu þau fjögur börn. Lísu leið vel í Árgerði og alltaf minntist hún þess tíma með gleðiblik í augum. Hún flutti suður með fjölskyldunni á unglingsárum, tók próf frá Verslunarskólanum. Freistaði gæfunnar og hélt utan til Stokkhólms í nám. Þar hitti hún Gunnar sinn sem féll kylli- flatur fyrir þessari greindu, fal- legu og brosmildu konu með ljósa hárið. Þau giftu sig fljótlega og börnin urðu sjö. Samband þeirra var farsælt og ástríkt og samhentari hjónum hef ég varla kynnst. Lísa var mikið náttúrubarn. Eflaust hefur fjallasalurinn þar sem hún ólst upp átt sinn þátt í því. Unga konan Lísa ferðaðist mikið um landið, gekk um fjöll og firnindi, fór á staði sem ekki tíðkaðist að sækja á þeim tíma. Reið á hesti yfir Skeiðarárjökul til að komast í Skaftafell og gekk upp á Hvannadalshnúk. Seinna ferðuðust þau hjónin víða um há- lendið og Ísland allt og alltaf í stórum vinahópi. Þegar þau tóku að eldast og heimilishaldið varð léttara ferðuðust þau utanlands og allt þetta skrásetti Lísa með dagbókarbrotum og myndum. Lísa var barn síns tíma. Hennar starf var á heimilinu og sinnti hún húsmóðurstörfum og uppeldi barna sinna eins og best er hægt að gera. Á stóru barn- mörgu heimili er í mörgu að snú- ast en alltaf var rúm fyrir vini og vandamenn, allir ávallt velkomn- ir og gestrisni mikil, alltaf nægt pláss. Fyrir þremur áratugum hitti ég verðandi tengdaforeldra mína í fyrsta sinn í unaðsreitnum þeirra austur í sveit. Þar byggðu þau sér sumarhús sem fékk nafnið frá æskustöðvum Lísu, Árgerði. Ég held það sé óhætt að segja að þeim hjónum leið hvergi eins vel og fyrir austan. Þau dvöldu þar nær öllum stundum og aldrei var setið auðum hönd- um, græddu upp mela og móa á eyri við Brúará. Á vorin fylgdist Lísa með komu fuglanna í Ár- gerði, bauð þá velkomna. Suma þekkti hún frá fyrra ári og það gladdi hana. Í dag skrýða lauf- krónur trén í Árgerði. Árniður berst og sólin skín. Þröstur býr sér til hreiður, maríuerlan vapp- ar á pallinum, hrossagaukur hneggjar og lóan syngur sitt dirrindí. Spóinn vellir og jaðrak- an kvakar. Í fjarska heyrist rjúpa ropa, gæsir og álftir finna sér varpstað. Fuglakórinn syng- ur nú Lísu til heiðurs. Með þakk- læti kveð ég góða konu. Blessuð sé minning hennar. Olga Bergljót Þorleifsdóttir. Í stórri fjölskyldu sonar míns var Lísa síðustu áratugina al- mennt kölluð amma Lísa hvort sem barnabörn hennar áttu í hlut eða heimilisvinir. Ég kynntist Lísu snemma á unglingsárunum þegar ég vandi komur mínar á heimili þeirra hjóna. Heimilið var eitt það myndarlegasta sem við krakk- arnir úr hverfinu komum á og við komum þar mikið, því börn hjónanna voru stór systkinahóp- ur og vinmörg. Húsmóðirin tók vel á móti öllum skólakrökkun- um með sínu elskulega viðmóti og eðlislæga áhuga fyrir öllum ungu manneskjunum sem sóttu börnin hennar heim. Þetta vandaða fólk, Lísa og Gunnar, varð síðar tengdafor- eldrar mínir til fjölmargra ára og hafa ævinlega reynst vel bæði mér og barnabarni sínu, syni mínum. Þegar fram liðu stundir og unglingarnir í hverfinu urðu full- orðið fólk var sama þó leiðir víxl- uðust, aldrei lét Lísa trufla sig við að rækta góð tengsl við barnabörnin sín. Umhyggja, ást og mildi einkenndu samskipti hennar. Að því leyti eins og á svo margan annan hátt var hún góð fyrirmynd. Með hlýhug og þakklæti mun minning einstakrar konu lifa. Hvíl í friði. Öllum aðstandendum votta ég innilega samúð. Marta B. Helgadóttir. Mikil indæliskona er kvödd í dag. Lísa, amma barnanna minna, var glæsileg kona, glað- leg, létt á fæti og algjörlega laus við allt yfirlæti. Hún stjórnaði sínu heimilishaldi með dugnaði og útsjónarsemi. Margar minn- ingar fara í gegnum hugann á þessari kveðjustund, en fyrst og fremst er þar þakklæti og hlý- hugur í garð Lísu minnar. Ég votta systkinum Björns og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Minningin um góða og vandaða konu lifir með okkur öll- um. Guðrún Nanna Guðmundsdóttir. Elsku amma Lísa. Betri ömmu er ekki hægt að hugsa sér að eiga. Amma Lísa var alltaf brosandi, alltaf glöð og góð, hafði alltaf tíma til að hlusta og tók manni alltaf opnum örmum. Hún var mikið náttúrubarn og naut sín best í sumarbústaðnum á Eyrum eða í veiðikofanum aust- ur í Bakkaflóa. Á báða þessa staði fór ég ófáar ferðir með afa og ömmu, og þaðan á ég mínar bestu minningar um þau. Eitt sinn þegar ég var um 10 ára aldur fórum við amma að veiða í Draugafossi, því þar voru alltaf góðar líkur á að fá silung. Þar setti amma hins vegar fljót- lega í 10 punda lax og landaði honum eins og herforingi. Eftir það leit ég alltaf á ömmu sem mikinn veiðimann. Ég komst þó að því löngu síðar að hún var ekkert alltof hrifin af þessu veiðibrölti, hvað þá að troða maðkinum á öngulinn. En hún lét þetta allt líta mjög spennandi út fyrir lítinn gutta. Eitt sinn þegar lítið veiddist og veðrið allt- of gott, var ákveðið að fara í göngutúr upp með ánni, upp fyr- ir efsta veiðistaðinn Fálkafoss. Í þessari ferð var öllum veiðileg- um hyljum og fossum gefið nafn, og amma með sína krossgátu- reynslu var ekki í vandræðum með að finna öllum pollum pass- andi og falleg nöfn. Í þessari ferð tíndum við líka ógrynni af fjalla- grösum. Við fylltum heilar regn- buxur af fjallagrösum og hún sauð svo fyrir okkur fjallagra- samjólk þegar komið var í veiði- húsið. Þetta varð svo fastur liður í mörg ár á eftir, langt fram á fullorðinsár hjá mér – að hún eldaði fyrir mig sérstaklega fjallagrasamjólk þegar ég kom í heimsókn í Hvassaleitið og síðar á Austurströndina, enda var þessi réttur í miklu uppáhaldi hjá mér. Þegar ég var að rembast við að æfa skíði og fór síðar að brölta upp hin ýmsu fjöll, fór amma að segja mér sögur úr sinni æsku sem gerðu hana að mikilli hetju í mínum augum. Hún stundaði skíðamennsku með KR-ingum í Skálafelli eins og ég, nema að þetta var á þeim tíma að þau löbbuðu náttúrlega upp brekkurnar með skíðin á bakinu. Þetta þótti mér, ung- lingnum spilltum af þægindum nútímans, með ólíkindum að nokkur myndi nenna. En hún stundaði líka fjallamennsku. Á sínum unglingsárum fór hún meðal annars með öðrum KR- ingum í mikið ferðalag austur í Skaftafell, fóru á hestbaki yfir sandana og upp á skriðjökla á Suðurlandi til að losna við að fara yfir jökulárnar þar. Frá Skaftafelli löbbuðu þau síðan á Hvannadalshnúk á mettíma og borguðu fyrir gistinguna á Skaftafelli með því að hjálpa til með heyskapinn. Þetta þótti mér stórmerkilegt afrek fyrir unga stúlku á þessum tíma. Sögurnar hennar ömmu hafa oft verið mér hugleiknar þegar ég hef sjálfur verið að fara á fjöll í gegnum ár- in. Elsku amma, takk fyrir allt, hvíl í friði. Arnór Árnason. Ég er lánsöm að hafa átt hana ömmu Lísu að. Amma passaði sérlega vel upp á okkur barnabörnin alla tíð. Ég hafði alltaf á tilfinningunni að amma vildi helst verja tíma sín- um með okkur, sem er ákaflega dýrmæt tilfinning. Aldrei vorum við fyrir, né til trafala, amma gaf okkur verkefni við hæfi og fann öllum stað. Í jólaboðunum í gamla daga sat amma alltaf við krakkaborðið og spilaði við okkur grislingana og á ég margar hlýjar minningar um þær stundir. Kannski eiga þær minningar hlut í því að mér hefur aldrei fundist hún amma mín vera gömul, hún var félagi okkar krakkanna, einatt létt í skapi og ávallt var stutt í hlát- urinn. Amma lagði sig fram um að fylgjast vel með. Námsfram- vinda jafnt sem vinamál, ekkert var henni óviðkomandi og pass- aði hún jafnan upp á að það liði ekki of langur tími á milli spjall- stundanna okkar. Eftir að börnin mín fæddust fylgdist amma vel með þeim vaxa og þroskast. Hún vissi allt um þeirra áhugamál og skapgerð og kímdi oft yfir sam- skiptum þeirra á milli. Ég var einnig svo heppin að fá að búa hjá ömmu og afa með pabba mínum síðasta árið mitt í grunnskóla. Amma eldaði þá fyr- ir mig hafragraut á hverjum morgni og oft sátum við og skröfuðum saman yfir grautnum. Þau eru mörg heilræðin frá þess- um tíma sem ég hef reynt að til- einka mér og lifa eftir. Það er mér einna minnisstæðast að amma sagði aldrei styggðaryrði um nokkurn mann, þá væri nú betra að segja bara ekki neitt. Hlýjan og alúðin sem stafaði frá ömmu var leiðarljós allrar fjölskyldunnar. Því fann ég sér- staklega fyrir við andlát föður míns, þá stóð öll stórfjölskyldan saman og fyrir það er ég æv- inlega þakklát. Íris Björnsdóttir. Lovísa Hafberg Björnsson ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KÁRA SÖEBECK KRISTJÁNSSONAR, Miklubraut 64, Reykjavík. Aðalheiður Ísleifsdóttir, Kristín Káradóttir, Albert Sigtryggsson, Sigríður Káradóttir, Guðjón Guðmundsson, Tryggvi Kárason, Guðrún R. Rafnsdóttir, Trausti Kárason, Selma Rut Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengda- móðir og amma, UNNUR ERLA ATLADÓTTIR GEORGSSON, andaðist á sjúkrahúsi í Boca Raton, Flórída, að morgni miðvikudagsins 29. maí. Sverrir Ólafur Georgsson, Atli William Kendall, Holly Greif, Harry Robert Kendall, Diane Kendall og barnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR A. ÓLAFSSON málarameistari, Árskógum 8, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Foss- vogi þriðjudaginn 28. maí. Útförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 4. júní kl. 13.00. Gísli Örvar Ólafsson, Valgerður Björk Ólafsdóttir, Reynir Jóhannsson, Helga H. Ólafsd. Gustafsson, Roger Gustafsson, Hulda Sjöfn Ólafsdóttir, Ólafur Sturla Kristjánsson, Ólafur Örn Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐFINNA EYVINDARDÓTTIR, Stella, lést á sjúkrahúsi Vestmannaeyja þriðjudaginn 21. maí. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 1. júní kl. 14.00. Lilja Þorsteinsdóttir, Gylfi Sigurjónsson, Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Gunnar Björnsson, Elíza Þorsteinsdóttir, Geir Newman, barnabörn og barnabarnabörn. Skrifstofur eftirtalinna stofnana að Stórhöfða 27 & 31 verða lokaðar vegna útfarar Stefáns Ó. Guðmundssonar föstudaginn 31. maí frá kl 12. Ra�iðnaðarskólinn Fræðsluskrifstofa ra�iðnaðarins Ákvæðisvinnustofa ra�iðna Virk, ráðgjafar Stórhöfða 27 Ra�iðnaðarsamband Íslands Félag bókagerðarmanna MATVÍS Sta�ir, lífeyrissjóður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.