Morgunblaðið - 11.06.2013, Side 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2013
Þú færð GO walk skó í
Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni
og Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi | Skóhöllinni Firði,
Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi
Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri | Mössuskór, Akureyri
Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn
í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum
Skóbúðin, Keflavík
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C
Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16
Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri
Full búð af nýjum vörum
Kjólar kr. 6.900 - Jakkar kr. 12.900
FRÉTTASKÝRING
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Mikilvægt er að foreldrar kynni sér
netnotkun barna sinna og ræði op-
inskátt við þau um hana. Stundum
nota börn tvo aðganga að samfélags-
síðum og vita foreldrar ekki af öðr-
um þeirra, að sögn Björns Egils-
sonar, verkefnastjóra hjá Samfélagi,
fjölskyldu og tækni (SAFT).
Algengt er að kynferð-
isbrotamenn noti netið til þess að
komast í kynni við börn. Á föstudag
féll til dæmis dómur yfir ungum
manni í Héraðsdómi Reykjavíkur
sem braut gegn fjölda stúlkna á
aldrinum tólf til sextán ára. Hann
talaði við þær í gegnum ýmsar sam-
skiptasíður eins og Facebook,
Skype, Tinychat og MSN.
Þar þóttist hann meðal annars
vera áhugaljósmyndari og bauð
stúlkunum fé gegn því að fá að ljós-
mynda þær eða að þær sendu honum
myndir af sér nöktum eða í kynferð-
isathöfnum.
Lenda í vítahring
„Ábendingar um svona mál hafa
komið inn á okkar borð. Við tölum
mikið um þetta á fræðslufyr-
irlestrum. Svona tælingarmál er eitt
af því sem þarf að forðast með börn
og netið,“ segir Björn.
Þannig mál geta átt sér langan
aðdraganda og taka afbrotamenn-
irnir sér langan tíma í að vinna
traust krakkanna. Þeir þykjast vera
jafnaldrar þeirra og hafa svipuð
áhugamál. Smám saman fá þeir
börnin til að treysta sér. Þetta á sér
stað í gegnum samfélagssíður eða
jafnvel spjallsvæði tölvuleikja.
„Þetta getur oft verið rosalega
lúmskt. Jafnvel ef krakkar láta til
leiðast og senda viðkomandi myndir
eða hitta þá, þá ná þessir af-
brotamenn ákveðnu taki á krökk-
unum. Ef þeir vilja slíta sambandinu
nota þeir hótanir, hóta til dæmis að
segja foreldrum barnanna hvað þau
hafi verið að gera eða að birta mynd-
irnar. Þetta verður oft vítahringur
sem erfitt er fyrir krakkana að losna
úr,“ segir Björn.
Með tvo Facebook-aðganga
SAFT hefur á heimasíðu sinni
ýmis heilræði til foreldra um net-
notkun barna. Þeirra á meðal er að
foreldrar séu með krökkunum þegar
þeir eru á netinu og að þeir geri
samkomulag um netnotkunina.
„Sérstaklega brýnum við fyrir
öllum að ræða um þá áhættu sem
fylgir því að hitta einhvern sem þau
hafa kynnst á Netinu. Að börnin fari
aldrei ein að hitta einhvern sem þau
þekkja bara í gegnum Netið. Það
getur verið stórhættulegt.“
Þrettán ára aldurstakmark er á
Facebook en að sögn Björns brenn-
ur það gjarnan við að krakkar ljúgi
til um aldur sinn þar.
„Stundum eru þau með einn Fa-
cebook-aðgang sem fjölskyldan má
sjá og svo annan sem foreldrarnir
vita aldrei um. Það sem foreldrarnir
þurfa að gera er að láta ekki sitt eftir
liggja í þessu frekar en öðru í upp-
eldi,“ segir Björn.
Hóta krökkum að
birta myndirnar
Morgunblaðið/Ernir
Samskiptasíður Ungur maður var nýlega dæmdur fyrir að tæla stúlkur,
allt niður í 12 ára gamlar, m.a. í gegnum samfélagssíðuna Facebook.
Fjarskiptafyrirtækin bjóða upp
á netsíur sem loka fyrir að-
gang að vefsíðum sem inni-
halda efni sem búið er að skil-
greina sem skaðlegt. Þær loka
hins vegar ekki á samfélags-
síður að sögn Björns hjá SAFT.
„Þó að fólk setji upp netsíur
þá eru þessi rafrænu rándýr
ótrúlega slungin í að koma sér
fram hjá þeim. Þau veigra sér
ekki við að sigla undir fölsku
flaggi,“ segir Björn og nefnir
sem dæmi mál í haust þar
sem fullorðinn maður klæmd-
ist við stúlku á spjallsvæði
tölvuleiks fyrir mjög unga
krakka sem var talinn mjög
öruggur.
Sigla undir
fölsku flaggi
NETSÍUR
Í vikunni fara fram inntökupróf í
læknisfræði, sjúkraþjálfun og hag-
fræði við Háskóla Íslands og nærri
450 nemendur taka þessi próf.
Rúmlega þrjú hundruð nemendur
þreyta inngönguprófið í læknis-
fræði, 57 í sjúkraþjálfun og rúmlega
60 í hagfræði.
Að venju eru margir um hituna í
læknisfræðinni, en aðeins 48 nem-
endur eiga kost á að setjast á skóla-
bekk þar í haust. Tuttugu og fimm
nemendur verða innritaðir í sjúkra-
þjálfun og allir þeir sem ná lág-
markseinkunn í inntökuprófinu í
hagfræði eiga kost á plássi í
deildinni í haust.
Inntökupróf í hagfræði var haldið
í fyrsta skipti síðastliðið sumar. Alls
skráðu 74 nemendur sig til prófs, en
aðeins 46 nemendur mættu í prófið.
Þar af náðu 40 nemendur fullnægj-
andi árangri. Prófið er í tveimur
hlutum og reynir þar meðal annars á
lesskilning á ensku, stærðfræði-
hugsun og færni nemenda í að túlka
upplýsingar. Í prófinu er einnig að
finna spurningar sem snúa að þekk-
ingu nemenda í stærðfræði og er þar
prófað úr námsefni í stærðfræði í
framhaldsskólum.
Nemendur sem hafa lokið 60 ein-
inga (ECTS) námi á háskólastigi
þurfa ekki að taka inntökuprófið í
hagfræðideild.
Inntökuprófin í læknisfræði og
sjúkraþjálfun fara fram 12. og 13.
júní og inntökupróf í hagfræði fer
fram föstudaginn 14. júní.
Morgunblaðið/Kristinn
Hundruð mæta í
inntökupróf í HÍ
Aðeins 48 nemendur af rúmlega 300
komast inn í læknadeildina í haust