Morgunblaðið - 27.06.2013, Síða 19
AFP
AFP
Loftslagsvandi Obama þurrkar af sér svitann í kæfandi hitanum í George-
town-háskóla í Washington þegar hann flutti ræðu sína.
andi sköpun umhverfisvænna starfa.
Jones segir rétt að fagna en vera
samt raunsær.
Og flestir þingmenn repúblikana
munu berjast hart gegn áformunum.
Þeir benda á að kol séu víða undir-
staða atvinnu, stórhættulegt sé að
leggja til orrustu gegn þeim þegar
hagvöxtur sé jafn lítill og núna. Hert-
ar umhverfisreglur muni hugsanlega
hækka neytendaverð á raforku, auka
atvinnuleysi þegar námum verði lok-
að og gera bandarísk fyrirtæki síður
samkeppnishæf á alþjóðamörkuðum.
Stefna Obama geti kæft efnahagsbat-
ann í fæðingu.
Óvinir tjörusands Keystone XL-
leiðslan á að flytja olíu frá vinnslu-
svæðum í Kanada suður að Mexíkó-
flóa. Obama sagði hana aðeins
verða lagða ef öruggt þætti að hún
skaðaði ekki umhverfið um of.
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013
Þú kemst lengra á
grænum bíl með Ergo
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is
Það er gaman að fá sér grænan bíl.
Í júní verður það enn skemmtilegra því með
fjármögnun á grænum bílum fylgir 20.000 kr.
inneignarkort frá N1.*
Gott fyrir þig, umhverfið og okkur öll.
Aðstoðum með ánægju!
* Gildir í júní 2013 fyrir græna bíla ef upphæð fjármögnunar er 1 milljón eða hærri.
Við aðstoðum
með ánægju
með ánægju
Við aðstoðum
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Kevin Rudd velti í gær Juliu Gillard
forsætisráðherra úr leiðtogasæti
Verkmannaflokksins í Ástralíu.
57 þingmenn flokksins kusu Rudd
en 45 Gillard sem sjálf velti Rudd,
gömlum vini sínum, fyrir þrem ár-
um. Þingkosningar verða í septem-
ber og er stjórnarflokknum spáð
miklu tapi.
Gillard varð fyrst kvenna til að
taka við stjórnarforystu í Ástralíu
2010 en hún hafði þá um hríð verið
aðstoðarforsætisráðherra Rudds.
Hún segist ætla að yfirgefa vettvang
stjórnmálanna nú þegar Rudd verð-
ur aftur forsætisráðherra.
Fréttaskýrandi BBC segir ástæð-
una fyrir falli Gillard ekki vera að
flokksmenn álíti Rudd beinlínis lík-
legan til að vinna kosningarnar í
haust. Hins vegar geti hann ef til vill
afstýrt því að flokkurinn gjaldi af-
hroð.
Rudd náði fram hefndum og
verður forsætisráðherra á ný
Gillard tapaði í kosningu ástralska Verkamannaflokksins
AFP
Á útleið Julia Gillard, fráfarandi
forsætisráðherra Ástralíu.
Þótt margir baráttumenn gegn los-
un koldíoxíðs fagni nýjum/gömlum
áherslum Baracks Obama fer því
fjarri að losun Bandaríkjamanna
muni verða mesta vandamálið á
næstu árum. Losunin þar í landi hef-
ur dregist saman í allmörg ár, að
hluta til vegna minni umsvifa í hag-
kerfinu. En einnig vegna lagalegra
aðgerða gegn mengun og marg-
víslegra tækniframfara og ekki síst
vaxandi notkunar á jarðgasi.
Þótt Evrópusambandið hafi sett
sér mun háleitari markmið en
Obama um samdrátt í losun gróð-
urhúsalofttegunda næstu áratugina
bendir flest til þess að þau náist
ekki. Þjóðverjar eru í vanda, þar
hefur stjórn Angelu Merkel kansl-
ara ákveðið að loka öllum kjarn-
orkuverum innan nokkurra ára og
einbeita sér að vind- og sólarorku til
rafmagnsfram-
leiðslu. Deilt er
arðsemi þeirra og
línulagnir frá
vindorkuver-
unum, enginn vill
nýjar línur á sínu
svæði. Ein afleið-
ingin er að sögn
breska tímarits-
ins Economist að
nú þegar eru notuð í auknum mæli
brúnkol, sem nóg er af í austurhluta
landsins. En þau hafa þann ókost að
menga geysilega.
Og Kína, sem þegar losar meira
koldíoxíð út í andrúmsloftið en
nokkurt annað ríki, og Indland reisa
stöðugt ný kolakynt orkuver. Að-
gerðir Obama hafa því tiltölulega lít-
il áhrif á heimsvísu en geta að sjálf-
sögðu verið öðrum fordæmi.
Mikið áunnist nú þegar
í Bandaríkjunum
Angela Merkel