Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.5. 2013
Heimili og hönnun
Húsið er ekki nema 100 fermetrar og allt pláss nýtt vel. Hér er Snorri við tölv-
una í skoti sínu. Í hillum og inni í veggjum er að finna ógrynni af alls kyns tónlist.
Aðalstræti 34 – Davíðsbær. Húsið var í niðurníðslu þegar Snorri og Kristjana eignuðust það fyrir 15 árum en þau hafa
lagt mikla vinnu í breytingar. Snorri segir þau hafa viljað láta húsið „eldast á ný“ og óhætt að segja að vel hafi tekist til.
Þegar Snorri varð sextugur um daginn fékk hann pensilslampann að gjöf frá
Þorleifi Jóhannssyni smið. Þeir leika saman í hljómsveitinni Einn og sjötíu.
Safn Snorra af skosku single-malt viskíi losar 150 tegundir. Í efstu hillu eru
flöskur frá eyjunni Islay, í næstu vín sem hafa fengið mjög góðar einkunnir hjá
sérfræðingum og uppi á skápnum eðalflöskur. Neðst í skápnum er „allt hitt“...
Eldhúsborðið og stólarnir voru á sín-
um tíma á veitingastaðnum Ráðhús-
kaffi í miðbæ Akureyrar. Þegar hann
lagði upp laupana keypti Snorri hús-
gögnin, sem eru dönsk. Borðið er
hægt að lengja á tvær hliðar. Snorri
reif allt í tætlur, eins og hann orðar
það, pússaði upp, bæsaði og marglakk-
aði. Lagði mikla vinnu í að gera hús-
gögnin sem flottust. Áklæði á stólana
pöntuðu hjónin frá Svíþjóð.
HÚSGAGNAHÖLLIN • B í ld shöfða 20 • Reyk jav í k • s ím i 558 1100 OPIÐ Vi rka daga 10-18 , l augard . 11 -17 og sunnud . 13-17
69.990
FULLTVERÐ: 79.990
HAVANA
HÆGINDASTÓLL
Orange, hvítt
eða grátt áklæði
169.990
FULLTVERÐ: 199.990
GAGA
HÆGINDASTÓLL GAGA hægindastóll
með snúning
GAGA hliðarborð kr. 99.990