Morgunblaðið - 27.06.2013, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
Blómapottar, vasar og
kínverskir listmunir
Mikið úrval af hand-
gerðum listmunum
í öllum stærðum og
gerðum
SUMAR
TILBOÐ 30%
afsláttur
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Þetta er fótboltadeild sem ég
keppi í. Svo er líka til björgunar-
deild en þar eru búnir til róbótar
til að fara um rústir og svo er til
heimilisstarfadeild en þá hjálpa ró-
bótar til heima hjá fólki,“ segir
Lovísa Irpa Helgadóttir, verkfræð-
ingur hjá Freie Universität Berlin,
en hún keppir í róbótafótbolta á
Robocup-mótinu sem fram fer í
Eindhoven í Hollandi um þessar
mundir.
Knattspyrnulið Lovísu heitir
FUB-Kit og keppir það í flokki ró-
bóta sem hafa einkenni mannfólks
(e. humanoid league). Nafn liðsins
er dregið af nöfnum háskólanna
tveggja sem að því standa, hins
þýska Freie Universität Berlin og
hins japanska Kyushu Institute of
Technology.
Róbótar á móti róbótum
Að sögn Lovísu er þetta í
sautjánda sinn sem mótið er haldið
og segir hún markmið mótsins að
skapa róbótafótboltalið sem geti
sigrað mennskt fótboltalið árið
2050. „Við keppum í róbótum á
móti róbótum. Við erum fjög-
ur, ég og Hamid, sem hann-
aði róbótana, og svo erum
við með tvo sem komu frá
háskóla í Japan sem er í
samstarfi við okkur,“ seg-
ir Lovísa og bætir við:
„Við keppum í deild sem
heitir „TeenSize league“
en það eru sumsé róbót-
„Við fögnum því auðvitað að þetta
frumvarp hafi verið samþykkt,“
segir Erna Hauksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, um viðbrögð ferðaþjón-
ustunnar við breytingu á lögum um
virðisaukaskatt. „Við höfum sagt
það alla tíð að ef á að hækka skatta
og gjöld á ferðaþjónustuna, þá á að
gera það með minnst 18-20 mánaða
fyrirvara. Það verða stjórnvöld að
skilja. Það gera sem betur fer sum-
ir, en ekki allir.“
Á þriðjudag var samþykkt frum-
varp ríkisstjórnarinnar vegna
breytingar á lögum um ráðstafanir
í ríkisfjármálum. Breytingarnar
fólu í sér að afnema sérstakan 14%
virðisaukaskatt sem settur var á
gistiþjónustu, en þá hafði hann þeg-
ar verið lækkaður úr rúmum 25%.
Með breytingunni stendur því virð-
isaukaskatturinn í 7%.
Nýr vaskur, nýir verðlistar
Magnea Þórey Hjálmarsdóttir,
framkvæmdastjóri Icelandair Hot-
els, segir að breytingarnar valdi
ekki stórvægilegum hnökrum í
kynningarstarfi fyrir íslenska
ferðaþjónustu, en aðilar í þessum
rekstri hafi þó reglulega þurft að
senda út uppfærða verðlista: „Á
sínum tíma þegar virðisaukaskatt-
urinn var hækkaður þurftum við að
senda út bréf til allra okkar við-
skiptavina og það höfum við þurft
að gera með hverjum breytingum.
Það er heilt stöðugildi hjá okkur
búið að vera í þessu, starfsmaður
sem sendir samninga fram og til
baka með stöðugum breytingum
frá áramótum.“
Þrátt fyrir þetta er Magnea sátt
með samþykkt frumvarpsins. „Ég
er sátt vegna þess að skatturinn
hefur áhrif á fólk þegar það velur
utanlandsferð. Í þessu er verð á
flugi og gistingu það sem mestu
máli skiptir, en þegar komið er á
áfangastað skiptir verðlagið þar
fólk minna máli. Þetta köllum við
entry point ákvörðun, og það hefði
komið sér mjög illa fyrir alla aðila
ef hægja færi á fjölgun ferðamanna
vegna þessa,“ segir Magnea.
agf@mbl.is
Fagna samþykkt
frumvarps um
afnám 14% vsk.
Breytingarnar hafa útheimt mikinn
tíma og vinnu hjá rekstraraðilum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Til bóta Bæði ferðaþjónustan og
ferðamenn brosa yfir breytingunum.
Tíu þrepa að-
gerðaáætlun rík-
isstjórnarinnar
vegna skulda-
vanda heim-
ilanna var af-
greidd úr
efnahags- og við-
skiptanefnd Al-
þingis á fundi
nefndarinnar í
gærmorgun, að
sögn Frosta Sigurjónssonar, þing-
manns Framsóknarflokksins og
formanns efnahags- og viðskipta-
nefndar. „Minnihlutinn verður trú-
lega með álit en þetta var svosem
allt í ágætri sátt,“ sagði Frosti í
samtali við mbl.is í gær.
skulih@mbl.is
Aðgerðaáætlunin af-
greidd út úr nefnd
Frosti Sigurjónsson
Farið var yfir stöðu og horfur í ríkis-
fjármálum á fundi fjárlaganefndar Al-
þingis í gær og var þar staðfest, sem áð-
ur hefur komið fram, að útlitið er að
óbreyttu mun verra en ráð var fyrir
gert í fjárlögum ársins og efnhagshorf-
urnar dekkri.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, og sérfræðingar
ráðuneytisins komu á fund nefndarinn-
ar í gær þar sem farið var yfir stöðuna,
tekjuöflunarleiðir og útgjöld, að sögn-
Vigdísar Hauksdóttur, formanns fjár-
laganefndar.
,,Þetta var afskaplega gagnlegur
fundur og rætt opinskátt um stöðuna,“
segir hún.
Beðið eftir hálfsársuppgjöri
Vinna við fjárlagagerð er í fullum
gangi. Einstök ráðuneyti eru þessa
dagana að skila fjármálaráðuneytinu
tillögum sínum um útgjöld á næsta ári.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu í
gær stendur til að hagrætt verði í ríkis-
rekstri um 1,5%.
Formenn ríkisstjórnarflokkanna
kynntu fyrr í mánuðinum stöðuna í
ríkisfjármálum, þar sem fram kom að
verði ekki gripið til gagnráðstafana
gæti afkoman í reglubundinni starfsemi
ríkissjóðs orðið nálægt 14 milljörðum
verri á þessu ári en fjárlög gera ráð fyr-
ir. Að sögn Vigdísar komu engar nýjar
tölur fram á fundinum í gær umfram
það sem kynnt var fyrr í mánuðinum en
óvissan sé mikil, ekki síst vegna minnk-
andi umsvifa og vísbendinga um að hag-
vöxtur á fyrstu 4 mánuðum ársins hafi
verið langt undir væntingum. Nú er
beðið eftir hálfsársuppgjöri þjóðarbús-
ins að sögn hennar. omfr@mbl.is
„Rætt opinskátt um stöðuna“
Fjármálaráðherra fór yfir stöðu ríkisfjármála með fjárlaganefnd í gær Ráðu-
neytin skila inn útgjaldatillögum en almenn hagræðingarkrafa er upp á 1,5%
Dekkra útlit
» Nú er talið að afkoma
ríkissjóðs á næsta ári
geti orðið um 27 millj-
örðum lakari en gert var
ráð fyrir.
» Gert er ráð fyrir 1,9%
hagvexti á þessu ári í
stað 2,5%.
„Þetta er í fyrsta skipti sem liðið okkar tekur þátt, þannig að við erum
kannski ekkert endilega að búast við því að vinna en ef við náum að
skora eitt mark þá yrði það frábært,“ segir Lovísa Irpa Helgadóttir.
Robocup-mótið stendur fram til sunnudags en þá fer fram úrslitaleikur
mótsins.
„Við gerðum æsispennandi núll – núll jafntefli áðan [í gær] við
eitthvert kóreskt lið en eins og ég sagði þá erum við ekkert endi-
lega að reyna að komast áfram en við viljum skora mörk,“ segir
Lovísa og bætir við að fyrir þá sem hafi gaman af róbótum þá sé
þetta staðurinn til að vera á.
Róbótarnir sem keppa á mótinu stýra sér sjálfir með hjálp
gervigreindar, algjörlega án mannlegrar aðstoðar. Er því í
raun um vélmenni eða vélknúna knattspyrnumenn að ræða.
„Viljum skora mörk“
VÉLMENNIN STÝRA SÉR SJÁLF
Lovísa Irpa
Helgadóttir
ar sem eru 90 til 140 sentimetra
háir.“
Í deildinni sem Lovísa keppir í
er hvort lið með einungis tvo ró-
bóta inn á vellinum í einu. „Svo eru
aðrar deildir þar sem eru fleiri ró-
bótar og þar gengur þetta t.d. út á
að finna út hvar maður er á vell-
inum,“ segir Lovísa. Þá segir hún
mótið vera afar stórt í sniðum.
„Þetta er alþjóðlegt og það er fullt
af fólki hérna frá mörgum löndum,“
segir Lovísa.
Svalir róbótar
Aðspurð hvert hlutverk hennar í
liðinu sé segist hún hafa hannað
hugbúnaðinn á bakvið róbótana,
með öðrum orðum „heilana“ í þeim.
„Við erum með rosalega svala ró-
bóta, þeir eru allt öðruvísi en allir
hinir róbótarnir vegna þess að Ha-
mid, sem ég er að vinna með og er
algjör snillingur, hannaði nýjan
fótavélbúnað sem er meira undir
áhrifum líffræði,“ segir Lovísa.
„Allir róbótarnir í okkar deild
eru með mótora bæði í hnjánum og
í öllum liðum en við erum bara með
einn kapal sem sér um alla fóta-
hreyfinguna.“
FUB-KIT liðið á Robocup 2013 Frá vinstri: Hamid (FU Berlin), Amir (KIT), Lovísa (FU Berlin) og Satoh (KIT).
Keppir í róbótafót-
bolta í Eindhoven
Markmiðið að róbótar sigri mennskt lið árið 2050
Skannaðu kóðann
til að sjá mynd-
band frá Robocup.