Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Síða 24
Hrefna Björg Tryggvadóttir og maður hennar Gunnar Þorfinnsson, hanna fallegar vörur fyrir heimilið undir heitinu Mosi, á vegg sést kría úr þeirra smiðju og kertahringir í bakgrunni.
Morgunblaðið/Rósa Braga
VEGGLÍMMIÐAR OG SKRAUTMUNIR
Kríur sem steypa sér af veggnum
HREFNA BJÖRG TRYGGVADÓTTIR OG GUNNAR ÞORFINNSSON HANNA
FALLEGA VEGGLÍMMIÐA FYRIR HEIMILIÐ UNDIR NAFNINU MOSI.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
M
osi er lítið hönnunarteymi sem rekið
er af Hrefnu Björg Tryggvadóttur og
Gunnari Þorfinnssyni. Gunnar er
byggingarfræðingur og sér um
tæknilegar hliðar
fyrirtækisins en
Hrefna Björg hefur
lært listgreinar í Dan-
mörku og sér um hönnun
og útlit.
„Við höfðum lengi gengið
með þessa hugmynd í mag-
anum en við höfum bæði
áhuga á fallegri hönnun og
þræðum gjarnan hönnunarsýn-
ingar. Svo má segja að stóra
systir mín hafi gefið mér spark í
rassinn og hvatt okkur til að
láta slag standa sem við og
gerðum,“ segir Hrefna
Björg. Þau byrjuðu á að
hanna þrjár vörur
undir heitinu Mosi
sem voru mismun-
andi vegglímmiðar. Einn í formi Íslands, annar
kvöldbæn og loks kríur þrjár sem líkt og steypa
sér niður af veggnum. Segir Hrefna Björg þessar
vörur enn vera þær vinsælustu hjá fyrirtækinu en
kvöldbænin hefur verið vinsæl í sængur- og
skírnargjafir þó hún henti að sjálfsögðu fólki á
öllum aldri.
Með verkstæði í bílskúr foreldranna
„Mig langaði til að búa til hönnunarvörur í fal-
legum umbúðum og skapa fallega umgjörð utan
þær. Eins þótti mér mikilvægt að koma þeim
inn í hönnunarverslanir til að auðvelt væri að
nálgast þær og að verðið væri gott þannig að
vörurnar gætu verið tilvalin tækifærisgjöf. Lím-
miðarnir eru t.d. skemmtileg leið til að fegra
heimilið fyrir lítinn pening. Þeir eru líka léttir og
því gott að senda þá sem gjafir til útlanda,“ segir
Hrefna Björg. Nafnið Mosi er jú eins íslenskt og
hugsast getur og segir Hrefna Björg það til-
komið af þeim sterku tengslum sem blundi í
flestum ef ekki öllum Íslendingum. Hún segir
ætíð nóg af hugmyndum í kollinum og vinnur
hönnunarteymið Mosi nú að þremur nýjum
vörum fyrir heimilið sem koma á markað fyrir
jól. Þau Hrefna Björg og Gunnar vinna vör-
urnar sjálf frá grunni og eru svo heppin að
fá að vera með verkstæði í bílskúrnum hjá
foreldrum Hrefnu Bjargar.
„Manni þykir enn vænna um vöruna þegar
maður býr hana til alveg frá a til ö og það
eykur drifkraftinn þegar við fáum jákvæð
viðbrögð frá viðskiptavinum,“ segir Hrefna
Björg og bætir við að þau hafi einnig unnið sérpant-
anir fyrir fólk. Hrefna Björg segir að sér finnist mark-
aður fyrir hönnun á Íslandi vera að blómstra og sé
Hönnunarmars t.a.m. frábær vettvangur fyrir hönnuði.
„Ég held að það sé auðveldara að koma vöru á
framfæri nú en fyrir nokkrum árum. Fólk er orðið
opnara fyrir einhverju nýju og skilur meira hvað hönn-
un snýst um,“ segir Hrefna Björg.
* Límmið-arnir erut.d. skemmtileg
leið til að fegra
heimilið fyrir
lítinn pening.
*Heimili og hönnunBorð og stólar frá Ráðhúskaffi á Akureyri sinna nú hlutverki sínu í heimahúsi í Innbænum »26