Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Síða 46
Viðtal
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.5. 2013
É
g hafði aldrei heyrt um Ísland. Ég
hafði auðvitað, eins og svo margir
krakkar um allan heim, horft á
Latabæ en ég hafði ekki hugmynd
um tengsl Latabæjar og Íslands.
Þegar ég fékk að vita að ég ætti að koma
hingað fletti ég Íslandi því upp á Google, bara
til að fá smáhugmynd um hvernig landið liti
út,“ segir hin 11 ára gamla Chloe Lang sem
verður brátt frumsýnd sem Solla stirða, eða
Stephanie, um allan heim.
Chloe er önnur leikkonan sem bregður sér í
hlutverk Sollu stirðu í þáttunum um Latabæ.
Hún tók við keflinu af Juliönnu Rose Mau-
rielo sem lék Sollu stirðu í fyrstu tveimur
þáttaröðunum en framleiðslu þeirra lauk árið
2007.
Þegar Turner-fjölmiðlasamsteypan keypti
Latabæ fyrir tæpum tveimur árum var ákveð-
ið að hefja framleiðslu á þáttunum að nýju.
Stefán Karl Stefánsson og Magnús Scheving
voru á sínum stað sem Glanni glæpur og
Íþróttaálfurinn en Julianna var vaxin upp úr
hlutverkinu enda nær 23 ára gömul í dag.
Umfangsmikil leit að nýrri Sollu hófst því
strax og að lokum var það hin þá tíu ára
gamla Chloe sem varð fyrir valinu.
Chloe var á Íslandi í hálft ár við upptökur í
Latabæjarmyndverinu í Garðabæ í fyrra en
hlutverkið verður henni þó ekki til heims-
frægðar fyrr en nú í ár. Þættirnir eru nefni-
lega aðeins farnir í loftið í Bretlandi en eru á
leiðinni í sjónvarp víða um heim, meðal ann-
ars í Bandaríkjunum hinn 27. maí. Leikkonan
unga segist vera með fiðrildi í maganum yfir
því að vinir hennar í Connecticut muni brátt
sjá hana syngja og dansa með bleiku kolluna.
Enda þekkja allir Latabæ. Chloe sjálf hefur
horft á þættina frá því að hún var lítil stelpa.
Mamma hennar, Tina Lang, segir að aldrei
nokkurn tímann hefði hana órað fyrir því að
einn daginn yrði dóttir hennar orðin Solla
stirða.
Til að gera sér grein fyrir hvers konar
frægð bíður Chloe má ígrunda þessar stað-
reyndir: Þættirnir um Latabæ hafa verið
sýndir í yfir 170 löndum, á 500 milljón heim-
ilum. Það má skammlaust kalla það að leggja
heiminn að fótum sér. Sérstaklega þegar mað-
ur er aðeins 11 ára. En það þýðir líka að
kveðja þarf systkini sín og föður um tíma og
halda í ferð til Íslands – í fyrra til að leika í
þriðju þáttaröðinni sem er verið að taka til
sýningar og aftur nú í ár til að hefja vinnslu á
þeirri fjórðu.
Fyrsti tökudagur var í gær. Mæðgurnar
Tina og Chloe vita hvernig þetta gengur fyrir
sig og það er reynt að haga hlutunum þannig
að lífið verði eins einfalt og hægt er fyrir
Chloe þannig að þegar blaðamann og ljós-
myndara Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins ber
að garði er Chloe í herbergi sínu í kennslu-
stund með einkakennara sínum. Þær eru að
lesa gríska goðafræði, Pandóra, fyrsta konan
á jörðinni samkvæmt þeim fræðum, er við-
fangsefnið.
„Ég var mjög spennt að sjá landið með eig-
in augum eftir að hafa „gúgglað“. Á netinu sá
ég fossa og landslagið. En það var auðvitað
ekkert á við það þegar við lentum hér eld-
snemma morguns. Heima höfum við ekki
þessa ótrúlegu fjallasýn,“ segir Chloe. Móðir
hennar vissi þó ýmislegt um land og þjóð.
Sem aðdáandi Bjarkar Guðmundsdóttur segir
hún að það sé óhjákvæmilegt að kynnast bak-
grunni tónlistarkonunnar. Þá hafi fyrrverandi
vinnufélagi hennar, sem ferðaðist gjarnan til
Íslands, sýnt henni myndir úr ferðum sínum.
„Ísland var því fyrir löngu komið á listann yf-
ir staði sem mig langaði að heimsækja ein-
hvern tímann um ævina. Ég tel okkur því afar
heppnar að fá þetta tækifæri til að búa hér,
hálft ár í fyrra og hálft ár núna aftur. Þetta
er allt öðruvísi en að vera ferðamaður, við
fáum að kynnast fólkinu og eignast vini.“
Ef bandarísk börn ætla að fá hlutverk í
sjónvarpi, á sviði eða í auglýsingum þarf að
vinna að því hörðum höndum. Það þýðir ekki
að sitja auðum höndum og bíða eftir að ein-
hver „uppgötvi“ mann. En vissulega þarf að
búa yfir hæfileikum, miklum hæfileikum, til að
hreppa bitastæð hlutverk í milljónalandi.
Tilviljun að hæfileikarnir
uppgötvuðust
„Ég veit ekki hvaðan Chloe hefur þessa miklu
hæfileika. Hvorki mín megin né í fjölskyldu
eiginmanns míns er fólk sem dansar eða
syngur, hvað þá leikur. Bróðir minn spilar
á hljóðfæri og þá er það upptalið. Í
fjölskyldum þar sem foreldrar eða
þeir nánustu vinna í afþreying-
ariðnaðinum er það næstum
ákveðið meðan börnin eru í móð-
urkviði hvernig listnámi þeirra
skuli hagað þegar þau koma í
heiminn. Hjá okkur var þetta alger
tilviljun. Chloe fór að vísu að læra
dans ung, milli tveggja og þriggja
ára, en það voru hæfileikar hennar
sem leiddu okkur á þá braut að
einbeita okkur að því að gera meira
úr ferli hennar og styðja við bakið á
henni í þeirri vinnu,“ segir Tina.
Chloe man því ekki eftir sér öðruvísi
en dansandi. Fljótlega fór hún að
keppa í dansi, bæði sem sólódansari
og í litlum hóp, og verðlaunin sóp-
uðust inn. Oftsinnis vann hún fyrstu verðlaun
í danskeppnum og listamannseðlið leiddi hana
og vinkonur hennar í dansinum út á þá braut
að bæta söng og leiklist við. „Þegar ég var sjö
ára komst ég í kynni við áheyrnarprufur í
gegnum bestu vinkonu mína sem hafði farið í
slíkar prufur. Mér þótti það svo svakalega
gaman að síðan þá hef ég ekki stoppað.
Áheyrnarprufur fyrir ýmis hlutverk, sjón-
varpsefni, svið og auglýsingar eru mjög
stór partur af lífi mínu og hafa verið í
að verða fimm ár. Einu sinni til tvisvar
í viku keyrum við til New York, frá
Connecticut, og ég fer í prufu. Jú, það
hefur gengið mjög vel. Ég fékk strax
umboðsmann og hef meðal
annars fengið hlutverk í aug-
lýsingum fyrir Pillsbury
Toaster Strudel, Baby Alive,
Cablevision og Yale-New Ha-
ven Hospital. Einnig í auglýs-
ingum fyrir GAP og Project
Runway.“
Margar barnastjörnur eru þó í
áheyrnarprufum á degi hverjum.
Ástæðan fyrir því að fjölskyldan
einskorðar þær prufur sem Chloe
fer í við einu sinni til tvisvar í
Tina Lang er ekki minni
mamma á tökustað en heima
og þarf að passa að hún læri
stærðfræðina milli atriða.
Hún segist minna fullorðna
fólkið í Latabæjarhúsinu á að
leyfa Chloe ekki að komast
upp með allt bara af því að
hún sé yngst.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Chloe Lang í herberginu sínu bleika og hvíta í
Latabæjarmyndverinu í Garðabæ. Þar lærir hún
og hvílir sig og hlustar á tónlist Justins Biebers.
Heimsfrægðin
á næsta leiti
ÞRÁTT FYRIR AÐ SOLLA STIRÐA SÉ AÐEINS 11 ÁRA BANDARÍSK
STÚLKA HEFUR HÚN FRÁ ÞVÍ HÚN VAR SJÖ ÁRA EYTT EINUM TIL
TVEIMUR DÖGUM Í VIKU HVERRI Í ÁHEYRNARPRUFUR VESTANHAFS.
ENDA ÞÝÐIR LÍTIÐ AÐ SITJA AUÐUM HÖNDUM TIL AÐ SLÁ Í GEGN.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is