Morgunblaðið - 11.06.2013, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2013
Helstu talsmenn síðustu ríkis-stjórnar héldu því gjarnan
fram – og gera enn
– að sú stjórn hafi
náð tökum á rík-
isfjármálunum.
Þetta er meðal
þeirra afreka sem
komandi kynslóðir
munu að þeirra
sögn þakka „fyrstu
hreinu vinstristjórninnni“ þó að
kjósendur hafi sýnt eintómt van-
þakklæti í nýlegum kosningum.
Í umræðum á Alþingi í gærkvöldiupplýsti fjármálaráðherra að
glansmyndin af ríkisfjármálunum
sem dregin hefur verið upp af fyrri
ráðherrum á ekki við rök að styðj-
ast.
Útgjöld umfram heimildir ogminni tekjur vegna minni
hagvaxtar valdi því að nú stefni í
halla á þessu ári um rúma 30 millj-
arða króna. Afkoman verði því
svipuð og í fyrra.
Minni hagvöxtur sem felur í sérminni tekjur í hagkerfinu –
og þar með minni tekjur ríkissjóðs
– er bein afleiðing þeirrar stefnu
sem „fyrsta hreina vinstristjórnin“
bauð landsmönnum upp á.
Þess vegna var hárrétt súábending fjármálaráðherra að
til að vinda ofan af vanda ríkisfjár-
málanna nægi ekki að leggja
áherslu á varfærni í ríkisút-
gjöldum. Hér verði að skapa um-
hverfi sem gefi af sér meiri hag-
vöxt en undanfarin ár.
Stór þáttur í því að skapa skil-yrði fyrir hagvöxt er að lækka
skatta sem eftir þrotlausar skatta-
hækkanir „fyrstu hreinu vinstri-
stjórnarinnar“ eru að sliga bæði
fólk og fyrirtæki. Þær skattalækk-
anir þola ekki bið ef koma á hag-
vexti hratt aftur á viðunandi stig.
Bjarni
Benediktsson
Gölluð glansmynd
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 10.6., kl. 18.00
Reykjavík 15 rigning
Bolungarvík 9 skýjað
Akureyri 12 skýjað
Nuuk 1 þoka
Þórshöfn 10 alskýjað
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 21 léttskýjað
Lúxemborg 23 léttskýjað
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 18 heiðskírt
London 13 skýjað
París 22 heiðskírt
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 17 léttskýjað
Berlín 22 skýjað
Vín 21 léttskýjað
Moskva 22 skýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 26 léttskýjað
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 11 léttskýjað
Montreal 12 súld
New York 14 skýjað
Chicago 10 léttskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:02 23:55
ÍSAFJÖRÐUR 1:33 25:33
SIGLUFJÖRÐUR 1:16 25:16
DJÚPIVOGUR 2:18 23:37
„Það gengur bara rosalega vel,“
segir Guðmundur Felix Grétarsson
sem missti sem kunnugt er báða
handleggi sína í vinnuslysi fyrir um
15 árum. Hann er nú staddur í Lyon
í Frakklandi þar sem undir-
búningsrannsóknir vegna handa-
ágræðslu fara fram.
„Þessa viku á ég eftir að klára
fleiri hittinga og rannsóknir og eftir
það verður væntanlega tekin
ákvörðun um hvort þeir setja mig á
lista strax eða hvort þeir bíða fram á
haustið, fram yfir sumarfrí. Ég veit
ekki alveg hvernig það verður,“ seg-
ir Guðmundur Felix. Það ætti þó að
liggja fyrir í lok vikunnar hvert
framhaldið verður. „Við erum ann-
ars í tímabundnu húsnæði hérna,
fullbúnu, sem við höfum í mánuð á
meðan við erum að leita að lang-
tímahúsnæði. Þannig að þetta er
svolítið óvíst ennþá hvernig þetta
allt saman verður.“
Hann segist hafa heyrt það á
læknunum sínum að þeir hafi hist oft
og undirbúið aðgerðina. „Ég hef
rosalega góða tilfinningu fyrir þessu
öllu saman,“ segir hann. „Þetta er
náttúrulega mjög stór aðgerð á alla
mælikvarða. Þeir sögðust gjarnan
vera að framkvæma aðgerðir í 4 til 6
tíma en þessi verður líklega allt upp
undir 40 tíma þannig að það er rosa-
lega mikill undirbúningur. Þeir ætla
ekkert að klúðra þessu.“
„Hef rosalega góða tilfinningu fyrir þessu“
Guðmundur Felix Grétarsson í rannsóknum í Lyon fyrir handaágræðslu
Guðmundur Felix
Guðmundur Felix Staddur í Lyon.
www.nortek.is Sími 455 2000
ÖRYGGISLAUSNIR FYRIR
ÖLL HEIMILI
Nortek er með mikið af einföldum notenda-
vænum lausnum fyrir heimili og sumarbústaði.
Nortek ehf | Eirhöfði 13 og 18 | 110 Reykjavík
Hjalteyrargötu 6 | 600 Akureyri | nortek@nortek.is
HEIMILISÖRYGGI
• Innbrotakerfi
• Myndavélakerfi
• Brunakerfi
• Slökkvikerfi
• Slökkvitæki
• Reykskynjarar
Hæstiréttur hefur lækkað bætur til
handa Alþjóðlegum bifreiðatrygg-
ingum á Íslandi vegna þess að full
ábyrgð yrði tjónvaldinum það þung-
bær að réttinum þætti það ósann-
gjarnt. Var bóta-
fjárhæðin
lækkuð úr rúm-
lega 17 milljón
kr. í 8,5 milljónir
kr. Málið á rót að
rekja til árekst-
urs tveggja bif-
reiða í ágúst
2009. Karlmaður
ók annarri bif-
reiðinni og var
hún óvátryggð þegar árekstur varð,
en við hann skemmdist hin bifreiðin
og ökumaður hennar slasaðist.
Hæstiréttur féllst á forsendur hér-
aðsdóms um að maðurinn ætti sök á
árekstrinum og bæri sem ökumaður
ábyrgð á því tjóni sem hlaust af.
Í dómi Hæstaréttar segir að af
skattframtölum mannsins verði ráð-
ið að tekjur hans séu lágar og fjár-
hagur hans bágur. „Loks er óum-
deilt að stefndi, sem hefur að lögum
þann tilgang að bæta tjón eins og
þetta og fær til þess fé frá vátrygg-
ingafélögum, sem veita ökutækja-
tryggingar, hefur bætt tjónþola tjón
hans að fullu. Þegar allt fram-
angreint er virt þykja þær aðstæður
vera fyrir hendi að lækka megi
bótafjárhæð, enda yrði full ábyrgð
áfrýjanda á tjóninu honum það
þungbær að ósanngjarnt mætti
telja.“
Full ábyrgð yrði tjón-
valdi of þungbær
Hæstiréttur Bóta-
fjárhæðin lækkuð.