Morgunblaðið - 31.05.2013, Side 39

Morgunblaðið - 31.05.2013, Side 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 2013 Litríkur Egill -Nú kemur Egill Ólafsson fram á tónleikunum með ykkur. Af hverju valdir þú hann? „Ja, það var stungið upp á honum við mig, ég kynnti mér hans verk og hann virkaði áhugaverður. Hann á sér greinilega langa sögu í íslenskri tónlist, hefur leikhæfileika og er líf- legur á sviði. Hann virðist líka beita rödd sinni með fjölbreyttum hætti, ef marka má það sem ég hef hlustað á. Ég kann að meta menn sem bregða sér í hlutverk og eru ekki eintóna og alltaf eins, sama hvaða tónlist þeir eru að flytja. Mér líkar það þegar menn laga rödd sína að tónlistinni, finnst það mikilvægt. Ef frægur list- málari notaði bara rauðan, bláan og grænan yrði það dálítið leiðigjarnt. Þú átt marga valkosti, fjölda lita sem þú getur tjáð með röddinni,“ segir Anderson. Það sama eigi við um þverflautuna, þegar hann leiki á hana reyni hann að kalla fram hin ýmsu lit- brigði. -Þekkir þú til Þursaflokksins, proggrokksveitar Egils? „Ég hef hlustað á tónlistina þeirra og við spilum eitt lag eftir þá, lag sem hann kallar „Brúðkaupslagið“,“ segir Anderson og á þar væntanlega við „Brúðkaupsvísur“. „Ég reyni ekki að bera fram íslensk nöfn,“ seg- ir Anderson og hlær. Flautuleikarar á öðrum fæti -Að lokum, af hverju leikurðu á flautuna á öðrum fæti? „Það hófst reyndar í febrúar 1968 í Marquee-klúbbnum. Ég var að leika á munnhörpu þar sem þetta var blús- sveit þá. Ég var þá nýbyrjaður að leika á þverflautu, um tveimur mán- uðum fyrr, lék á hana í nokkrum lög- um en líka á harmónikku. Þegar mað- ur leikur blús á harmónikku beygir maður nótuna með því að soga að sér loft í stað þess að blása og ég lyfti öðr- um fæti upp ósjálfrátt, stóð eiginlega á öðrum fæti með hljóðnemann og harmónikkuna í höndunum. Fólk tók eftir þessu og einnig því að ég lék á þverflautu í öðrum lögum. Það fyrsta sem skrifað var um tónleika Jethro Tull í Marquee í Lundúnum, í tónlist- ardálkum dagblaða þess tíma, var að söngvarinn léki á þverflautu og stæði á öðrum fæti. Og það var þannig séð rétt þó ég hafi ekki staðið á öðrum fæti þegar ég lék á þverflautuna. En ég varð að læra að gera það því fólk bjóst við því að sjá það á tónleikum,“ segir Anderson og hlær. Þessi staða hafi orðið að eins konar vörumerki hljómsveitarinnar og mörgum árum síðar hafi hann komist að því að fleiri flautuleikara sem standa á öðrum fæti væri að finna í heimssögunni, m.a. í hindúatrú þar sem guðinn Krishna leikur á þverflautu á öðrum fæti til að draga á tálar ungar smala- stúlkur og í ævintýrinu um rottufang- arann frá Hamlin, þann sem lokkaði börn bæjarbúa út úr bænum með fögrum flautuleik. Þá megi fleiri dæmi finna í trúarbrögðum, m.a. hjá indíánum Suður-Ameríku. Engin Grammy-verðlaun „Ég held þetta hafi eitthvað með jafnvægi að gera, það er eitthvað glaðlegt við það að leika á þverflautu með því að halda jafnvægi á öðrum fæti,“ segir Anderson um jafnvæg- islistina góðu sem hann hefur stund- að í áratugi. Einhverra hluta vegna sé þessi staða tengd flautunni frekar en öðrum hljóðfærum, hann viti í það minnsta ekki um gítar- eða kontra- bassaleikara sem leiki á öðrum fæti. „Að því er ég best veit er ég eini nú- lifandi maðurinn sem leikur á þver- flautu á öðrum fæti. En það eru ekki veitt Grammy-verðlaun fyrir besta þverflautuleik á öðrum fæti, ef svo væri hlyti ég þau á hverju ári,“ segir Anderson kíminn og bætir því við að lokum að hann hlakki mikið til Ís- landsfararinnar. Hann sé einlægur aðdáandi lands og þjóðar. bragðið glatist. „Vakning hefur hins vegar orðið meðal heimamanna um að glata ekki þessari kunnáttu,“ segir Íris Ólöf og tekur fram að í þessum fyrsta hluta sýningarinnar megi sjá ýmsa list- muni kvenna. Þess má geta að í tengslum við sýninguna verður boðið upp á stutt námskeið í annars vegar perlusaumi og hins vegar trommugerð síðar í sumar. „Í þriðja hlutanum er fjallað um barnamenningu í Ittoqqortoormiit, s.s. listmenntir og handverk barna, leiki og störf,“ segir Íris Ólöf og tekur fram að líkt og gildi um störf kvenna þá hafi leikir barna breyst með breyttu samfélagi. „Í dag er enginn munur á leikjum grænlenskra og ís- lenskra barna, en fyrr á tímum end- urspegluðu barnaleikir grænlenskra barna veiðimannasamfélagið með sama hætti og leikir íslenskra barna tóku mið af bændasamfélaginu,“ seg- ir Íris Ólöf. Eins og fyrr segir er sýningin far- andsýning og til þess að auðvelda flutning hennar milli landa er sýning- unni komið fyrir í þremur koffortum eða boxum sem rúma hvert um sig eitt þriggja þema sýningarinnar. „Sýningin í heild er síðan römmuð inn af fjölda portrettljósmynda sem hollenski ljósmyndarinn og líffræð- ingurinn Ko de Korte tók af nokkrum íbúum í Ittoqqortoormiit á árunum 1973-1975. Myndirnar skapa réttu stemninguna fyrir sýninguna. Á sýn- ingunni má einnig lesa viðtöl sem ég hef tekið við átta konur sem búa í bænum í dag, bæði ungar og eldri, þar á meðal nokkrar sem myndaðar voru af Ko de Korte á sínum tíma. Í viðtölunum segja þær frá lífi sínu, löngunum og þrám,“ segir Íris Ólöf. Þess má að lokum geta að þó sýn- ingin sjálf verði til sýnis í Byggða- safninu Hvoli fer opnun sýning- arinnar fram í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík nk. sunnudag kl. 14. Þar verða einnig til sýnis munir frá Grænlandi, m.a. túpílakkar og hunda- sleði í öllu sínu veldi ásamt brúðum í viðeigandi klæðnaði. Á opnunardag- skránni koma fram grænlenskir lista- menn, þ.e. söngvari og trommari, auk þess sem tíu grænlensk börn frá It- toqqortoormiit munu dansa og syngja. Gestum verður boðið að smakka grænlenskan mat. Ljósmynd/Völundur Jónsson Grímur Íris Ólöf Sigurjónsdóttir er sýningarstjóri og forstöðumaður á Hvoli. 31.05.13 Fös. kl. 20:00 ÖRFÁ SÆTI Silfurberg 01.06.13 Lau. kl. 20:00 ÖRFÁ SÆTI Silfurberg 08.06.13 Lau. kl. 20:00 ÖRFÁ SÆTI Norðurljós Mary Poppins (Stóra sviðið) Fös 31/5 kl. 19:00 Lau 8/6 kl. 19:00 Fös 13/9 kl. 19:00 ný sýn. Lau 1/6 kl. 13:00 Sun 9/6 kl. 13:00 Lau 14/9 kl. 19:00 ný sýn. Sun 2/6 kl. 13:00 aukas Fös 6/9 kl. 19:00 ný sýn. Sun 15/9 kl. 15:00 ný sýn. Mið 5/6 kl. 19:00 aukas Lau 7/9 kl. 19:00 ný sýn. Fim 19/9 kl. 19:00 ný sýn. Fim 6/6 kl. 19:00 Sun 8/9 kl. 15:00 ný sýn. Fös 20/9 kl. 19:00 ný sýn. Fös 7/6 kl. 19:00 Fim 12/9 kl. 19:00 ný sýn. Lau 21/9 kl. 19:00 ný sýn. Einn vinsælasti söngleikur heims, loks á Íslandi. Nýjar sýningar komnar í sölu! Gullregn (Stóra sviðið) Þri 11/6 kl. 20:00 aukas. Fim 13/6 kl. 20:00 Lau 15/6 kl. 20:00 lokas Mið 12/6 kl. 20:00 Fös 14/6 kl. 20:00 Frumraun Ragnars Bragasonar í leikhúsi. Allra síðustu sýningar. Mýs og menn (Stóra sviðið) Sun 9/6 kl. 20:00 lokas Meistaraverkið eftir John Steinbeck. Núna! (Litla sviðið) Þri 4/6 kl. 20:00 lokas Þrjú ný íslensk verk eftir ung og öflug leikskáld í einni sýningu. Circus Cirkör: Wear it like a crown (Stóra sviðið) Fim 4/7 kl. 20:00 Lau 6/7 kl. 20:00 Mán 8/7 kl. 20:00 Fös 5/7 kl. 20:00 Sun 7/7 kl. 20:00 Þri 9/7 kl. 20:00 Í samstarfi við Norræna húsið. Meginsýning Volcano sirkushátíðarinnar. Tengdó (Litla sviðið) Fös 31/5 kl. 20:00 Sun 2/6 kl. 20:00 Lau 1/6 kl. 20:00 Fös 7/6 kl. 20:00 lokas Grímusýning síðasta leikárs. Allra síðustu sýningar. Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Tengdó – HHHHH – EB, Fbl Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR Englar alheimsins (Stóra sviðið) Fös 31/5 kl. 19:30 Fös 7/6 kl. 19:30 Fim 13/6 kl. 19:30 Lau 1/6 kl. 19:30 Lau 8/6 kl. 19:30 Fös 14/6 kl. 19:30 Sun 2/6 kl. 19:30 Sun 9/6 kl. 19:30 Lau 15/6 kl. 19:30 "Fullkomin útfærsla á skáldsögunni" SÁS Fréttablaðið Kvennafræðarinn (Kassinn) Fös 31/5 kl. 19:30 Fim 6/6 kl. 19:30 Lau 1/6 kl. 19:30 Lau 8/6 kl. 19:30 Brjálæðislega góð sýning! Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið) Sun 2/6 kl. 14:00 Sun 9/6 kl. 14:00 Lokas. Síðustu sýningar! Karíus og Baktus (Kúlan) Lau 1/6 kl. 13:30 Lau 8/6 kl. 13:30 Lau 1/6 kl. 15:00 Lau 8/6 kl. 15:00 Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka! Patch Adams - fyrirlestur (Stóra sviðið) Fim 6/6 kl. 19:30

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.