Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Blaðsíða 42
*Fjármál heimilannaNeytandi vikunnar segir sína fjögurra manna fjölskyldu verja um 22 þúsund krónum í mat á viku
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir
er yfirleitt kölluð Adda Steina. Hún
er Grafarvogsbúi og prestur í
Hjallakirkju í Kópavogi og á alltaf til
mjólk, smjör og ost í ísskápnum.
Fjöldi heimilismanna og
gæludýr?
Fjórir í heimili auk Stúfs sem er
íslenskur fjárhundur.
Hvað fer fjölskyldan með í
mat og hreinlætisvörur á viku?
Um 22 þúsund krónur miðað við
útgjöldin sl. þrjá mánuði.
Hvar kaupirðu helst inn?
Í Krónunni á Höfða og Nettó í
Hverafold.
Hvað freistar helst í mat-
vörubúðinni?
Grænmeti og ávextir – og pecan-
hnetur.
Hvernig sparar þú í heim-
ilishaldinu?
Við kaupum ekki snakk, gos, sætt
kex eða sælgæti. Við reynum að
forðast allan sykur sem mest og
það þýðir að flest unnin kjötvara og
margt fleira dettur út því að sykri er
bætt í ótrúlegustu hluti. Við eldum
úr hráefnum í upprunalegu formi og
reynum að nýta matinn vel.
Hvað vantar helst á heim-
ilið?
Eitthvert töfratæki sem tekur til
þegar heimilismenn eru of þreyttir.
Svo væri gott að fá blandara sem
brotnar ekki strax.
Eyðir þú í sparnað?
Já, við höfum greitt reglulega í
aukasparnað í 12 ár. Við spörum
líka fyrir öðru, s.s. sumarfríi með
því að leggja smávegis fyrir í hverj-
um mánuði.
Skothelt sparnaðarráð
Fara heim og hugsa málið ef
mann langar mikið í eitthvað. Ef
hlutir eru á ómótstæðilegu tilboði
er ágætt að spyrja sig hvort maður
hafi efni á að spara svona mikið.
NEYTANDI VIKUNNAR STEINUNN ARNÞRÚÐUR BJÖRNSDÓTTIR
Vantar töfratæki á
heimilið sem tekur til
Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir telur það góða reglu að leggja fyrir í
hverjum mánuði fyrir sumarfríi og öðru.
Morgunblaðið/Rósa Braga
* Matarsódi er ódýrt og um-hverfisvænt hreinsiefni sem kemur
í góðar þarfir þegar taka á bílinn í
gegn eins og hægt er að sjá á
vefnum matarkarfan.is
* Stráðu matarsóda í rakanklút og þurrkaðu af speglum,
númeraplötum, rúðum og þurrku-
blöðum. Skolaðu með vatni og
þurrkaðu með þurrum klút.
* Ef sullast í teppið má nuddamatarsóda á blettinn og ryksuga
svo þegar allt er orðið þurrt.
Sódinn dregur í sig hverskonar
fnyk.
* Mottur bílsins má hreinsameð matarsódalausn (4 msk út í
1 lítra af vatni). Ef motturnar eru
sérstaklega skítugar má gera
blönduna sterkari og jafnvel
nudda sódanum beint á bletti.
Skola svo og þurrka.
púkinn
Aura-
Matarsódi
í bílþrifin
P
innið á minnið er auglýst grimmt nú um
stundir og neytendum sagt að nú eigi
þeir ekki að þurfa að afhenda kort sín
yfir afgreiðslukassa. Enn þurfa þeir sem
versla í tveimur stærstu lágvöruverðsversl-
ununum á matvörumarkaði, Bónus og Krónunni,
að afhenda kort sín þar sem ný kerfi hafa ekki
verið innleidd.
„Við höfum verið að prófa þetta kerfi hjá okk-
ur og að okkar mati hefur tekið of langan tíma
að sækja kortaheimild þegar mikið álag er á
kerfið. Hver sekúnda skiptir máli í þessu þegar
mikið er að gera og langar raðir við kassana.
Von er á endurbættu kerfi og þá verður okkur
ekkert að vanbúnaði að hefja innleiðingu kerf-
isins,“ segir Guðmundur Marteinsson fram-
kvæmdastjóri Bónuss um verkefnið Pinnið á
minnið.
Frá Krónunni kveður við sama tón og hjá
Bónus. „Þegar þetta fór af stað var bara val um
einn posa og einn þjónustuaðila. Þetta er búið að
vera á leiðinni í mörg ár en það var farið af stað
í þetta verkefni án þess að það væri fullmótað,
fannst mér. Það gekk á ýmsu þegar við inn-
leiddum þetta kerfi í hinar verslanir Norvikur og
við erum svolítið brennd af því í sambandi við
matvöruna. Við erum að passa að afgreiðslutím-
inn verði ekki lengri,“ segir Gísli Jón Magn-
ússon, fjármálastjóri Norvikur.
Á að auka öryggi
Pinnið á minnið á að auka öryggi hjá neytendum.
Posinn snýr að neytendum sem eiga að muna
pin-númerið á kortunum sínum. Verkefnið er í
umsjá Greiðsluveitunnar ehf, dótturfyrirtækis
Seðlabanka Íslands. Þeir Íslendingar sem verslað
hafa erlendis þekkja það vel að þurfa að slá inn
pin númer í stað þess að skrifa undir þegar greitt
er með korti. Í júní 2012 voru 94% allra af-
greiðslustaða innan Evrópusambandsins komin
með örgjörvaposa.
Fjölmörg debetkort hér á landi eru enn án ör-
gjörva og enn sem komið er er auðsótt hjá versl-
unum að fá að ýta á græna takkann og skrifa
undir eins og áður.
Miðað er við rétta aðferð
Tæp 80% afgreiðslustaða hér á landi hafa sett
upp örgjörvaposa. Þær upplýsingar fengust hjá
verkefnastjórn Pinnið á minnið að þær verslanir
sem ekki hafa tekið upp kerfið ættu ekki að geta
kvartað undan því að það sé of hægt. Mikilvægt
sé að hafa hugfast að rétt notkun örgjörvakorta
feli í sér meira öryggi fyrir korthafa og er sé
mikilvægur áfangi til verndar neytendum og fyr-
irtækjum sem stunda kortaviðskipti sín í milli.
„Staðreyndin er sú að ef staðfesting greiðslu með
segulrandarkorti er framkvæmd rétt, þannig að
undirskrift á strimli er borin saman við undir-
skrift á korti, þá er sú aðferð tímafrekari. Stytti
menn sér hins vegar leið með því að bera ekki
saman undirskrift á strimli og korti hefur það
auðvitað áhrif á afgreiðslutíma,“ var svarið sem
fékkst frá aðstandendum verkefnisins innt eftir
viðbrögðum við skýringum Bónuss og Krónunnar
BÓNUS OG KRÓNAN VELJA HRAÐA YFIR NÝJUNG
Risarnir vilja ekki
pinnið á minnið
HVORKI BÓNUS NÉ KRÓNAN HAFA TEKIÐ UPP ÖRGJÖRVAPOSA SEM SNÝR AÐ NEYTENDUM ÞRÁTT FYRIR AÐ ÖLLUM
VERSLUNUM HAFI VERIÐ UPPÁLAGT AÐ GERA SLÍKT FYRIR 1. NÓVEMBER SÍÐASTLIÐINN. FORSVARSMENN VERSLANANNA
TELJA KERFIÐ OF HÆGVIRKT. FORSVARSMENN „PINNIÐ Á MINNIГ-VERKEFNISINS SEGJA HRAÐANN SÍST MINNI MEÐ
NÝJU KERFI
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Nú hafa tæp 80% afgreiðslustaða á Íslandi sett upp örgjörvaposa.