Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Blaðsíða 16
*Kína er heimur út af fyrir sig og Kínamúrinn er brattari en margur gæti talið »18Ferðalög og flakk
Elsku mamma.
Vorið entist bara í tvo daga og nú er sumarið kom-
ið til Madrídar. Hver vill vinna þegar sólin skín?
Ekki nema von að Íslendingar komi svona miklu í
verk …
Það er spurning hvort ég eigi að syngja fleiri skala
á meðan Leó hendir geisladiskum úr hillum niður á
gólf og Eva teiknar, eða hvort ég sýni miskunn og
fari með þau út í garð að byggja sandkastala þangað
til Javi kemur heim og skellir í paellu.
Vildi að þú værir hjá okkur!
Knús, þín Gunna. Fjölskyldan; Javier og Guðrún með börnin sín Evu og Leó.
Guðrún Ólafs-
dóttir messó-
sópransöngkona
og eiginmaður
hennar, klassíski
gítarleikarinn
Francisco Javier
Jáuregui Narvá-
ez, búa í Madríd
á Spáni.
Skalar og paella
Sumarið er
komið í
Madríd.
PÓSTKORT F
RÁ MADRÍD
S
víþjóð og þá sérstaklega Stokkhólmur hefur
notið sívaxandi vinsælda sem áfangastaður
meðal íslenskra ferðamanna. Fallegu hólm-
arnir og grænu svæðin, miðaldabærinn
Gamla stan, listasöfn, sænska þjóðarsafnið og nú
bráðlega – Abbasafn.
Það þarf engan að undra að heilt safn sé tileinkað
þessari vinsælu hljómsveit en 7. maí munu herleg-
heitin líta dagsins ljós. Abba er ein þekktasta afurð
Svíþjóðar – hljómsveit sem allir þekkja – líka yngri
kynslóðir og þá ekki síst vegna kvikmyndarinnar
Mamma mia! sem var einnig sýnd í víðfrægri „sing-
along“ eða „syngdu með“ útgáfu.
Á safninu mun meðal annars verða hægt að sjá
hina ýmsu skrautlegu búninga sem hægt er að hlæja
að í dag en þóttu að sjálfsögðu það smartasta í bæn-
um á 8. áratugnum.
Safnið verður hluti af Swedish Music Hall of Fame
og verður staðsett við Djurgården. Lýsingin á því
sem koma skal hljómar afar spennandi en gestir
safnsins munu geta klætt sig í „sýndarútgáfu“ þess
fatnaðar sem hljómsveitarmeðlimir klæddust, þóst
vera í hljómsveitinni með hjálp sýndarveruleika og
fengið að hljóðblanda Abba-lög eftir eigin smekk, svo
eitthvað sé nefnt. Þá er boðið upp á sögulega yf-
irferð þess ævintýris sem hófst með sigri Abba í Eu-
rovison árið 1974 þar sem hápunktum ferilsins eru
gerð góð skil.
Abba var þó stofnuð tveimur árum áður en hún
kom sér á heimskortið með Eurovision-lagi sínu Wa-
terloo. Þau lög sem hljóma á safninu verða að sjálf-
sögðu helstu smellir sem og þau minna þekktu. Með
Mamma Mia, Money, Money, Money og Dancing
Queen fremst í flokki.
Þrátt fyrir að hljómsveitarmeðlimir hafi fyrir
löngu lýst því yfir að þeir muni ekki koma saman á
ný er Björn Ulvaeus búinn að hafa hönd í bagga með
uppbyggingu safnsins og hefur séð til þess að ekkert
vanti upp á til að Abbasafnið muni endurspegla sem
best hina raunverulegu sögu hljómsveitarinnar. Þess
má geta að Björn Ulvaeus aðstoðaði leikstjóra
Mamma Mia! einnig við gerð kvikmyndarinnar á sín-
um tíma.AFP
ABBASAFN OPNAÐ Í STOKKHÓLMI
Safn tileinkað Abba
HEILT SAFN TILEINKAÐ HLJÓMSVEITINNI
ER ORÐIÐ AÐ VERULEIKA Í STOKKHÓLMI.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is