Morgunblaðið - 27.06.2013, Side 1
F I M M T U D A G U R 2 7. J Ú N Í 2 0 1 3
Stofnað 1913 148. tölublað 101. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
TILRAUNA-
KENNDAR
SÝNINGAR
2.600
BILLJÓNIR
Í AFLANDI
GEIMVERUR
LENDA Í FRYSTI-
KLEFANUM Á RIFI
VIÐSKIPTABLAÐ LEIKVERKIÐ 21:07 34SPINDRIFT THEATRE 10
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
„Við höfum verið að ræða saman
og það eru ýmsir skipulagsþættir
sem geta alveg gengið upp en það
sem alltaf skilur á milli er að
geislafræðingar vilja sjá meiri
launahækkanir fylgja. Og það er
enn járn í járn með það,“ segir
Katrín Sigurðardóttir, formaður
Félags geislafræðinga, en að
óbreyttu láta yfir 40 geislafræð-
ingar af störfum á Landspítalanum
1. ágúst næstkomandi.
Katrín vill ekki nefna neinar töl-
ur á þessu stigi málsins en segir
að þrátt fyrir að geislafræðingar
hafi slegið af upphaflegum kröfum
sjái stjórnendur Landspítalans sér
ekki fært að koma til móts við
þær. Hún gerir ráð fyrir að við-
ræður á næstunni muni snúa að
launakröfunni en segir allt stefna í
að þeir sem hafa sagt upp störfum
gangi út í ágúst.
Vilja fund með ráðherra
„Geislafræðingar eru mjög
ákveðnir í kröfum sínum. Kjör
okkar hafa verið afar slök, grunn-
launin og annað, og það er ekki
erfitt fyrir þetta fólk að ganga inn
í almenn störf og fá þau laun,“
segir hún en einhverjir hafi þegar
fengið loforð um aðra vinnu.
Katrín segist ekkert hafa heyrt
frá nýjum stjórnvöldum en geisla-
fræðingar hafi óskað eftir fundi
með fjármálaráðherra. Þá gerir
hún ráð fyrir að fundað verði með
heilbrigðisráðherra en ekki fyrr en
í ágúst.
„Enn
járn í
járn“
40 geislafræð-
ingar hætta störfum
að óbreyttu
„Það virðist vera gríðarlegur áhugi meðal ferðamanna
fyrir þessu. Fyrir fólk sem býr inni í Mið-Evrópu og
hefur aldrei séð skip fara á land er þetta náttúrulega
einstakt,“ segir Bjarni Thoroddsen, framkvæmdastjóri
Stálsmiðjunnar sem á og rekur slippinn í Reykjavíkur-
höfn. Undanfarið hafa tvær ólíkar starfsgreinar, slipp-
starfsemi og hótelrekstur, starfað í bróðerni við gömlu
höfnina sem iðar af lífi og fjölbreyttum rekstri. Útsýnið
af svölunum á fjórðu hæð hótels Marina þykir spenn-
andi og ferðamenn láta skarkalann ekki á sig fá. »6-7
Slippurinn býr yfir aðdráttarafli
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hjónin Einar og
Þóra hætta bráð-
lega rekstri fiskbúð-
arinnar á Freyju-
götu eftir að hafa
staðið vaktina í 22
ár. Fastagestir
segja söknuðinn
verða mikinn, bæði
meðal mannfólksins
og kattanna í hverfinu, en hjónin
hafa óspart laumað fiskbita í fer-
fætlingana. Gestir búðarinnar
hyggjast halda kveðjuhóf þeim til
heiðurs. »15
Söknuður meðal
fólks og katta
Vaxandi áhugi er meðal stjórnenda
íslenskra fyrirtækja á umsvifum á
Grænlandi. Starfsemi Grænlensk-ís-
lenska viðskiptaráðsins var hleypt af
stokkunum fyrir skömmu og á Akur-
eyri eru mörg fyrirtæki þátttakend-
ur í Arctic Services, verkefni á veg-
um Atvinnuþróunarfélags Eyja-
fjarðar. Þátttakendur í því sjá ýmsa
möguleika á Grænlandi, þar sem
þörf er á tækniþjónustu, m.a. vegna
fyrirhugaðrar námuvinnslu.
Á síðasta ári fluttu Íslendingar út
vörur til Grænlands fyrir um 2,6
milljarða króna. Flugfélag Íslands er
með daglegar Grænlandsferðir og
flytur kynstrin öll af daglegum
neysluvörum.
Tækifærin á Grænlandi eru um-
talsverð, segir Kristín Hjálmtýsdótt-
ir sem stýrir erlendum samskiptum
hjá Viðskiptaráði Íslands. Hún telur
þörf á viðskiptasamningi Íslands og
Grænlands. Í höfuðstaðnum Nuuk
verður í haust haldin íslensk kaup-
stefna og skrifstofa íslensks ræðis-
manns verður opnuð innan tíðar.
sbs@mbl.is
MViðskipti »6-7
Mikil tækifæri á Grænlandi
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Grænland Nuuk er höfuðstaður og
þar bjóðast Íslendingum tækifæri.
Flutt út fyrir 2,6 milljarða króna
Staðfest var á bæjarstjórnarfundi
í Sveitarfélaginu Vogum í gær-
kvöldi að gamli meirihlutinn er
ekki lengur starfandi. Þrír fulltrú-
ar minnihlutans studdu þá tvo full-
trúa fyrrverandi meirihluta við
kosningar í nefndir og ráð.
Meirihlutinn í Vogum hefur fallið
tvisvar á kjörtímabilinu, í bæði
skiptin vegna ágreinings um lagn-
ingu Suðvesturlínu um land sveitar-
félagsins. Meirihluti sem tók við
2011 undir forystu Ingu Sigrúnar
Atladóttur gerði það að skilyrði að
línan væri í jarðstreng en tveir fé-
lagar hennar og minnihlutinn
breyttu um kúrs í nóvember í fyrra.
Inga Sigrún hugðist taka á ný við
sem forseti bæjarstjórnar í gær-
kvöldi en naut ekki stuðnings. Ann-
ar fulltrúi listans, Oddur Ragnar
Þórðarson, sem gegndi stöðunni í
leyfi Ingu, hlaut kosningu.
helgi@mbl.is
Vogar Átök hafa verið í bæjarstjórn Voga
um línulagnir allt kjörtímabilið.
Klofningur í meiri-
hluta staðfestur
Framtakssjóðir (e. private
equity) eru orðnir áberandi meðal
þeirra sem fjárfesta í íslensku at-
vinnulífi. Á árunum fyrir hrun
þekktust þeir nánast ekki hér á
landi. Þá voru fjárfestingarfélög
alls ráðandi.
Framtakssjóður Íslands er þekkt-
asti framtakssjóðurinn og sá lang-
stærsti. Lífeyrissjóðir fjármagna
framtakssjóðina að mestu og nýta
þá til að fjárfesta í óskráðum fyr-
irtækjum, eins og t.d. Ölgerðinni og
Bláa lóninu. En það er mun meiri
vinna að fjárfesta í fyrirtækjum
sem ekki eru skráð í Kauphöll.
Fjármálafyrirtæki reka sjóðina.
»Viðskipti
Áberandi framtaks-
sjóðir eiga sviðið