Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Blaðsíða 40
Einkunnarorð Cintamani eru lífsgleði, hugrekki og gæði og eruvörurnar í þeim anda. Þó svo að Cintamani sé fyrst og fremstútivistarmerki fyrir alla aldurshópa þá er um leið um að ræðatískufatnað með sérstaka eiginleika. Í dag eru útivistarflíkur
með tæknilega eiginleika farnar að færast nær og nær tískunni og er
orðatiltækið „Functional Fashion“ oft notað í þessu samhengi. Cintam-
ani-línunni er skipt upp eftir lögum en hugmyndin er sú að hleypa svit-
anum sem fyrst frá líkamanum og út í gegnum lögin. Þannig helst lík-
aminn þurr sem er mikilvægt til að halda hita.
Íslensk sumarföt
LÍKT OG LANDSMENN HAFA REYNT Á EIGIN SKINNI UNDANFARNA DAGA
ER EKKI ALVEG KOMIÐ SUMAR OG ER BEST AÐ TREYSTA EKKI OF MIKIÐ Á
VEÐRIÐ. VEÐRIÐ GETUR VERIÐ HRÁSLAGALEGT YFIR SUMARTÍMANN LÍKA
OG ÞÁ ER GOTT AÐ GETA VERIÐ Í SUMARLEGUM FÖTUM EN ÞÓ HLÝJUM.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Tæknilegir eiginleikar tísku
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.5. 2013
Föt og fylgihlutir
Margir Íslendingar kannast við versluninaIndiska af Strikinu í Kaupmannahöfn.Þessi sænska verslanakeðja mun opnaverslun hérlendis í Kringlunni 8. maí
næstkomandi. Vöruúrvalið verður hið sama og kaup-
glaðir íslenskir fagurkerar kannast við en í verslun-
inni verður til sölu húsbúnaður, fatnaður og skart-
gripir, húsgögn og skandinavísk hönnun innblásin af
indversku handverki. Indversku áhrifin skila sér ein-
mitt í litadýrð, mynstrum og áferð sem er einkenn-
andi fyrir vörurnar frá Indiska og gerir þær skemmti-
lega framandi og fallegar.
Auk þess að bjóða fallegar vörur fyrir heimilið og
fatnað er Indiska einnig þekkt fyrir að vera meðvitað
og ábyrgt fyrirtæki, bæði gagnvart heiminum sem við
búum í og viðskiptavinum. Þannig hefur þátttaka og
skuldbinding í félagslegum og umhverfisvænum verk-
efnum ætíð verið í brennidepli hjá fyrirtækinu. Ind-
iska hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá árinu
1951 og rekur nú níutíu verslanir víðsvegar um
heim. Það er vert að líta í Kringluna í næstu viku og
kíkja á fallega vor- og sumarlínu Indiska og nú mun
styttra að fara en á Strikið eða til annarra nágranna-
borga!
INDISKA Á ÍSLANDI
Fatnaður og munir
fyrir heimilið
Sumar-
legur kjóll
frá Ind-
iska.
Klassískur og smart fatnaður úr smiðju Indiska.
* Indversku áhrifin skilasér í litadýrð, mynstrumog áferð sem er einkennandi
fyrir vörurnar frá Indiska.
Ný sumarlína 66°Norður er súfyrsta sem fyrirtækið setur ámarkað en með línunni kem-ur fyrirtækið til móts við
þarfir þeirra sem vilja stunda útivist og lík-
amsrækt allan ársins hring óháð veðri. Lín-
an er sérstaklega hönnuð með íslenskt
sumar í huga og samanstendur því af úrvali
af fjölnotafatnaði úr hágæðaefnum. Meðal
skemmtilegra sumarnýjunga má nefna
Kára og Esju. Kári er vind- og vatnsheldur
jakki, sem vegur aðeins 130 grömm, og
Esjubuxurnar má nota bæði til að slæpast í
bænum og líka til að príla upp á sjálfa Esj-
una.
„Við hjá 66°Norður vitum að það skipt-
ir miklu máli fyrir þá sem eru virkir í úti-
vistardeildinni að þeir geti notað útivist-
arfötin sín allt árið. Það er þessi fjölnota-
eiginleiki sem skapar línunni sérstöðu,“
segir Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri
66°Norður.
Hönnunarfyrirtækið Farmers Mark-et hóf nýlega samstarf við hinnþekkta breska textílframleiðandaBritish Millerain, en fyrstu afurðir
samstarfsins voru kynntar á Reykjavík Fas-
hion Festival á dögunum.
Nýju vaxjakkarnir frá Farmers Market
fengu nafnið „Skútustaðir“ og eru væntanlegir
í verslanir í júní en þá kemur „unisex“ jakki
með hettu og dömuslá sem er einskonar
bræðingur af jakka og ponsjói. Hönnuður
„Skútustaðir“ vaxjakkanna er Bergþóra
Guðnadóttir.
British Millerain hóf að þrófa endingargóð
vatnsvarin efni fyrir sjómenn árið 1880. Í dag,
eru þeir enn í fremstu röð og eru sérstaklega
þekktir fyrir framleiðslu sína á vaxbornum
bómullarefnum fyrir útivist, m.a. fyrir fyrir-
tæki eins og Barbour, Belstaff og Timberland
Vaxjakkar í sumar
Útivist óháð veðri og vindum