Morgunblaðið - 11.06.2013, Page 4

Morgunblaðið - 11.06.2013, Page 4
Morgunblaðið/Eggert Stefnuræða Þingmenn hlýddu á stefnuræðu forsætisráðherra og alls fluttu 17 þingmenn og ráðherrar ræðu við umræðurnar. Skúli Hansen Gunnar Dofri Ólafsson Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hyggst leggja fram þingsályktunartillögu um að- gerðaáætlun í tíu liðum sem varða nauðsynlegar aðgerðir í þágu heim- ilanna. Þetta kom fram í fyrstu stefnuræðu hans sem forsætisráð- herra á Alþingi í gærkvöldi. „Í aðgerðaáætluninni verður fjallað um undirbúning almennrar skuldaleiðréttingar, höfuðstóls- lækkun verðtryggðra húsnæðislána, möguleikann á stofnun sérstaks leiðréttingarsjóðs ef önnur fjár- mögnun gengur of hægt og setningu svokallaðra lyklalaga. Sér- fræðihópur um afnám verð- tryggingar af neytendalánum tekur til starfa, sem og verkefnisstjórn um endurskipulagningu húsnæð- islánamarkaðarins,“ sagði Sigmund- ur Davíð. Þá bætti hann við að á meðal annarra aðgerða sem rík- isstjórnin legði til í fyrrnefndri áætl- un væri að lögfest yrði flýtimeðferð dómsmála sem tengdust skulda- vanda heimilanna. Benti hann á að Hanna Birna Kristjánsdóttir innan- ríkisráðherra hefði nú þegar lagt fram frumvarp þess efnis. Þá sagði Sigmundur Davíð að útlit væri fyrir að hægt verði að auka veiðar þegar á næsta fiskveiðiári. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sagði í ræðu sinni í gærkvöldi að hið góða bú sem núverandi stjórnarandstaða hefði talað um í sífellu væri ekki jafngott og þau vildu vera láta. Þá sagði hann gjaldeyrishöftin vera eins og blikkandi ljósaskilti yfir landinu. „Meðan höftin standa erum við eins og gölluð vara í augum um- heimsins. Ég hef stundum sagt að þau séu eins og blikkandi ljósaskilti yfir landinu sem á stendur: Varúð – við trúum ekki á virði gjaldmiðilsins – og það er ósanngjarnt að land sem býr yfir jafn miklum og spennandi tækifærum og Ísland skuli vera í þeirri stöðu,“ sagði Bjarni. Taki mið af framtíðinni Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, lagði í ræðu sinni í gærkvöldi áherslu á umhverfismálin og sagði allar okkar ákvarðanir í nútímanum eiga að taka mið af framtíðinni og hagsmunum ófæddra kynslóða. Í ræðu sinni gagnrýndi hún meðal annars harðlega ummæli Sigurðar Inga Jóhannssonar, umhverfis- og auðlindaráðherra, þess efnis að ein niðurstaða stjórnkerfisbreytinga gæti orðið sú að umhverfisráðu- neytið yrði óþarft. „Allt eins mætti segja að fjár- málaráðuneytið væri óþarft enda megi flétta verkefnum þess inn í alla aðra málaflokka, en mér er til efs að nokkur myndi fara í þá vegferð, sem segir sitthvað um forgangsröðun málaflokkanna,“ sagði Katrín. Útlit fyrir að hægt sé að auka fiskveiðar á næsta ári  Fjármálaráðherra segir höftin vera eins og blikkandi ljósaskilti yfir landinu Morgunblaðið/Eggert Nýir ráðherrar Eygló Harðardóttir, Illugi Gunnarsson, Gunnar Bragi Sveinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í þingsalnum í gærkvöldi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra flutti fyrstu stefnuræðu sína á Alþingi í gærkvöldi 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2013 ’ Það eru mikil tímamót núna í póli- tíkinni. Það er ný kynslóð tekin núna við stjórnartaumunum, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu. Guðmundur Steingrímsson ’ Var þetta stefnuræða ríkisstjórnar fyrri aldar? Fannst hún í rykugu djúpi skjalasafns Framsóknarflokksins? Er hér í fæðingu ný pólitísk tilraun gam- algróinna haftaflokka til að finna öryggi sitt í helmingaskiptum? Árni Páll Árnason ’ Ef hæstvirtur núverandi forsætis- ráðherra hefði betur lagt við hlustir hefði hann kannski lagt fram hófstilltari loforð fyrir síðustu kosningar. Katrín Jakobsdóttir ’ Skapist til dæmis stöðugt rekstr- arumhverfi fyrir undirstöðu- atvinnuvegi þjóðarinnar mun það að öll- um líkindum leysa úr læðingi mikla fjárfestingagetu. Sem betur fer lítur auk þess út fyrir að hægt verði að auka veið- ar þegar á næsta fiskveiðiári og auka þar með útflutningstekjur þjóðarinnar um- talsvert. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ’ Gjaldeyrishöftin hvíla eins og mara á íslensku efnahagslífi. Íslensk fyr- irtæki standa höllum fæti gagnvart er- lendum vegna þeirra, missa af mik- ilvægum tækifærum vegna seigju kerfisins og innlendir fjárfestar eiga erf- itt með að dreifa áhættu í fjárfestingum sínum vegna takmarkana á fjármagns- flutningum. Bjarni Benediktsson ’ Verið hress, ekkert stress, bless. Guðmundur Steingrímsson ’ Ísland þarf að leggja áherslu á að vera í fararbroddi í norðurslóða- samstarfi, með tilliti til nýtingar auðlinda á svæðinu, umhverfisverndar og opn- unar nýrra siglingaleiða um norðurhöf Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ’ Samt segir forsætisráðherra hér áð- an að „horfurnar í rekstri ríkissjóðs séu miklum mun verri en haldið hefur verið fram“ og að það sé ekki fögur mynd sem við blasi, þótt allir viti að hann taki við góðu búi. Bíddu nú við. Rekstrarhorf- urnar slæmar, en samt eru fyrstu verkin að auka útgjöld og draga úr tekjum. Hver er skynsemin í þessari stefnu? Árni Páll Árnason ’ Við ætlum okkur að endurskoða skattkerfið, einfalda það og lækka skatta þar sem það getur augljóslega létt undir með einstaklingum og fyr- irtækjum, orðið til þess að örva hagvöxt og fjölga störfum. Bjarni Benediktsson „Verið hress, ekkert stress, bless“ Skúli Hansen skulih@mbl.is Þingmenn Bjartrar framtíðar ætla að leggja fram á sumarþinginu þingsályktunartillögu þess efnis að farið verði í þjóðaratkvæði innan árs um það hvort halda skuli aðild- arviðræðunum við Evrópusam- bandið áfram. Þetta kom fram í ræðu Guðmundar Steingrímssonar, formanns Bjartrar framtíðar, á Al- þingi í kvöld. „Nú á að gera hlé en það er óljóst hvað á að gera svo. Við í Bjartri framtíð viljum mjög eindregið ljúka þessum viðræðum og leggja fullbú- ið plagg til samþykktar eða synj- unar fyrir þjóðina í þjóðaratkvæða- greiðslu,“ sagði Guðmundur og bætti við: „Við viljum höggva á þennan hnút sem er núna kominn einhvern veginn upp í þessum mál- um. Við ætlum því að leggja til, núna á sumarþingi, með þingsálykt- unartillögu að farið verði í þjóð- aratkvæði innan árs um það hvort halda skuli viðræðunum áfram.“ Tillaga um þjóðaratkvæði Morgunblaðið/Eggert Atkvæðagreiðsla Guðmundur vill þjóðaratkvæði um ESB-viðræðurnar.  Vilja að þjóðin fái að kjósa um ESB SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan. Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur sínum náttúrulega lit. GERUM SÓLPALLINN EINS OG NÝJAN info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is S: 897 2225

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.