Morgunblaðið - 11.06.2013, Side 20

Morgunblaðið - 11.06.2013, Side 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2013 HÁDEGISMATUR Í FYRIRTÆKI OG STOFNANIR VINSÆLT - HEILSUBAKKAR Heilsubakkar eru réttir sem samanstanda af léttu fæði Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar 555-1810, 565-1810 · Fax: 565-2367 · veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Fjölbreyttur matseðill og valréttir alla daga Við sendum hádegismat í bökkum og kantínum til fyrirtækja og stofnana alla daga ársins. Boðið er upp á sjö valrétti á virkum dögum: Tvo aðalrétti, þrjá aukarétti, heilsurétt og ávaxtabakka. Aðalréttirnir eru breytilegir frá degi til dags. Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is STUTTAR FRÉTTIR ● Alls var 131 kaupsamningi þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 31. maí til og með 6. júní. Þar af voru 100 samningar um eignir í fjölbýli, 21 samningur um sérbýli og 10 samningar um annars konar eign- ir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 4.054 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30,9 milljónir króna. Á sama tíma var 9 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli, 1 samn- ingur um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 112 milljónir króna og meðalupphæð á samning 12,5 milljónir króna. Þetta kom fram vef Þjóðskrár Íslands í gær. Fasteignaviðskipti fyrir rúma 4 milljarða króna ● Stjórnvöld í Japan telja hagvaxtar- horfur þar í landi betri nú en áður og gera ráð fyrir 4,1% hagvexti á árs- grundvelli á fyrstu þremur mánuðum ársins, samkvæmt því sem fram kom á fréttavef Breska ríkisútvarpsins, BBC, í gær. Til samanburðar nam vöxturinn 1,2% á sama tíma í fyrra. Breska dagblaðið Financial Times segir þetta góðar fréttir fyrir Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, en þing- kosningar eru í næsta mánuði. Spá 4,1% hagvexti í Japan á fyrsta fjórðungi Olíufélagið CNOOC, sem hóf nýlega samstarf við íslenska olíuleitarfyr- irtækið Eykon Energy, er fyrsta kínverska olíufélagið til að koma að olíuleit í Norður-Íshafi. Þetta kem- ur fram á fréttavef Financial Times. CNOOC, sem er í fullri eigu kín- verska ríkisins, gekk inn í umsókn um leitar- og vinnsluleyfi olíu og gass á Drekasvæðinu ásamt Eykon í seinustu viku. Umsókn kínverska félagsins var kynnt mánuði eftir að Kínverjum var veitt áheyrnaraðild að Norður- skautsráðinu, sem er helsti sam- starfsvettvangur þeirra ríkja sem liggja á eða að Norðurslóðum, og tveimur mánuðum eftir að Ísland varð fyrsta Evrópuríkið til að gera fríverslunarsamning við Kína. Ákvörðun liggur fyrir í haust Eykon leitaði til CNOOC eftir að hafa fengið frest frá Orkustofnun til að afla sér samstarfsaðila sem að mati Orkustofnunar hefði nægjan- lega sérþekkingu, reynslu og bol- magn til að annast olíuleit. Orku- stofnun mun nú kanna nánar fjárhagslega og tæknilega getu um- sækjenda og mun ákvörðun hennar um hvort hún úthluti Eykon og CNOOC rann- sóknarleyfi liggja fyrir í haust. Mikil tækifæri Heiðar Már Guðjónsson, stjórnarformaður Eykon Energy, segir í viðtali við Financial Times alþjóðleg fyrir- tæki streyma til norðurslóða í leit að tækifærum. „Það er ekki bara olía og gas; þarna eru steinefni, þarna eru hugsanlegar nýjar skipaleiðir.“ Heiðar gerir hins vegar minni vænt- ingar til komu kínverskra fyrir- tækja til Íslands á meðan gjaldeyr- ishöft eru við lýði. „Í grundvallaratriðum kæfa höftin hagkerfið þar sem innlend fjárfest- ing er engin.“ Aukinn áhugi Kínverja Kína hefur undanfarið sýnt norðurslóðum aukinn áhuga. Í sein- ustu viku var tilkynnt að sett yrði á laggirnar nýtt rannsóknarsetur um norðurslóðamál í Shanghai, eftir því sem fram kemur í kínverska dag- blaðinu China Daily. kij@mbl.is CNOOC og Ey- kon í samstarf  Sækja um leyfi til olíuleitar Heiðar Már Guðjónsson VIÐTAL Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Ólafur Páll Snorrason, sem rekur leigufélag, segir að það hafi gengið erfiðlega að koma á fundum með Reykjavíkurborg til að ræða bygg- ingu fjölbýlishúsa. „Við viljum stækka félagið og efla þannig leigumarkaðinn. Það tók mig um fjórar vikur að koma á fundi með Degi B. Eggertssyni, formanni borg- arráðs, til að ræða byggingu á 70-80 íbúðum í Úlfarsfelli. Ég reyndi allt hvað ég gat en fékk engin viðbrögð. Sömu sögu má segja af tilraunum til að ná í embættismenn borgarinnar. Það var ekki fyrr en ég fékk eiganda félagsins Snorra Hjaltason, til að fara í málið að það tókst að koma á fundi. Á sama tíma tók það mig einungis einn dag að ná í bæjarstjórann í Hafnarfirði vegna byggingar á 20-30 íbúða blokk,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið og bætir við að Reykjavíkurborg hafi ekki þótt mikið koma til viljayfirlýsingar frá lífeyr- issjóðum um að fjármagna bygging- arnar. „Það dugði ekki sem staðfest- ing á að fjármögnun væri til reiðu,“ segir hann. Leigufélagið er með 51 íbúð í út- leigu við Skyggnisbraut í Úlfarfelli í þremur blokkum. Í haust lýkur bygg- ingu á 23 íbúða fjölbýlishúsi í Norð- lingaholti. Innan skamms verða íbúð- irnar 74. Sameinaði lífeyrissjóðinn og Stafir lífeyrissjóður lánuðu til bygg- inganna. Upphaflega var leitað til þessara sjóða með það fyrir augum að skapa störf fyrir skjólstæðinga þeirra, segir Óalfur Páll, og þakkar það traust sem honum og hans fyr- irtæki var sýnt. „Við höfum áhuga á því að reka 200 íbúða leigufélag og taka þá stöðuna,“ segir Ólafur Páll. „Vegna þess hve erfiðlega hefur gengið að semja við Reykjavíkurborg höfum við leitað til Hafnarfjarðar og stefnum á að reisa þar 20-30 íbúðir. Þar var tekið mjög vel í hugmyndir okkar, enda ríkir þar áhugi á upp- byggingu í bænum. Verkefnið verður bráðlega kynnt bæjaryfirvöldum. Auk þess höfum við fengið góð við- brögð frá Kópavogsbæ varðandi upp- byggingu en það verkefni er mun styttra á veg komið. Ef Reykjavík- urborg hefur ekki áhuga á samstarfi leitum við vitaskuld til nágranna- sveitarfélaga. Það er mjög sambæri- legt að búa í Reykjavík og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir hann. Einblínir um of á miðbæinn Ólafi Páli þykir stjórnarmeirihlut- inn í Reykjavíkurborg einblína um of á uppbyggingu í miðbænum. Hann segir að það sé meiri eftirspurn eftir húsnæði í úthverfum en í miðbænum. „Flestar fjölskyldur vilja ala upp börn sín í úthverfum frekar en í mið- bænum. Markaðurinn þar er því nokkuð lítill og verður brátt mettur. Ég reikna með því að á næstu þrem- ur til fimm árum verði búið að byggja á þeim reitum sem hægt er í 101, og þá eru úthverfi eini staðurinn sem er eftir. Við viljum leggja okkar lóð á vogarskálarnar og byggja t.d. í Úlf- arsfelli en stjórnarmeirihlutinn í Reykjavík virðist ekki vera áhuga- samur um það og horfir nær einungis til miðbæjarins. Ég er með langan biðlista af fólki sem hefur áhuga á að leigja í úthverfum en ekki í miðbæn- um. Það ætti að vera stjórnmála- mönnum kappsmál að sinna óskum borgarbúa,“ segir hann. „Þó á ég von á því að eiga viðræður við Reykjavík- urborg um málið á næstu vikum.“ Grundvöllur stórra leigufélaga Eftir fjármálakreppuna hafa skap- ast forsendur fyrir því að reka stór íbúðaleigufélög. Enda er mun erfið- ara að fjármagna kaup á íbúðum en áður. Stærri leigufélög eru líka í stakk búin til að veita mörgum lang- tímaleigusamninga og á betri kjörum vegna stærðarhagkvæmni. En leigu- samningarnir sem félög Ólafs Páls gera eru ótímabundnir með sex mán- aða uppsagnarfresti. „Forsendurnar fyrir rekstrinum eru allt aðrar eftir mikla aukningu í eftirspurn. Einstak- lingar þurfa að eiga mikla peninga í eigin fé til þess að kaupa sér húsnæði. Hafi ungt fólk áhuga á að festa kaup á sinni fyrstu íbúð þurfa margir að biðja fjölskyldu sína að aðstoða sig við kaupin. Það virðist líka vera orðið viðurkennt að fólk sé á leigumarkaði, eins og t.d. tíðkast í Danmörku. Áður voru hagkvæmar íbúðir, með 2-3 her- bergjum, einna helst til leigu, en nú hefur bæst við áberandi eftirspurn eftir íbúðum með fjórum herbergj- um. Þannig að stærri fjölskyldur eru farnar að leita í meira mæli á mark- aðinn,“ segir Ólafur Páll. Rík áhersla er á að velja leigjendur af kostgæfni til að sambúðin gangi sem best. Félagið sem á Skyggnis- brautina heitir Byggingarfélagið framtak og félagið sem á blokkina í Norðlingaholti heitir Leiguhúsnæði. Reykjavíkurborg Þrándur í götu íbúðaleigufélags  Ólafur Páll Snorrason rekur stórt leigufélag og hyggst stækka það í 200 íbúðir Löng bið Það var þrautin þyngri fyrir Ólaf Pál Snorrason að fá fund með Degi B. Eggertssyni, formanni borgarráðs, varðandi uppbyggingu. Morgunblaðið/Kristinn 74 íbúðir í leigu innan skamms » Leigufélagið er með 51 íbúð í útleigu við Skyggnisbraut í Úlfarfelli í þremur blokkum. » Í haust lýkur byggingu á 23 íbúða fjölbýlishúsi í Norð- lingaholti. Innan skamms verða íbúðirnar 74. » Stefnt er að því að íbúðirnar verði 200 innan fárrra ára. » Reykjavíkurborg einblínir um of á miðborgina, segir framkvæmdastjóri íbúðaleigu- félags.                                         !"# $% " &'( )* '$* +,-./ +01.,1 ++0., ,+.21 ,-.3-2 +0.,0+ +,0./ +.,,+4 +0,.5+ +53.25 +,-.03 +01.12 ++0.55 ,+.422 ,-.3/5 +0.225 +,0.3/ +.,,5 +02.-5 +53.0 ,+/.-+4, +,+.+0 +00.+3 ++0.3 ,+.43/ ,+.-,1 +0.203 +,3.2, +.,,0/ +02.53 +/-.,5 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.