Morgunblaðið - 27.06.2013, Page 11
„Þetta er einn fárra erlendra
leiklistarskóla sem halda prufur á
Íslandi. Kennararnir úti eru líka al-
veg rosalega hrifnir af því að vinna
með Íslendingum. Það fer víst gott
orð af okkur. Svo er London líka
bara mikil menningarborg,“ segir
Sólveig Eva. Hún segir þó flesta Ís-
lendingana breyta nöfnum sínum
þegar út er komið til að falla betur
að enskri tungu.
„Ég sneri nafninu mínu til að
mynda við. Úti í Englandi heiti ég
Eva Sólveig, það er auðveldara að
segja Eva en Sólveig. Ef við viljum
fá vinnu þarna úti er stundum svo-
lítið erfitt að bera fram þessi löngu
íslensku nöfn. Þetta auðveldar
margt, til að mynda þegar við erum
að sækja um hlutverk,“ segir hún.
Fór ung til Englands
Ólíkt flestum þeim Íslend-
ingum sem nema við Rose Bruford
hóf Sólveig Eva nám við skólann áð-
ur en hún hafði lokið mennta-
skólanámi hér heima.
„Ég var bara svo óþolinmóð.
Um leið og ég varð átján ára og
nógu gömul til að fara í prufurnar
hoppaði ég á tækifærið. Ég var búin
að ákveða þetta löngu áður en ég
sótti um, ég vann mikið árið áður
því þetta er dýrt nám. Ég fékk síð-
an veglegan styrk frá móður minni.
Þetta hefur verið algjört ævintýri.
Flestir Íslendingarnir fara eldri út
því þetta er dýrt og nemendur hér
heima klára menntaskóla um tví-
tugt,“ segir Sólveig Eva. Hún segist
ekki sjá eftir því að hafa ekki klárað
menntaskólann hérna heima enda
með öllu óþarft að halda áfram með
eitthvað óþarft á meðan hún gæti
fundið ástríðuna í London.
„Það var inni í myndinni að
taka eitthvert leiklistarnám hérna
heima en ég var bara ekki orðin
nógu gömul í það. Leiklistarskólinn
hér heima er engu að síður spenn-
andi en heimsborgin London heill-
aði mig. Við erum engu að síður
rosalega spennt að fá að koma til Ís-
lands og kynna okkur hér. Listalífið
á Íslandi er mikið og Reykjavík er
full af listafólki,“ segir Sólveig Eva
að lokum.
Ljósmynd/Alex Winn Photography
Efnileg Sólveig var ung þegar hún lagði leiklistina fyrir sig í London.
Leikarar Stöllurnar
kynntust í leiklistar-
skólanum í London.
Frumlegt Leiksýningar leik-
hópsins eru oft á tíðum fremur
tilraunakenndar.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013
Nýr fjórhjóladrifinn Mitsubishi Outlander er ríkulega búinn staðal- og
þægindabúnaði sem ásamt nýrri tækni eykur öryggi og veitir þér nýja aksturs-
upplifun. Má þar nefna hraðastilli með fjarlægðarskynjara, akreinavara og
árekstrarvörn sem allt er staðalbúnaður í grunngerðinni Intense.
Outlander kostar frá
5.990.000 kr.
Intense 4x4, bensín, sjálfskiptur
MITSUBISHI OUTLANDER
Rúmbetri, sparneytnari og betur búinn
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
mitsubishi.is
Eyðir aðeins frá5,5 l/100 km.
Næsta laugardag kl. 13-14 verður
fjölskyldujógatími á grænu túni í
góðu veðri fyrir utan Viðeyjarstofu í
Viðey. Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir
jógakennari ætlar að leiða fólk í
gegnum jógaæfingar, farið verður í
leiki, sungið, hugleitt og slakað vel á í
lokin við heilandi tóna gongsins.
Áhersla verður lögð á að hver og einn
geri sitt besta, að tengjast í kærleika
og hlæja saman. Miðað er við fimm
ára og eldri til að geta tekið fullan
þátt. Yngri börn gætu þurft aðstoð
foreldra í tímanum en eru velkomin.
Skráning í akk@graenilotusinn.is.
Arnbjörg er með alþjóðleg réttindi
sem kundalini-jógakennari og hefur
kennt ungum sem öldnum jóga um
nokkurt skeið. Hún hefur m.a kennt
6-8 ára börnum í Hörðuvallaskóla
jóga í rúmt ár. Hún sótti krakkajóga-
kennaranámskeiðið Childplay hjá
Gurudass Kaur og lærði jógíska ráð-
gjöf erlendis.
Sungið, hugleitt, leikið og hlegið
Jóga Hentar vel fyrir alla fjölskylduna
og gaman að fara út í Viðey.
Fjölskyldujóga úti í Viðey
Skagfirskir lummudagar halda upp á
fimm ára afmæli þetta árið og verður
mikið um dýrðir alla helgina. Þeir
sem bjóða fólki heim í lummur setja
hvíta blöðru við húsið sitt. Lummu-
dagar hefjast formlega í dag með
fjöri í Litla-skógi, þar verður farið í
leiki, útieldun og fiskisúpa í kvöld kl.
19. Á morgun, föstudag, verður sápu-
fótboltamót á Ártúni, götugrill og
tónleikar Villtra svana og tófa. Á
laugardag verður Árnahlaup haldið til
heiðurs Árna Stefánssyni íþrótta-
frömuði sextugum. Að hlaupi loknu
verða grillaðar pylsur í boði Kaup-
félags Skagfirðinga og verðlauna-
afhending. Götumarkaður og lifandi
tónlist verður í gamla bænum með
Úlfur úlfur og fleirum, kassabílarall
og tónleikar Hreindísar Ylvu í Bifröst.
Paparnir leika fyrir dansi á balli á
Mælifelli um kvöldið.
Nýja smábátahöfnin verður svo
formlega tekin í notkun á sunnudegi.
Nú er lag að bregða sér í Krókinn og
skemmta sér við lummuát og fleira.
Mikið fjör alla helgina
Ljósmynd/Sara Gísladóttir
Sápubolti Afar vinsælt atriði á Lummudögum enda bráðskemmtilegt.
Skagfirskir lummudagar
Hamingjudagar í Hólmavík hófust í
vikunni og halda þeir áfram út
helgina. Í dag kl. 15 mun Margrét Erla
Maack kenna fólki að dansa maga-
dans, Bollywood- og Beyoncé-dansa.
Danskennslan er ókeypis. Í kvöld kl.
21 mun Svavar Knútur halda tónleika
á Galdrasafninu. Á morgun föstudag
verður Sirkus Íslands með sýningu í
Félagsheimilinu. Sirkusnámskeið
verður fyrir áhugasama á laugardeg-
inum frá kl. 9-12 og að því loknu verð-
ur afraksturinn sýndur í Félagsheim-
ilinu. Hamingjuhlaupið er á laugar-
dag, hlaupið verður frá Árnesi í
Trékyllisvík til Hólmavíkur. Þetta er
skemmtihlaup þar sem allir eru sig-
urvegarar. Nánar á strandabyggd.is.
Hamingjudagar í Hólmavík
Magadans Dásamlegt fyrirbæri.
Magadans og
önnur gleði