Morgunblaðið - 27.06.2013, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013
… Heilsurækt fyrir konur
Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
Oddný Sigríður Nicolaidóttir – 82 ára
Ég byrjaði að æfa í Curves vorið 2009. Æfingarnar
henta mér afar vel. Ég mæti 4x í viku og held þannig
líkamanum í góðu formi þrátt fyrir gigt og fleira sem
fylgir mínum aldri. Eftir skurðaðgerð nýlega fór ég í
6 vikna geislameðferð og meðan á meðferðinni stóð
stundaði ég líkamsræktina 4x í viku. Félagsska-
purinn, stuðningurinn og ekki síst það frábæra starfs-
fólk sem Curves hefur upp á að bjóða er ómetanlegt.
Þarna hef ég eignast góðar vinkonur og sleppi helst
aldrei úr tíma. Stærsti kosturinn er að ég get mætt
þegar mér hentar.
Tilboð
júlí, ágúst og sept.
18.900 kr.
Tilboð
trimform
7.500 kr.
5 skipti og gildir í 2 vikur
Æfingin hjá okkur
tekur aðeins
30 mínútur
Hringdu og fáðu frían prufutíma
Bjóðum einnig
upp á trimform
Evrópuvaktin segir frá því aðbirt hafi verið á Írlandi end-
urrit af samtali tveggja hátt-
settra starfsmanna Anglo Irish
Bank sem sýni að írsk stjórnvöld
voru plötuð til að leggja 7 millj-
arða evra til bjarg-
ar bankanum
haustið 2008 en
miklu meira hafi
þurft til, eins og í
ljós kom þegar
írska ríkið var orð-
ið fast í netinu.
Kenny, forsætis-
ráðherra Írlands, segir ljóst að
forráðamenn bankans hafi logið
að stjórnmálamönnum.
Frá Ítalíu berast nú fréttir umað stjórnvöld þar hafi í að-
draganda upptöku evru í raun
falsað efnahagstölur landsins til
þess að láta líta svo út, sem Ítalía
uppfyllti skilyrði fyrir því að taka
upp evru.
Þetta hafi verið gert með gerðafleiðusamninga, sem nú eru
að koma í hausinn á Ítölum.
Þessar fréttir benda til þess aðsannar hafi verið frásagnir á
síðasta ári um að Kohl þáverandi
kanslari Þýzkalands hafi haft
undir höndum upplýsingar um
málið á þeim tíma en horft fram
hjá þeim af pólitískum ástæðum.
Jafnframt gefur Financial Tim-es í skyn, að Mario Draghi,
aðalbankastjóri Seðlabanka Evr-
ópu, hafi átt hlut að máli, sem
ráðuneytisstjóri í ítalska fjár-
málaráðuneytinu á þessum tíma.
Er Evruland allt ein allsherjar
sýndarmennska?
Hvað segir formaður Samfylk-ingarinnar um það, sem
lýsti Evrulandi sem framtíð-
arlandi Íslendinga í kosningabar-
áttunni?“
Árni Páll Árnason
Sýndarland?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 26.6., kl. 18.00
Reykjavík 10 skýjað
Bolungarvík 11 léttskýjað
Akureyri 16 skýjað
Nuuk 1 þoka
Þórshöfn 10 alskýjað
Ósló 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 21 heiðskírt
Helsinki 21 léttskýjað
Lúxemborg 23 léttskýjað
Brussel 17 heiðskírt
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 18 heiðskírt
London 13 skýjað
París 22 heiðskírt
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 17 léttskýjað
Berlín 22 skýjað
Vín 21 léttskýjað
Moskva 22 skýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 26 léttskýjað
Aþena 26 léttskýjað
Winnipeg 11 léttskýjað
Montreal 12 súld
New York 14 skýjað
Chicago 10 léttskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:00 24:03
ÍSAFJÖRÐUR 1:36 25:36
SIGLUFJÖRÐUR 1:19 25:19
DJÚPIVOGUR 2:16 23:46
Kríuvarpið á Seltjarnarnesi er nú
með besta móti, miðað við undan-
farin ár, að sögn Jóhanns Óla
Hilmarssonar fuglafræðings. Hann
hefur fylgst með varpinu.
„Þetta er mjög gott varp, að
minnsta kosti miðað við síðustu fjög-
ur ár,“ sagði Jóhann Óli. „Það var
svolítið áberandi að engin kría var
með þrjú egg, allar með eitt eða tvö.
Það voru eitthvað á þriðja þúsund
pör með hreiður á Nesinu.“
Jóhann Óli sagði að töluvert hafi
verið um að kríur hafi borið hrogn-
kelsaseiði í þær sem lágu á. Ekki er
útséð um hvernig varpinu reiðir af.
Þegar eggin klekjast verða kríurnar
að finna sandsíli af réttri stærð svo
ungarnir komist upp.
Jóhann Óli sagði sömu sögu að
segja af kríuvarpi á Stokkseyri og
Eyrarbakka og á Seltjarnarnesi. Þar
virðist varpið einnig vera með
skárra móti miðað við undanfarin ár.
Ýmsir fuglar hafa brugðist við
breyttum landsháttum. Þannig
sagðist Jóhann Óli hafa séð hettu-
máfsunga éta mikið af lirfum fiðrild-
isins ertuyglu.
„Maður sér bæði hettumáfa og
sílamáfa vera í lúpínubreiðunum í
æti. Þeir hafa aðlagað sig betur en
krían sem er algjör sjófugl,“ sagði
Jóhann Óli. gudni@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Kría Ekki er ljóst hvernig varpinu reiðir af því ungarnir þurfa að fá sandsíli
til að vaxa upp og verða fleygir. Sandsílið hefur brugðist undanfarin sumur.
Kríuvarp betra
en síðustu ár
Varpið fór vel af stað á Seltjarn-
arnesi, Stokkseyri og Eyrarbakka