Morgunblaðið - 27.06.2013, Síða 35

Morgunblaðið - 27.06.2013, Síða 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013 Nýr 4ra rétta seð ill og A la Carte í Perlunni Perlan • Sími 562 0200 • Fax 56 2 0207 • perlan@perlan.is • ww w.perlan.is Gjafabréf Perlunnar Góð gjöf við öll tækifæri Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hinir árlegu Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri fara fram um helgina, 28.-30. júní, og verður þar mannsröddin hyllt í sínum marg- víslegu birtingarformum, enda um sönghátíð að ræða. Líkt og und- anfarin átta ár er það Guðrún Jó- hanna Ólafsdóttir messósópran sem gegnir starfi listræns stjórnanda hátíðarinnar og verða konur áber- andi á henni í ár. Bára Grímsdóttir er staðar- tónskáldið að þessu sinni og verður verk sem hún samdi fyrir hátíðina, „Dame la mano“, frumflutt af kvennakórnum Vox feminae og Guðrúnu, undir stjórn Margrétar J. Pálmadóttur, á laugardaginn en verkið samdi Bára við ljóð síleska rithöfundarins Gabrielu Mistral. Verður það í fyrsta sinn sem kvennakór kemur fram á hátíðinni. Guðrún mun auk þess koma fram á fyrstu tónleikum hátíðarinnar, á föstudaginn, með gítarleikaranum Francisco Javier Jáuregui en plata með flutningi þeirra á enskum og skoskum lögum, English and Scott- ish Romantic Songs for Voice and Guitar, er komin út á vegum spænsku plötuútgáfunnar EMEC en hið virta fyrirtæki Naxos sér um heimsdreifingu á henni. Þó svo konur verði í öndvegi má ekki gleyma tenórnum Gissuri Páli Gissurarsyni sem hefur hátíðina með flutningi á lútulögum end- urreisnartónskáldsins Johns Dow- lands og samtíðarmanna hans. Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari mun svo brjóta upp efnisskrána með óvenjulegu verki eftir samtímatónskáldið Thomas Adès, sem hann lýsir sem spreng- ingu á lútulaginu In Darknesse Let Mee Dwell eftir Dowland. Gissur og Guðrún taka einnig lagið saman og flytja ítölsk sönglög og aríur eft- ir „bel canto“ meistarana Bellini, Rossini og Donizetti. Leitast við að fara ótroðnar slóðir Guðrún segir að leitast sé við að fara ótroðnar slóðir á hátíðinni og m.a. boðið upp á skapandi tónlist- arsmiðju fyrir börn á aldrinum 5-10 ára, undir stjórn Elfu Lilju Gísla- dóttur. Börnin fari í tónlistarleiki, spinni og taki þátt í lokatónleikum hátíðarinnar með öllum þeim tón- listarmönnum sem koma fram á henni. Á þeim verður flutt tónlist eftir Bellini, Rossini, Donizetti, Mozart og Schubert en börnin flytja eftir hlé verk sem þau hafa unnið að í tónlistarsmiðjunni, lítinn söng- og leikþátt í samstarfi við listamenn hátíðarinnar. „Þetta hófst sem mikil kammer- tónlistarhátíð en er smám saman að breytast í meiri sönghátíð, enda eitthvað sem stendur mér nær þar sem ég er söngkona. Ég veit heldur ekki til þess að það sé nein sönghá- tíð á Íslandi þó hér séu ýmsar kammertónlistarhátíðir,“ segir Guð- rún um hátíðina. Spurð að því hverjar listrænar áherslur hennar séu í ár segir hún konur gegna stóru hlutverki. „Bæði var ég hrifin af því hvernig hvernig Vox feminae syngur og öflugu starfi Margrétar J. Pálmadóttur síðustu 20 ár en þær eru að halda upp á 20 ára starfsafmæli sitt í ár. Það eru náttúrlega miklu fleiri karlar tónskáld en konur í heim- inum, stjórnendur líka og ljóðskáld þannig að þarna fá konurnar að njóta sín, á laugardagstónleikunum sem eru aðrir tónleikar hátíð- arinnar,“ segir Guðrún en á þeim verður frumflutt fyrrnefnt verk Báru sem Guðrún segist hrífast af sem tónskáldi. Ljóðið, „Dame la mano“, er líka eftir konu og nób- elsverðlaunahafa í þokkabót, einu suðuramerísku konuna sem hefur hlotið þau verðlaun í flokki bók- mennta. Von og hvatning Valdir þú ljóðið fyrir Báru? „Ég stakk upp á því. Bára vildi semja lag við ljóð á spænsku vegna þess að ég syng mikið á spænsku. Ég á heima í Madrid og við fórum að skoða ýmis ljóð og svo hafði ég líka samband við kvennakór sem ég þekki í Madrid og bað um hug- myndir, fékk alls konar ljóð send inn frá þeim konum, spænskum og suðuramerískum. Við ræddum þetta, við Bára og svo varð þetta ljóð fyrir valinu,“ segir Guðrún. Tit- ill ljóðsins útleggst á íslensku „Gef mér hönd þína“ og segir Guðrún ljóðið bæði jákvætt og fallegt, von og hvatning gegnumgangandi stef í því og kraftur í kveðskapnum. Mótaðir þú efnisskrá hátíð- arinnar með flytjendum? „Já, ég gerði það, mjög mikið. Ég valdi flytjendurna fyrst og svo valdi ég efnisskrána í samstarfi við þá. Reyndar valdi kvennakórinn sína efnisskrá sjálfur en ég vildi fá Báru til að semja fyrir okkur. Svo er restin af efnisskránni bæði mínar hugmyndir og hugmyndir lista- mannanna þannig að þetta er hugs- að svolítið út frá þeim, hvað myndi fara þeim vel. Til dæmis Gissur Páll, hann syngur bæði lög frá end- urreisnartímanum og ítölsk sönglög og aríur. Hann lærði á Ítalíu og er með mjög sterk tengsl við landið þannig að það er dálítið mikið hans sérsvið,“ segir Guðrún. Unga kynslóðin tekur þátt Hvað tónlistarsmiðjuna varðar segir Guðrún að hún verði haldin í fyrsta sinn og að hana hafi langað að gefa ungu kynslóðinni tækifæri til þess að taka virkan þátt í hátíð- inni. „Ég hef kynnst svona tónlist- arsmiðjum, bæði í London og á Spáni og maðurinn minn stjórnar hátíð á Norður-Spáni þar sem boðið hefur verið upp á svona tónlistar- smiðju. Þannig að ég leitaði fanga hérna á Íslandi, fór að spyrjast fyr- ir um fólk sem væri að gera svipaða hluti hérna og henni Elfu var mikið hælt fyrir frábært starf,“ segir Guðrún. Með því að leyfa börn- unum að taka þátt verði yfirbragð hátíðarinnar ekki alveg eins alvar- legt og verið hefur. Sem fyrr segir taka börnin þátt í lokatónleikunum á sunnudegi og segist Guðrún ekki vita nákvæm- lega hvernig seinni hluti þeirra verður, þegar börnin koma fram. „Hann verður að miklu leyti spunn- inn á staðnum sem er mjög óvenju- legt. Þetta er smá tilraunastarf- semi,“ segir Guðrún. Kvennakraftur og tilraunastarfsemi  Konur verða áberandi á Kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri í ár  Verk eftir Báru Gríms- dóttur frumflutt af Vox feminae og Guðrúnu Jóhönnu og boðið upp á tónlistarsmiðju fyrir börn Morgunblaðið/Golli Fjöldi Listamennirnir sem koma fram á hátíðinni í ár á æfingu í fyrradag. Eins og sjá má verða konur í miklum meirihluta flytjenda. Frekari upplýsingar um hátíðina og dagskrána í heild má finna á vefsíðu hátíðarinnar, kamm- ertonleikar.is. Nóbelsskáld Gabriela Mistral (1889-1957) hlaut fyrst suðuramer- ískra kvenna Nóbelsverðlaunin í bókmenntum, árið 1945. Ljósmynd/Anna Riwkin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.