Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.5. 2013
Græjur og tækni
N
ý könnun sem grein-
ingarfyrirtækið Harris
Interactive gerði á
meðal framámanna í
tæknigeiranum sýnir að margir
horfa til nettengdra heimilistækja,
eða svokallaðra M2M (Machine-to-
machine) samskipta, sem næstu
bylgju í tækniheiminum. Alls voru
rúmlega 750 stjórnendur tæknifyr-
irtækja í Bandaríkjunum, Bret-
landi, Þýskalandi, Kína, Indlandi
og Brasilíu spurðir hvað framtíðin
bæri í skauti sér. Framtíðarsýn
þeirra er sú að tæki tala hvert
við annað til þess að safna upplýs-
ingum, spá um hegðun og bjóða
upp á sérsniðnar lausnir. Á ensku
er tíðum talað um The Internet of
Things í þessu sambandi, eða int-
ernet hlutanna.
24 milljarðar nettengdra
tækja árið 2020
Alls er gert ráð fyrir að 24 millj-
arðar tækja verði nettengdir árið
2020. Þegar á þessu ári verða
snjallsímar og spjaldtölvur fleiri
en jarðarbúar og gert er ráð fyrir
að gagnamagn sem skapað verði á
árinu nemi að lágmarki 4 millj-
örðum terabæta. Með aukinni
söfnun upplýsinga um notenda-
hegðun og staðsetningar upplýs-
ingar, gagnavinnslu í skýinu og
bættum tengihraða (4G) má búast
við að við verðum fljótlega vör við
sífellt meiri áherslu tæknifyr-
irtækja á að bjóða upp á sér-
sniðnar lausnir fyrir fólk miðað
við stund og stað.
Nettengd heimilistæki
Við höfum þegar dæmi um snjalla
hitastilla á borð við Nest, sem
lærir inn á notkun þína og stillir
hitastigið á heimilinu miðað við
upplýsingar sem það safnar um
þig, verðurfar og tíma dagsins.
Þannig vaknarðu alltaf við kjör-
hitastig, en dregur úr orkunotkun
á meðan þú sefur eða ert að
heiman. Það er nú þegar hægt að
fá nettengda ísskápa sem geta
sent þér upplýsingar um það sem
í þeim má finna, sem getur komið
sér ágætlega þegar þarf að
ákveða hvað á að vera í matinn.
Og hversu þægilegt væri það ef
brauðristin og kaffikannan gætu
talað við vekjaraklukkuna í síman-
um þínum og vissu hvenær ætti
að byrja að undirbúa morgunmat-
inn?
Bætt umferðarmenning með
nettengdum ökutækjum
Margir binda miklar vonir við að
bæta megi umferðarmenningu og
minnka mengun með því að net-
tengja ökutæki. Það kynni að
spara töluverðan tíma að hafa
upplýsingar um umferð og ástand
vega þegar lagt er af stað í vinn-
una, eða ef þú þyrftir aldrei fram-
ar að leita að lausu stæði. Eða
ímyndum okkur bíl sem talar við
umferðarljós og stillir ökuhraðann
í samræmi við þau. Eða snjöll
umferðarljós sem dreifa álagi á
gatnamót í samræmi við umferð.
Borgarskipulag er einn fjöl-
margra þátta sem munu í aukn-
um mæli taka mið af því gíf-
urlega upplýsingamagni sem við
erum að skapa.
Baðvogin á netið
Heilbrigðisgeirinn mun gera slíkt
hið sama. Nú er hægt að fá
baðvog sem safnar upplýsingum
um þyngd þína, og hægt er að
tengja þær upplýsingar við smá-
forrit þar sem þú getur
skráð næringarinntöku
(og án efa verður búið að
tengja ísskápinn við þetta
með einhverjum hætti innan
tíðar). Margir sjá fyrir sér
ýmiskonar skynjara sem greina
upplýsingar um hjartslátt, eða
fylgjast með samsetningu blóðsins
og greina fyrstu merki sjúkdóma
og sýkinga. Það er ómögulegt að
segja fyrir um hvernig sú tækni
mun líta út, en það má búast við
að tækni sem byggist á gríðarlegu
magni heilsufarsupplýsinga og
sjúkrasögu verði í auknum mæli
hluti af forvirkri heilbrigðisþjón-
usta innan fárra ára.
En nettengd tæki eru ekki ein-
ungis okkur til hægðarauka (sem
er reyndar álitamál) heldur sjá
framleiðendur sér einnig tals-
verðan hag í að safna upplýs-
ingum um notkun vörunnar. Iðu-
lega senda símar og tölvur, og
þau forrit sem við notum í þeim,
upplýsingar um það hvernig við
notum þau til framleiðenda sinna.
Þessar upplýsingar eru svo not-
aðar til að meta hvernig er hægt
að bæta vöruna enn frekar. Lík-
legt er að slíkar notendaupplýs-
ingar eigi eftir að stýra þróun
margra tækja í framtíðinni, allt
frá brauðristum til bíla.
Það er í öllu falli ljóst að áhugi
framleiðenda á að nettengja vörur
sínar er mikill. Internet hlutanna
mun vænanlega verða næsta bylt-
ing netsins.
AFP
NÆSTA NETBYLTING
Internet allra hluta
ÞAÐ ER SAMDÓMA ÁLIT FLESTRA SEM TIL ÞEKKJA AÐ INTERNETIÐ SÉ ENGIN BÓLA, HELDUR KOMIÐ TIL AÐ VERA. EN INTERNET NÁNUSTU
FRAMTÍÐAR VERÐUR EKKI BARA Í TÖLVUNNI ÞINNI OG SÍMANUM. LÍKLEGRA ER AÐ MEIRA OG MINNA ALLIR HLUTIR VERÐI NETTENGDIR.
Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com
* Nettengd tæki eru ekkieinungis til hægðarauka(sem er reyndar álitamál) heldur
sjá framleiðendur sér einnig tals-
verðan hag í að safna upplýs-
ingum um notkun vörunnar.
Brauðrist sem veit hvenær
við stillum vekjaraklukk-
una á morgnana kæmi ef-
laust í góðar þarfir.
Morgunblaðið/Golli
Þótt þessi ísskápur sé ekki nettengdur kemur
hann í góðar þarfir sem græjuskápur.
Með nettengdum
bílum er hægt
að forðast
rauð ljós.