Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Qupperneq 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.5. 2013 Ferðalög og flakk E ftir þriggja vikna vinnu í Hanoi var ferðinni heitið á vit ævintýra í Kína. Í för með mér var Hongye, kín- verskur skólafélagi minn sem átti heldur betur eftir að reynast mér vel. Flogið var til Hangzhou og þar sem ætlunin var að fara í sveitirnar að taka viðtöl við bændur var tekin rúta yfir í lítið te-hérað sem heitir Songyang (lítið á kínverskan mæli- kvarða en íbúafjöldinn þarna er samt meiri en á öllu Íslandi). Margir heyrt um íslensku kreppuna Þar hittum við fyrir fjölskyldu- meðlimi Hongye sem sáu til þess að okkur skorti ekki neitt, gestrisn- in var til fyrirmyndar og allir til- búnir að hjálpa. Þökk sé Hongye þá fékk ég að upplifa hvernig venjulegu kínversku fjölskyldulífi er háttað. Mest samskipti átti ég við fólkið í kringum matarborðið þar sem það var ávallt nóg í boði. Það er siður í Kína að bjóða ávallt upp á meiri mat en hægt er að klára til að sýna fram á að fjöl- skyldan lifi ekki við skort, og í raun ef þú klárar allan matinn þá ert þú að segja að þú hafir ekki fengið nóg. Þar sem ég tala mjög takmarkaða kínversku þá var Hon- gye dugleg að túlka fyrir mig, fólk- ið var forvitið að vita hvað þessi ljóshærði strákur frá Íslandi væri að vilja til Kína. Það var athygl- isvert að margir höfðu heyrt fréttir um íslensku efnahagskreppuna og margir vissu að Ísland byggi yfir gríðarlegri náttúrufegurð, en um leið og ég sagði þeim hversu margi búa á Íslandi þá hlógu þeir. Að það væru ekki nema rúmlega 300.000 manns sem búa þarna var nokkuð sem þeir áttu erfitt með að skilja. Vildu vera á mynd með þessum ljóshærða Eftir viðtöl við bændur og fjöl- skylduheimsókn fórum við á slóðir forfeðra Hongye, upp í fjöllin sem liggja í kringum Songyang, mikil náttúrufegurð þar og var þetta með eindæmum skemmtilegt. Við heimsóttum musteri sem er á toppi eins fjallsins þar sem forfeður Hon- gye höfðust við fyrir mörg hundruð árum (eða á Qing-tímanum, 1644- 1911). Á leið niður fjalllendið var stoppað í grunnskóla þar sem við heimsóttum unga nemendur og fengum að skoða hvernig aðstæður þeirra eru. Það vakti undrun og forvitni flestra að sjá ljóshærðan Evrópubúa mæta í skólann þeirra og þegar ég bað um að fá mynd með þeim komu þau öll hlaupandi og vildu ekki missa af því. Allra huguðustu nemendurnir komu og reyndu að spjalla við mig á tak- markaðri ensku sem þau höfðu lært. Shanghai vestræn eða kínversk? Næst var haldið til Shanghai, vest- rænustu borgar Kína, eins og margir kalla hana. Ég get tekið undir það að hluta til, þegar maður er innan um öll háhýsin og hávað- ann af götunum þá leið mér eins og ég væri kominn í rosalega stórt Kínahverfi í New York. Það er hægt að skipta borginni nánast í tvennt. Annarsvegar gamla Shanghai sem nær yfir stóran hluta borgarinnar, þar er að finna mikið af hefðbundnum kínverskum KÍNAFERÐ Innsýn í kínverskt heimilislíf DAVÍÐ ELLERTSSON GERÐI VÍÐREIST Í FYRRA OG HEIMSÓTTI BÆÐI VÍETNAM OG KÍNA. HANN HEFUR ÁDUR LÝST FERÐ SINNI UM VÍETNAM Á ÞESSUM SÍÐUM. NÚ SEGIR HANN LESENDUM FRÁ REYNSLU SINNI AF KÍNA. Fáir ganga Kínamúrinn allan og Davíð komst að því að hlutar hans eru erfiðir yfirferðar og brattir. Í bleytu þarf að hafa sig allan við því undirlagið verður sleipt. Esjubrauð Hollustubrauð sem inniheldur m.a. íslenska repjuolíu, repjuhrat sem og íslenskt bygg - enginn sykur Ríkt af Omega 3 Góð brauð – betri heilsa Opið: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00 laugardaga frá 6:00 til 17:00 sunnudaga frá 7:00 til 17:00 Lengri opnunartími á Dalveginum Dalvegi 4 - 201 Kópavogur Hamraborg 14 - 200 Kópavogur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.